26.11.2026
Lægð nálgast nú landið úr suðri
Lægð nálgast nú landið úr suðri og veldur vaxandi suðaustan og austanátt og rigningu í dag. Fyrstu viðvaranirnar tóku gildi nú í morgunsárið vegna mikillar úrkomu á Suðausturlandi og Austfjörðum og eftir því sem líður á taka vindaviðvaranir gildi ein af annari, þær fyrstu á miðhálendi og á Austurlandi að Glettingi undir hádegi, en þær síðustu á Breiðafirði og Vestfjörðum í kvöld. Vindur verður yfirleitt á bilinu 15-23 m/s á láglendi, en heldur hvassara á stöku stað austanlands.
Aðfaranótt föstudags verður lægðamiðjan að fikra sig upp eftir vesturströnd landsins áður en hún tekur stefnuna í vestur og um hádegi á föstudag ætti vindur að vera búinn að ná sér niður í víðast hvar, en allhvasst eða hvasst verður á Vestfjörðum eitthvað fram eftir degi. Bjart með köflum verður norðanlands eftir hádegi, en annars kólnar síðdegis með skúrum eða slydduéljum.
Meðan á þessu lægðarbrasi stendur verður fremur hlýtt yfir landinu og geta hitatölur víða náð tveggja stafa tölu. Um helgina kólnar aftur og er útlit fyrir snjókomu eða slyddu á laugardag, en líklega rigningu við ströndina á sunnan- og austanverðu landinu. Síðdegis tekur að hvessa austanlands vegna smálægðar sem er á ferðalagi norðvestur yfir landið. Líkur eru á að hún fari hratt yfir á sinni leið, en þær geta þó verið ólíkindatól þessar smálægðir og óvissan í spám því nokkur hvað laugardaginn varðar.