Frá vaktinni
Breytileg átt næstu daga og él á víð og dreif
29.11.2026 | 15:31
Breytileg átt næstu daga og allvíða él, einkum um landið norðanvert.
Veðurvakt
Jarðskjálfti af stærð 3,4 í Reykjadal
28.11.2026 | 11:41
Í dag kl. 10:51 varð skjálfti 3,4 að stærð í Reykjadal en honum fylgdi nánast engin eftirskjálftavirkni. Veðurstofu hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Síðast varð skjálfti á þessum stað af þessari stærð í október 2021 en sá var 3,3 að stærð. Skjálftar sem þessir eru óalgengir en þó ekki óeðlilegir á þessu svæði.
Jarðskjálftavakt
Fylgst áfram með hreyfingum á Svínafellsheiði
27.11.2026 | 14:31
Staðan á Svínafellsheiði hefur verið óbreytt undanfarna daga. Litlar hreyfingar, á millimetraskala, mælast bæði í togmælum og GPS-kerfi.
Skriðuvakt
Mikil úrkoma á Austfjörðum – skriðuviðvaranir enn í gildi til klukkan 14 í dag
27.11.2026 | 12:10
Úrkomusamt hefur verið á Austfjörðum undanfarna daga og veðurviðvaranir vegna úrkomu hafa verið í gildi. Skriðuviðvaranir eru enn í gildi til klukkan 14 í dag. Þegar mikil rigning gengur yfir geta skriður fallið bæði meðan á úrkomunni stendur og nokkru eftir að henni lýkur.
Skriðuvakt
Stutt milli storma
27.11.2026 | 10:41
Dregur úr vindi í dag, en hvessir aftur á morgun.
Veðurvakt
Hvassviðri eða stormur norðan- og norðvestantil
27.11.2026 | 08:29
Hvassviðri eða stormur norðan- og norðvestantil með hvössum vindhviðum við fjöll. Sjá viðvaranir
Veðurvakt
Dregur hægt og rólega úr vindi í dag, en hvessir aftur austanlands á morgun
27.11.2026 | 06:26
Víðáttumikil lægð er nú stödd vestur af landinu með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu, en gular viðvaranir hafa verið í gildi víða í nótt eða fara að taka gildi nú í morgunsárið. Flestar detta þær þó út ein af annari með morgninum þar sem lægðamiðjan er tekin að fjarlægjast landið á leið sinni vestur í átt að Grænlandi. Dregur þá smám saman úr vindi þó það blási áfram á Vestfjörðum eitthvað fram eftir degi. Rigning með köflum, slydduél eða él verður sunnan- og vestanlands í dag, en úrkomulítið og léttskýjað norðanlands, einkum síðdegis.
Veðurvakt
Vatnavextir í ám á Suðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi
26.11.2026 | 19:04
Spár gera ráð fyrir mikilli úrkomu í dag og til kvölds á Suðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi og má því búast við vatnavöxtum í ám og lækjum á þeim svæðum.
Vatnafar
Hvassviðri í dag, éljagangur á morgun
26.11.2026 | 15:59
Byrjað að hvessa núna og hvasst fram á nótt með rigningu. Snýst í suðlæga átt á morgun og skúrir eða slydduél síðdegis. Kólnandi veður. Lægð á laugardag með hvassri suðaustanátt og rigningu eða slyddu, en rólegt og skúrir eða slydduél.
Veðurvakt
Lægð nálgast nú landið úr suðri
26.11.2026 | 06:43
Lægð nálgast nú landið úr suðri og veldur vaxandi suðaustan og austanátt og rigningu í dag. Fyrstu viðvaranirnar tóku gildi nú í morgunsárið vegna mikillar úrkomu á Suðausturlandi og Austfjörðum og eftir því sem líður á taka vindaviðvaranir gildi ein af annari, þær fyrstu á miðhálendi og á Austurlandi að Glettingi undir hádegi, en þær síðustu á Breiðafirði og Vestfjörðum í kvöld. Vindur verður yfirleitt á bilinu 15-23 m/s á láglendi, en heldur hvassara á stöku stað austanlands.
Veðurvakt
Síur
Vakt
Tög