Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Litlar hreyingar halda áfram á Svínafellsheiði

20.11.2026

Litlar hreyingar halda áfram á Svínafellsheiði

  • Litlar hreyfingar mælast áfram á Svínafellsheiði.
  • GPS-mælingar úr vettvangsferð 12. nóvember eru í samræmi við mælingar vöktunarkerfisins.
  • Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu.
  • Veðurstofan mælir ekki með ferðum á Svínafellsjökul á næstunni.

Í vikunni var unnið úr gögnum sem safnað var í vettvangsferð á Svínafellsheiði 12. nóvember. Færslur sem mældust á fastpunktum í ferðinni eru í samræmi við mælingar GPS-stöðvanna, innan mæliskekkju. Tvær GPS-stöðvar og þrír togmælar vakta hlíðina og senda gögn í rauntíma.

Við vettvangsskoðun og á drónamyndum sáust sprungur í jaðarurðinni neðan við sprungusvæðið. Sprungurnar í urðinni eru líklega í lausu efni og ótengdar sprungunum í berggrunninum. Að öðru leyti sáust engar breytingar á yfirborði.

Færslur frá lokum september

Frá lokum september hefur neðri GPS-stöðin (SVIN) færst um 4 cm til norðnorðvesturs, niður hlíðina, og sigið um 6 cm. Efri GPS-stöðin (SVIE) hefur færst um 2,5 cm til norðnorðvesturs og nær engin lóðrétt færsla hefur mælst þar.

Mælingar togmælanna eru í samræmi við þær hreyfingar sem GPS-stöðvarnar nema. Togmælarnir mæla breytingar á fjarlægð milli fastpunkta sitt hvorum megin við meginsprunguna.

Á myndinni má sjá þrívíddarmynd frá Náttúrufræðistofnun frá árinu 2025. Þar sjást Svínafellsheiði, skriðuefnið sem féll á jökulinn árið 2013, sprungan og staðsetningar GPS-stöðvanna á efra (SVIE) og neðra (SVIN) svæðinu.

Þrívíddarmynd af Svínafellsheiði og Svínafellsjökli. Á myndinni sjást meginsprungan, skriðuefnið sem féll á jökulinn árið 2013 og staðsetning GPS-stöðvanna á efra (SVIE) og neðra (SVIN) svæðinu. Mynd frá Náttúrufræðistofnun, 2025.

Orsakir hreyfinganna enn óljósar

Hreyfingar á Svínafellsheiði voru óverulegar frá árinu 2018 þar til skýrar hreyfingar mældust á ný í haust. Þynning jökulsins á undanförnum árum og hægfara framrás skriðuefnis framan við sprungusvæðið eru meðal mögulegra skýringa á því að hreyfingarnar hófust aftur. Skriðuefnið féll á jökulinn árið 2013.

Vatnsbúskapur svæðisins gæti einnig haft áhrif. Úrkoma getur hækkað grunnvatnsborð og aukið vatnsþrýsting í sprungum. Það getur dregið úr stöðugleika bergsins. Líklegt er að fleiri en einn þáttur eigi þátt í hreyfingunum.

Áfram fylgst með hreyfingum og úrkomu

Veðurstofan heldur áfram að vakta svæðið og fylgist með veðurspám. Sérstaklega verður fylgst með því hvort hreyfingar í hlíðinni breytist ef hlýnar og fer að rigna.

Erfið veðurskilyrði á Svínafellsheiði geta gert rekstur og viðhald mælikerfisins krefjandi. Snjór, ísing og vindur geta haft áhrif á rafmagnskerfi mælitækjanna og truflað gagnaflutning.

Mikil hætta á jöklinum ef skriður falla

Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu. Ef berghlaup fellur úr sprungusvæðinu við núverandi aðstæður telja sérfræðingar líklegast að það stöðvist á jöklinum áður en það nær lóninu við jökulsporðinn.

Á jöklinum sjálfum yrði mikil hætta ef skriður féllu úr hlíðinni. Veðurstofan mælir því ekki með ferðum á Svínafellsjökul á næstunni.

Hættumat til lengri tíma

Í hættumati Veðurstofunnar frá 2025 eru settar fram nokkrar sviðsmyndir til að meta hvernig hættan gæti breyst á næstu áratugum. Í sviðsmynd fyrir árið 2070 er gert ráð fyrir að jökullinn hafi þynnst og hopað og að lónið við jökulsporðinn hafi stækkað verulega. Við þær aðstæður aukast líkur á að berghlaup nái í lónið. Ef það gerist gæti flóð borist niður fyrir jökulinn. Hættumat Veðurstofunnar frá 2025