Vatnafar
Útlit fyrir að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun
21.08.2026 | 11:28
Jökulhlaupið í Múlakvísl, sem hófst 18. ágúst, virðist nú vera í rénun. Dregið hefur úr bæði rafleiðni og rennsli frá því í gær og lítið gas mælist nú á svæðinu.
Vatnafar
Aukið rennsli og mikil gasmengun í Múlakvísl
20.08.2026 | 16:40
Jökulhlaupið sem hófst í Múlakvísl þann 18. ágúst heldur áfram. Síðan í gær hefur rafleiðni og rennsli í ánni aukist og áfram mælist gasmengun á svæðinu.
Vatnafar
Lítið hlaup í Múlakvísl
20.08.2026 | 16:06
Undanfarna sólarhringa hefur rafleiðni í Múlakvísl hækkað jafnt og þétt og er orðin óvenju há miðað við árstíma en hún mælist um 285 míkróS/cm. Leiðnimælingar segja til um magn jarðhitavatns í ám og há gildi benda til þess að lítið jökulhlaup sé í gangi. Að svo stöddu hefur vatnshæð í ánni ekki hækkað samhliða leiðniaukningunni en mögulegt er að það geti gerst á næstu dögum.
Vatnafar
