26.11.2026
Hvassviðri í dag, éljagangur á morgun
Byrjað er að hvessa víða um landið þegar þetta er skrifað og viðvaranir í gildi í mörgum landshlutum. Lægðin fikrar sig nú nær landi og stefnir lægðarmiðjan norður með vesturströndinni og þaðan vestur að Grænlandi um hádegi á morgun.
Þessi lægð veldur austan og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu víða á landinu fram á nótt. Hiti 3 til 8 stig.
Í nótt þegar lægðarmiðjan er komin vestur af landinu snýst í sunnan átt og rigningu með köflum. Dregur svo úr vindi í fyrramálið þegar hún fjarlægist og dregur úr rigningu. Suðlæg átt 8-15 m/s eftir hádegi á morgun og kólnar með skúrum eða slydduéljum, en úrkomulítið norðantil.
Smálægð nálgast svo landið á laugardag og veldur allhvassri suðaustanátt og rigningu eða slyddu, en hægari vindur vestantil.
Útlit fyrir suðlæga átt á sunnudag með skúrum eða slydduéljum, en úrkomuminna norðanlands. Fremur svalt í veðri um helgina.
