Tímalína
10. nóvember 2026 kl. 16:02
Landris mælist áfram við Svartsengi
27. október 2026 kl. 15:53
Landris mælist áfram við Svartsengi
30. september 2026 kl. 15:49
Landris mælist áfram við Svartsengi
15. september 2026 kl. 15:24
Landris mælist áfram við Svartsengi
18. ágúst 2026 kl. 15:18
Landris og kvikusöfnun heldur áfram
21. júlí 2026 kl. 15:15
Landris og kvikusöfnun heldur áfram
30. júní 2026 kl. 15:05
Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
9. júní 2026 kl. 15:00
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
26. maí 2026 kl. 14:50
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
12. maí 2026 kl. 14:39
Landris og kvikusöfnun halda áfram undir Svartsengi
28. apríl 2026 kl. 17:34
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
14. apríl 2026 kl. 17:14
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
31. mars 2026 kl. 17:21
Kvikumagn undir Svartsengi aldrei verið meira frá upphafi eldgosahrinunnar
17. mars 2026 kl. 17:38
Kvikusöfnun undir Svartsengi orðin meira en 23 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi
3. mars 2026 kl. 16:32
Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast 23 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi
17. febrúar 2026 kl. 17:23
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
3. febrúar 2026 kl. 17:42
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
20. janúar 2026 kl. 16:28
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
6. janúar 2026 kl. 17:45
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
23. desember 2025 kl. 17:47
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
10. desember 2025 kl. 16:38
Kvikusöfnun áfram hæg en stöðug
26. nóvember 2025 kl. 17:54
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
11. nóvember 2025 kl. 16:24
Óbreytt hættumat á Reykjanesskaga
28. október 2025 kl. 16:20
Um 14 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi
14. október 2025 kl. 16:17
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
25. september 2025 kl. 16:13
Komin inn í tímabil þar sem auknar líkur eru á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
23. september 2025 kl. 16:09
Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
16. september 2025 kl. 16:07
Hættumat óbreytt en verður endurmetið að viku liðinni
4. september 2025 kl. 16:02
Talsverð óvissa um tímasetningu á næsta mögulega gosi á Sundhnúksgígaröðinni
19. ágúst 2025 kl. 15:57
Skjálfti í Brennisteinsfjöllum – hraðara sig í Krýsuvík og áframhaldandi kvikusöfnun í Svartsengi
Staðan á Reykjanesskaga
Við Svartsengi í janúar 2025. Ljósmynd: Veðurstofan/Bjarki Friis
Frá eldgosinu í júlí 2025 hefur kvika safnast undir Svartsengi og land risið á svæðinu. Í þessum atburðarþræði eru birtar tímasettar uppfærslur um aflögun, kvikusöfnun, jarðskjálftavirkni og hættumat.
10. nóvember 2026 kl. 16:02
Landris mælist áfram við Svartsengi
- Landris mælist áfram við Svartsengi og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar.
- Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin.
- Núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að öllu óbreyttu.
Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Meðfylgjandi mynd sýnir mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi frá nóvember 2025 til 9. nóvember 2026. Á neðsta grafinu sést að land hefur risið jafnt og þétt undanfarna mánuði. Það bendir til þess að kvika safnist enn fyrir á nokkurra kílómetra dýpi undir svæðinu og þrýstingur þar aukist. Skjálftavirkni undanfarið hefur mælst mjög lítil og telst eðlileg bakgrunnsvirkni.

Mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi (SENG) síðastliðið ár. Efstu tvö gröfin sýna færslur til norðurs og austurs en neðsta grafið sýnir lóðrétta færslu. Þar sést áframhaldandi landris.
27. október 2026 kl. 15:53
Landris mælist áfram við Svartsengi
- Landris mælist áfram við Svartsengi með nokkuð stöðugum hraða
- Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil
- Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin
- Núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu
Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Líkön sem byggja á mælingunum benda til þess að rúmmálsbreyting undir svæðinu haldi áfram með nokkuð stöðugum hraða.
Landrisið sýnir að þrýstingur heldur áfram að byggjast upp á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi.

InSAR-mælingar á tímabilinu 11. ágúst til 16. október 2026 sýna áframhaldandi aflögun við Svartsengi. Vinstra megin er bylgjuvíxlmynd og hægra megin er sama mæling umreiknuð í færslu lands í sjónlínu gervitunglsins (LOS).
Jarðskjálftavirkni áfram lítil
Jarðskjálftavirkni er áfram lítil í kvikuganginum. Nokkur virkni hefur þó verið við Víkur vestan Grindavíkur. Þar mældist skjálfti af stærð 2,5 þann 14. október og er hann stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í júní.
Skjálftavirkni á svæðinu við Víkur er talin tengjast aukinni spennu í jarðskorpunni í nágrenni Grindavíkur vegna landriss við Svartsengi. Þessi aukna spenna veldur aukinni spennulosun og þar með jarðskjálftum.
Kvikuhlaup áfram líklegasta sviðsmyndin
Á meðan landris heldur áfram undir Svartsengi er líklegasta sviðsmyndin áfram sú að kvika hlaupi frá kvikusöfnunarsvæðinu yfir í Sundhnúksgígaröðina. Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður. Eftir því sem lengra líður frá síðasta kvikuhlaupi eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Áfram þarf að gera ráð fyrir að fyrirvari geti orðið stuttur, líkt og fyrir fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni.
Hættumatskort gildir til 5. janúar
Núgildandi hættumatskort Veðurstofu Íslands fyrir svæðið gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu.
Hættumatið byggir á fjölbreyttum mæligögnum sem eru stöðugt uppfærð. Ef breytingar verða á virkni eða ný gögn gefa tilefni til verður hættumatið endurskoðað áður en gildistímanum lýkur.

Landris getur haldið áfram lengi
Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2, „Töluvert aukin virkni“ (appelsínugult).
Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um minnkandi virkni yfir lengri tíma.
Þótt tímabil líði án kvikuhlaupa eða eldgosa getur kvikusöfnun haldið áfram eða hafist á ný eftir hlé. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í langan tíma með mislöngum hléum milli atburða. Langt hlé eitt og sér er því ekki vísbending um að virkni sé lokið.
30. september 2026 kl. 15:49
Landris mælist áfram við Svartsengi
- Hægt landris mælist áfram við Svartsengi
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin
- Tillit er tekið til sprunguviðgerða innan Grindavíkur í uppfærðu hættumati
Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um það bil fjórir sentimetrar og hefur verið nokkuð stöðugt á tímabilinu.
Landrisið bendir til þess að þrýstingur sé enn að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi.

InSAR-myndin hér að ofan sýnir áframhaldandi landris við Svartsengi á tímabilinu 20. júlí til 13. september 2026. Með InSAR-aðferð eru bornar saman ratsjármyndir úr gervitunglum til að mæla aflögun lands. Svörtu útlínurnar afmarka hraun sem runnið hafa í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni og við Fagradalsfjall.
Myndin er unnin úr gögnum frá TerraSAR-X-gervitunglinu. Þýska geimferðastofnunin (DLR) útvegaði gögnin í gegnum GEO-GSNL-samstarfið með stuðningi CEOS, alþjóðlegs samstarfsvettvangs um rannsóknir og vöktun á jörðinni með gervitunglum.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Á síðustu tveimur vikum hafa aðeins fáir skjálftar mælst í kvikuganginum og flestir þeirra verið mjög smáir.
Einnig hefur verið lítil virkni annars staðar á Reykjanesskaga undanfarna daga og vikur.
Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss áfram líklegasta sviðsmyndin
Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.
Hættumat uppfært með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík
Nýtt hættumat tekur gildi 30. september. Hættuflokkar fyrir helstu svæði breytast ekki. Grindavík er áfram metin í töluverðri hættu og Svartsengi í nokkurri hættu.
Hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með hliðsjón af þeim framkvæmdum þar sem fyllt hefur verið upp í sprungur í bænum. Breytingin lækkar reiknað heildarhættustig fyrir Grindavík úr 4,14 í 4,02. Hættuflokkurinn breytist þó ekki og heildarhættan er áfram metin töluverð (appelsínugult).
Hættumat Veðurstofunnar byggir á ýmsum gögnum sem stöðugt eru uppfærð. Í uppfærðu hættumati er stuðst við ný gögn um sprunguviðgerðir í Grindavík. Gögnin koma frá ÍSOR og verkfræðistofunni Eflu sem höfðu umsjón með framkvæmd sprunguviðgerðanna. Samkvæmt áhættumati ber Grindavíkurbær ábyrgð á sprunguviðgerðum. Sprunguviðgerðirnar minnka líkur á hættu vegna „jarðfalls ofan í sprungu“ innan bæjarmarkanna, en hafa engin áhrif á mat á hættu vegna mögulegra sprunguhreyfinga í næsta atburði.
Kortin hér fyrir neðan sýna hvernig hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu hefur breyst með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík.

Hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu í Grindavík fyrir uppfærslu hættumatsins (vinstra megin) og eftir að tekið hefur verið tillit til sprunguviðgerða (hægra megin).
Á síðunni um hættumatskort má skoða heildarhættumatskortið og kort sem sýna hættuvægi hvers hættuþáttanna sjö.

Kvikusöfnun getur staðið yfir í langan tíma
Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2, „Töluvert aukin virkni“ (appelsínugult).
Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um það yfir lengri tíma.
Viðvörunarstig eldstöðvakerfis (e. Volcano Alert Level System – VALS) er kerfi sem Veðurstofan styðst við til að miðla upplýsingum um virkni í eldstöðvakerfum á Íslandi.
Myndin hér fyrir neðan sýnir hvaða merki þurfa að koma fram svo hægt sé að lækka viðvörunarstigið. Þegar eldstöðin hefur verið færð niður á viðvörunarstig 0 er hægt að segja að eldgosahrinunni sé lokið

Þótt kvikusöfnun stöðvist í einhverja mánuði getur hún hafist á ný undir Svartsengi. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í áratugi eða aldir með hléum milli atburða. Langt hlé milli eldgosa er því ekki vísbending um að virkni sé lokið.
15. september 2026 kl. 15:24
Landris mælist áfram við Svartsengi
- Hægt landris mælist áfram við Svartsengi
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat er óbreytt
Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um fimm sentimetrar.
Landrisið bendir til þess að þrýstingur sé enn að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi.
Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin áfram að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.

Tímaraðir frá GPS-stöðinni SKSH sýna láréttar og lóðréttar færslur frá lokum júní til september 2026. Lóðrétta færslan sýnir að landris heldur áfram og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Smávægileg aukning hefur þó orðið á litlum skjálftum undanfarið, meðal annars í kvikuganginum. Dýpi skjálftanna hefur lítið breyst.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.
18. ágúst 2026 kl. 15:18
Landris og kvikusöfnun heldur áfram
- Landris við Svartsengi mælist áfram hægt en stöðugt
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat er óbreytt
Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi. Þróunin er áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að frá upphafi síðasta goss í júlí 2025 hafi um 29,1 milljón rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi. Óvissubilið er frá 28,3 til 29,9 milljónum rúmmetra.
Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur eykst í kerfinu er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Það gæti leitt til eldgoss. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður. Fyrirvari fyrri eldgosa hefur verið frá um 20 mínútum upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá 17. júlí 2025 til 16. ágúst 2026 sé um 29,1 milljón rúmmetra. Óvissubilið er frá 28,3 til 29,9 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum. Svörtu línurnar sýna 95% óvissubil.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.
21. júlí 2026 kl. 15:15
Landris og kvikusöfnun heldur áfram
- Landris við Svartsengi mælist áfram hægt en stöðugt
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat óbreytt
Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að kvikusöfnun undir Svartsengi frá upphafi síðasta goss, 16. júlí 2025, sé metin á 28,3 milljónir rúmmetra, með óvissubili frá 27,5 til 29,1 milljón rúmmetra. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Áætlað rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli kvikuhlaupa. Rauða súlan sýnir kvikusöfnun frá síðasta kvikuhlaupi, en brúnu súlurnar sýna fyrri tímabil. Matið byggist á líkanreikningum út frá aflögunarmælingum. Svörtu strikin sýna 95% óvissubil.
Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi séu á bilinu 27,5 - 29,1 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.
30. júní 2026 kl. 15:05
Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
- Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
- Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin
- Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september
Aflögun
Kvikusöfnun og landris heldur áfram við Svartsengi. Meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur.
Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin.
Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík er einnig áfram frekar lítil og með svipuðu móti og áður. Engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni síðustu vikurnar.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.
9. júní 2026 kl. 15:00
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
- Líkanreikningar benda til áframhaldandi kvikusöfnunar frá því um miðjan júlí 2025
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júní
Aflögun
Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi og þróunin mælist áfram stöðug. Nýjustu líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari um 27,5 milljónum rúmmetra.

Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari nú um 27,5 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.
Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Engin marktæk breyting hefur orðið á skjálftavirkninni frá síðustu uppfærslu.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

26. maí 2026 kl. 14:50
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Landris við Svartsengi mælist áfram stöðugt
- Um 26,6 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman frá 16. júlí 2025
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júní
Aflögun
Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram stöðug. Nýjustu líkanreikningar benda til þess að um 26,6 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast saman undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí 2025. Meðalhraði kvikusöfnunar síðustu fjórar vikur hefur haldist stöðugur.

Tímaraðir GPS-stöðvarinnar HS02 sýna láréttar og lóðréttar færslur frá sumri 2024 til maí 2026. Lóðrétti þátturinn bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.
Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Engin marktæk breyting hefur orðið á skjálftavirkninni frá síðustu uppfærslu.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

12. maí 2026 kl. 14:39
Landris og kvikusöfnun halda áfram undir Svartsengi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni eru áfram líklegasta sviðsmyndin
- Tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil á svæðinu
- Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júní
Aflögun
Enn eru skýr merki um aflögun við Svartsengi og landris heldur áfram. Aflögun nemur áfram um 2 cm á mánuði og er þróunin stöðug. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi mælast með svipuðu sniði og síðustu vikur. Samkvæmt líkanreikningum hafa tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí í fyrra.

Myndin sýnir kvikusöfnunartímabil á Sundhnúksgígaröðinni frá því í október 2023. Frá því í mars 2024 fram að eldgosinu í júlí 2025 höfðu kvikusöfnunartímabilin verið að lengjast. 280 dagar eru liðnir frá lokum goss þann 5. ágúst 2025.

Samanburður á reiknuðu rúmmáli kviku sem hefur safnast undir Svartsengi milli eldgosa frá nóvember 2023. Rauða súlan sýnir núverandi kvikusöfnunartímabil, frá 17. júlí 2025 til 10. maí 2026.
Jarðskjálftavirkni
Lítil smáskjálftavirkni mælist við Grindavík og á Sundhnúksgígaröðinni, líkt og undanfarna mánuði. Stærsti skjálfti síðustu vikna mældist 1,2 að stærð þann 11. maí milli Þorbjörns og Grindavíkur.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

28. apríl 2026 kl. 17:34
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin
- Rúmlega 25 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi
- Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á svæðinu
- Hættumat óbreytt og gildir til 30. júní
Aflögun
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa rúmlega 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí en aflögun nemur um 2 cm á mánuði.
Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.
Bylgjuvíxlmynd (InSAR), sem mælir smávægilegar yfirborðsbreytingar með því að bera saman gervihnattamyndir teknar á mismunandi tímum, barst í hús á dögunum. Myndin nær yfir allan Reykjanesskagann og sýnir áfram greinilegt landris við Svartsengi. Engin merki um aflögun sjást annars staðar á skaganum.

Gervitunglamynd sem spannar tímabilið 16. mars - 18. apríl 2026 og sýnir landris við Svartsengi. Hvítu útlínurnar sýna hraunin sem hafa myndast í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni.
Skjálftavirkni
Áfram mælist lítil skjálftavirkni við kvikuganginn en virðist þó hafa aukist lítillega síðustu tvær vikur. Flestir skjálftanna eru undir 1 að stærð.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni og verður hættumatið uppfært ef breytingar verða á virkninni.

14. apríl 2026 kl. 17:14
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin
- Um 25 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi
- Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á svæðinu
- Hættumat óbreytt og gildir til 30. júní
Aflögun
Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí á síðasta ári. Þetta er mesta magn sem mælst hefur frá upphafi eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni.

Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.
Skjálftavirkni
Skjálftavirkni hefur verið áfram lítil undanfarnar vikur við kvikuganginn, að jafnaði um tveir smáskjálftar á dag.
Í gær, þann 13. apríl, mældust þrettán smáskjálftar á um 10 km dýpi í Fagradalsfjalli en ekki hafa mælst yfir þrír skjálftar á dag í fjallinu síðustu mánuði.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni og verður hættumatið uppfært ef breytingar verða á virkninni.

31. mars 2026 kl. 17:21
Kvikumagn undir Svartsengi aldrei verið meira frá upphafi eldgosahrinunnar
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin
- Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu
- Hæg kvikusöfnun og langt goshlé þýða ekki að eldgosahrinunni sé lokið
- Hættumat óbreytt og gildir til 30. júní
Rúmlega 24 milljón rúmmetrar af kviku hafa nú safnast saman undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Líkanreikningar sýna að magn kviku í kvikuhólfinu undir Svartsengi hefur aldrei verið hærra eftir að eldgosahrinan hófst á Sundhnúksgígaröðinni í desember 2023.

Niðurstaða líkanreikninga sem meðal annars byggja á mælingum á landrisi sýna heildarrúmmál fyrir hvert kvikusöfnunartímabil við Svartsengi frá desember 2023. Appelsínugulu súlurnar sýna heildarrúmmál sem safnaðist milli kvikuhlaupa eða eldgosa. Rauða súlan táknar rúmmálið sem safnast hefur frá eldgosinu í júlí til dagsins í dag.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram eru kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin. Þar sem magn kviku undir Svartsengi er nú meira en áður er mögulegt að næsta eldgos geti orðið umfangsmeira en fyrri gos, nái kvikan að hluta til eða öllu leyti til yfirborðs.
Engin merki um að eldgosahrinunni sé að ljúka
Mikilvægt er að hafa í huga að hæg kvikusöfnun er ekki skýr vísbending um að ekki komi til eldgoss. Nærtækasta dæmið um slíkt er í eldgosahrinunni í Kröflu á árunum 1975-1984.

Mælingar á landhæð í Kröfluöskju frá 1974 til 1986 sýna endurtekið landris milli kvikuhlaupa og snöggt landsig við þau. Bláar brotalínur tákna kvikuhlaup og rauðar stjörnur eldgos. Þótt hægt hafi á kvikusöfnun undir lok Kröfluelda varð stærsta eldgos hrinunnar í ágúst 1984. Heimild: Björnsson og Eysteinsson (1998). https://gogn.orkustofnun.is/Skyrslur/OS-1998/OS-98002.pdf.
Grafið sýnir hegðun í Kröflueldum og mælingar á landhæð í Kröfluöskju á árunum 1974 til 1986. Frá árunum 1975 til 1984 urðu 12 kvikuhlaup (bláar línur) og 9 kvikuhlaup sem enduðu í eldgosi (rauðar stjörnur). Töluvert dró úr kvikuinnstreymishraða (sem mældist að meðaltali um 0,75 m3/s) fyrir síðasta, og jafnframt stærsta, eldgosið í þessari eldgosahrinu í ágúst árið 1984.
Á tímabilinu frá nóvember 1981 til ágúst 1984 dró verulega úr innstreymishraða kviku undir Kröflu. Þrátt fyrir hægan kvikusöfnunarhraða í tæp 3 ár varð að lokum eldgos í ágúst 1984 sem var jafnframt stærsta eldgosið í Kröflueldum. Í kjölfar síðasta eldgossins mældist áframhaldandi landris til ársins 1989 sem endaði ekki með eldgosi.
Þó svo að það sé eðlismunur á Kröflu og eldstöðvunum á Reykjanesskaga gefur samanburðurinn til kynna að kvikusöfnunin undir Svartsengi gæti haldið áfram í nokkur ár og möguleiki á nýju eldgosi sé áfram til staðar.
Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka og eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2 „Töluvert aukin virkni“ (appelsínugult) sem Veðurstofan gefur út.
Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinu sé lokið þurfa að koma fram skýr merki í mæligögnum yfir lengri tíma um ástand eldstöðvarinnar. Það endurspeglast í viðvörunarstigi eldstöðvarinnar.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða merki þurfa að sjást svo hægt sé að lækka viðvörunarstigið. Þegar eldstöðin hefur verið færð niður á viðvörunarstig 0 er hægt að segja að eldgosahrinunni sé lokið.

Mikilvægt er að hafa í huga að þó svo kvikusöfnun stöðvist í einhverja mánuði er möguleiki að hún hefjist á ný undir Svartsengi.
Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í áratugi eða aldir með hléum milli atburða. Langt hlé milli eldgosa er því ekki vísbending um að virkni sé lokið.
Hættumat óbreytt. Óvissa einkennir stöðuna
Líkanreikningar sem meðal annars byggja á mælingum á landrisi sýna að hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi hefur aldrei verið hægari. Það að kvikusöfnun hafi aldrei verið hægari og magn kviku undir Svartsengi hafi aldrei verið meira á milli eldgosa, eykur óvissuna um framvinduna á svæðinu. Ekki er hægt að segja til um hvenær kvikuhlaup eða eldgos verður og tímaramminn hleypur á mánuðum.
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júni nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvöktun Veðurstofunnar heldur því áfram að fylgjast náið með svæðinu og í ljósi stöðunnar þurfa íbúar og aðrir á svæðinu að vera viðbúnir því að gripið verði til rýminga með skömmum fyrirvara.

17. mars 2026 kl. 17:38
Kvikusöfnun undir Svartsengi orðin meira en 23 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin
- Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu
- Langt goshlé þýðir ekki að eldgosahrinunni sé lokið
- Veðurstofan vinnur að endurskoðun sviðsmynda
- Hættumat óbreytt og gildir til 31. mars
Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og síðustu vikur og er innstreymi af kviku hægt en stöðugt. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um yfir 23 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur aldrei verið meiri frá upphafi þessarar eldgoshrinu.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Þar sem magn kviku undir Svartsengi er nú meira en áður í þessari goshrinu er mögulegt að næsta eldgos geti orðið umfangsmeira en fyrri gos, nái kvikan að hluta til eða öllu leyti til yfirborðs. Líklegasta staðsetning gossprungu eða kvikuhlaups er á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells, þar sem fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni hafa komið fram. Þó gæti svæði þar sem hætta er á gosopnun verið víðara og náð frá Grindavík í suðri að svæði norðvestan við Keili.

Áætlað rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli kvikuhlaupa frá nóvember 2023, samkvæmt líkanreikningum. Brúnar súlur sýna kvikusöfnun fyrir fyrri atburði en rauða súlan núverandi söfnun. Svartar línur sýna óvissu í matinu.
Veðurstofan vinnur áfram að frekari greiningu á mögulegri framvindu eldvirkninnar og verða niðurstöður þeirrar vinnu kynntar í lok mars. Mikilvægt er að hafa í huga að langt goshlé þarf ekki að þýða að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé lokið.
Myndband af kvikusöfnun
Myndbandið sýnir líkanútreikninga á kvikusöfnun á 4 km dýpi undir Svartsengi frá 17. júlí. Svörtu punktarnir sýna daglega líkanútreikninga á uppsöfnuðu rúmmáli kviku frá júlí 2025 til dagsins í dag. Gula svæði grafsins sýnir neðri mörk rúmmáls samkvæmt líkaninu, sem náðust í byrjun október. Bláa svæði grafsins sýnir efri mörk rúmmáls, sem náðust um miðjan febrúar. Hraði kvikusöfnunar hefur verið breytilegur og því hafa dagsetningar efri og neðri marka færst til. Notast er við svokallað Mogi-líkan við útreikninginn.
Skjálftavirkni
Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni yfir kvikuganginum.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 31. mars. Veðurstofan fylgist náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.

3. mars 2026 kl. 16:32
Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast 23 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin
- Langt goshlé núna ekki skýr vísbending um að eldgosahrinunni sé lokið
- Veðurstofan vinnur að endurskoðun sviðsmynda
- Hættumat óbreytt og gildir til 31. mars.
Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og síðustu vikur; innstreymi af kviku er hægt en stöðugt. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra.
Unnið að endurskoðun á sviðsmyndum
Kvika hefur safnast undir Svartsengi í um 210 daga og er þetta lengsta samfellda kvikusöfnunartímabilið frá því að eldgosahrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst í desember 2023.
Haldi kvikusöfnun áfram á sama hraða má gera ráð fyrir að í næstu viku verði magn kviku sem safnast hefur frá síðasta gosi orðið það mesta sem á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinunnar.
Mikið magn kviku og lengd kvikusöfnunartímabilsins kallar á frekari rýni um hver möguleg framvinda eldvirkninnar verður. Veðurstofan vinnur að endurskoðun sviðsmynda um mögulega framvindu og verða þær kynntar á næstu vikum. Mikilvægt er að hafa í huga að langt goshlé núna er ekki skýr vísbending um að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé lokið.
Jarðskjálftavirkni
Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni yfir kvikuganginum. Dregið hefur úr skjálftavirkni við Víkur.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og hefur gildistíminn verið framlengdur til 31. mars. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.

17. febrúar 2026 kl. 17:23
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
- 22 milljón rúmmetrar hafa safnast frá síðasta gosi
- Rúmmál kviku sem hefur safnast er nú að nálgast það mesta sem mælst hefur frá upphafi atburðanna.
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni líklegasta sviðsmyndin
- Hættumat óbreytt og gildir til 3. mars.
Kvikusöfnun
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Þetta nálgast eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni, 18. desember 2023. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegasta sviðsmyndin næstu vikurnar kvikuhlaup frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Ef gýs er líklegast að eldgosið verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa orðið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni.
Skjálftavirkni
Lítil skjálftavirkni hefur mælst yfir kvikuganginum líkt og síðustu vikur. Áfram mælist smáskjálftavirkni í Víkum en sú virkni er túlkuð sem gikkskjálftavirkni vegna spennubreytinga á svæðinu.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 3. mars. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.

3. febrúar 2026 kl. 17:42
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
- Um 21 milljón rúmmetrar hafa safnast frá síðasta gosi
- Magn kviku undir Svartsengi hefur mest orðið 22.6 milljónir rúmmetra
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni líklegasta sviðsmyndin
- Engin merki um kvikusöfnun annars staðar á Reykjanesskaganum
- Hættamat óbreytt og gildistíminn framlengdur til 3. mars.
Kvikusöfnun
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú tæplega 21 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Magn kviku undir Svartsengi hefur mest orðið 22.6 milljónir rúmmetra.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin næstu vikurnar kvikuhlaup frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Ef gýs er líklegast að eldgosið verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa orðið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni.
Landris og skjálftavirkni á Reykjanesskaganum
Áfram mælist lítil skjálftavirkni við Svartsengi.
Þann 28.janúar var skjálftahrina við Lambafelli í Þrengslum, þar sem tæplega 200 skjálftar mældust. Alls hafa rúmlega 260 skjálftar mælst á svæðinu í síðustu viku. Stærst skjálftinn mældist M3 að stærð. Um er að ræða hefðbundna skjálftavirkni á svæðinu en síðast varð hrina við Lambafell í júlí 2024.
Bylgjuvíxlmynd (InSAR) tekin með gervihnetti, sem mælir smávægilegar yfirborðsbreytingar með því að bera saman myndir teknar á mismunandi tímum, barst í hús á dögunum. Myndin nær yfir allan Reykjanesskagann og sýnir að landris mælist ekki annars staðar á skaganum en við Svartsengi.

Gervitunglamynd sem spannar tímabilið 9. ágúst 2025 – 30. janúar 2026 og sýnir landris við Svartsengi.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er áfram óbreytt og hefur gildistíminn verið framlengdur til 3. mars. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.

20. janúar 2026 kl. 16:28
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
- Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni líklegasta sviðsmyndin
- Um 20 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast fyrir frá síðasta eldgosi
- Jarðskjálftavirkni áfram lítil á svæðinu
- Hættumat helst óbreytt til 3. febrúar, nema breytingar verði á virkninni
Kvikusöfnun
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú tæplega 20 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er kvikuhlaup úr Svartsengi og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni líklegasta sviðsmyndin næstu vikurnar. Ef til eldgoss kemur er líklegast að það verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa orðið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni.
Þegar litið er til baka frá upphafi kvikusöfnunar undir Svartsengi í nóvember 2023 þá hefur land risið um tæpan 1 metra samtals. Hraði landriss var mestur í upphafi en hefur dregist saman hægt og rólega með hverjum atburði.

Grafið sýnir mælingar frá GNSS-stöðinni NBJO frá nóvember 2023, þar má sjá heildarlandris frá upphafi atburða í Svartsengi. Stöðin er staðsett rétt norðaustan við Svartsengi.
Skjálftavirkni
Skjálftavirkni síðustu vikur hefur verið nokkuð stöðug og hafa skjálftar aðallega verið að mælast milli á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells, suður af Þorbirni og á Víkum. Skjálftarnir eru flestir undir M1,5 að stærð. Skjálftavirknin á Víkum er túlkuð sem gikkskjálftar vegna spennubreytinga á svæðinu. Áfram dregur úr virkni við Kleifarvatn.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er áfram óbreytt og gildir til 3. febrúar. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni.

6. janúar 2026 kl. 17:45
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
- Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
- Áfram auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi
- Jarðskjálftavirkni áfram lítil á svæðinu
- Hættumat helst óbreytt til 3. febrúar, nema breytingar verði á virkninni
Kvikusöfnun
Landris og kvikusöfnun í Svartsengi er áfram stöðug og með svipuðu móti og undanfarnar vikur. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú rúmlega 19 milljónir rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Áfram eru því auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi en óvissa um tímasetningu á næsta eldgosi hleypur á nokkrum mánuðum.

Niðurstaða líkanreikninga sem sýna heildarrúmmál fyrir hvert kvikusöfnunartímabil við Svartsengi frá desember 2023. Appelsínugulu súlurnar sýna heildarrúmmál sem safnaðist milli kvikuhlaupa eða eldgosa. Rauða súlan táknar rúmmálið sem safnast hefur frá eldgosinu í júlí til dagsins í dag. Gráa skyggða svæðið afmarkar rúmmálið sem hefur þurft að safnast undir Svartsengi til að koma af stað næsta atburði síðan í mars 2024.
Jarðskjálftavirkni
Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á svæðinu.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar er áfram óbreytt og gildir til 3. febrúar. Veðurstofan heldur áfram að fylgjast náið með þróuninni og uppfærir matið ef breytingar verða á virkninni.

23. desember 2025 kl. 17:47
Áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
Helstu atriði
- Kvikusöfnun áfram hæg en stöðug
- Á meðan að kvikusöfnun heldur áfram þarf að reikna með nýju eldgosi
- Óvissa um tímasetningu á næsta eldgosi er meiri þegar kvikusöfnun er hæg
- Hættumat helst óbreytt til 6. janúar, nema breytingar verði á virkninni
- Líkur á að slæm veðurskilyrði næstu daga hafi áhrif á næmni mælitækja
Kvikusöfnun áfram hæg en stöðug
Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Á meðan að kvikusöfnun er til staðar eru áfram auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi, en óvissa um tímasetningu á næsta eldgosi er meiri þegar kvikusöfnun er hæg. Óvissan um tímasetningu miðað við hraða kvikusöfnunar núna hleypur á nokkrum mánuðum.
Mælingar og líkanreikningar benda til þess að frá mars 2024 hafi það rúmmál kviku sem þarf til að valda kvikuhlaupi eða eldgosi aukist. Magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli eldgosa frá þeim tíma hefur verið á bilinu 17–23 milljónir rúmmetrar. Nú hafa rúmlega 18 milljónir rúmmetra bæst við kvikusöfnunarsvæðið frá síðasta eldgosi í júlí.

Niðurstaða líkanreikninga sem sýna heildar rúmmál fyrir hvert kvikusöfnunartímabil við Svartsengi frá desember 2023. Appelsínugulu súlurnar sýna heildarrúmmál sem safnaðist milli kvikuhlaupa eða eldgosa. Rauða súlan táknar rúmmálið sem safnast hefur frá eldgosinu í júlí til dagsins í dag. Gráa skyggða svæðið afmarkar rúmmálið sem hefur þurft að safnast undir Svartsengi til að koma af stað næsta atburði síðan í mars 2024.
Jarðskjálftavirkni lítil síðustu vikur
Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á svæðinu, einungis fimm jarðskjálftar hafa mælst síðustu tvær vikur og var stærsti skjálftinn 1,9 að stærð, staðsettur á milli Þorbjörns og Hagafells þann 17. desember.
Hættumat óbreytt
Hættumat Veðurstofunnar er áfram óbreytt og gildir til 6. janúar. Veðurstofan fylgist náið með þróuninni og uppfærir matið ef breytingar verða á virkninni.

Veðurskilyrði næstu daga geta haft áhrif á næmni mælitækja
Veðurspá á svæðinu næstu daga gerir ráð fyrir áframhaldandi sunnan hvassviðri á Reykjanesskaga með rigningu næstu 3 sólahringa. Þessi veðurskilyrði eru líkleg til að hafa áhrif á mælingar, sérstaklega hvað varðar skyggni og næmni ljósleiðara, jarðskjálfta- og rauntíma GPS-mælinga. Veðurstofan mun áfram fylgjast náið með þróuninni allan sólahringinn.
10. desember 2025 kl. 16:38
Kvikusöfnun áfram hæg en stöðug
Kvikusöfnun undir Svartsengi er með svipuðu sniði og verið hefur síðustu vikurnar. Í aðdraganda eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni hefur hraði kvikusöfnunar verið breytilegur. Sé litið til síðustu eldgosa sýna líkanreikningar að smám saman hefur dregið úr hraða innflæðis með hverju eldgosi. Hraðinn hefur þó haldist nokkuð stöðugur síðustu tvær vikur.
Á meðan kvikusöfnun heldur áfram eru áfram auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi, en óvissa um tímasetningu næsta eldgoss er meiri þegar kvikusöfnun er hæg. Óvissan um tímasetningu miðað við hraða kvikusöfnunar núna hleypur á nokkrum mánuðum.
Magn kviku sem safnast hefur frá síðasta eldgosi er það fimmta mesta hingað til
Mælingar og líkanreikningar sýna að frá því í mars 2024 virðist það magn kviku sem þarf til að koma af stað nýju kvikuhlaupi eða gosi hafa aukist miðað við fyrri atburði. Samkvæmt líkanreikningum hefur rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi á milli eldgosa frá því í mars 2024 verið breytilegt, á bilinu 17–23 milljónir rúmmetra.
Samkvæmt líkanreikningum hafa nú rúmlega 17 milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Það er svipað rúmmál og sást rétt fyrir eldgosið í maí 2024.

Niðurstöður líkanreikninga sýna heildarrúmmál fyrir hvert kvikusöfnunartímabil við Svartsengi frá desember 2023. Appelsínugulu súlurnar sýna heildarrúmmál sem safnaðist milli kvikuhlaupa eða eldgosa. Rauða súlan táknar rúmmálið sem safnast hefur frá eldgosinu í júlí til dagsins í dag. Gráa skyggða svæðið afmarkar rúmmálið sem hefur þurft að safnast undir Svartsengi til að koma af stað næsta atburði síðan í mars 2024.
Jarðskjálftavirkni lítil síðustu vikur
Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á svæðinu. Tólf smáskjálftar hafa mælst síðustu tvær vikur og voru þeir staðsettir milli Stóra-Skógfells og Grindavíkur.
Hættumat óbreytt
Hættumat Veðurstofunnar er áfram óbreytt og gildir til 6. janúar. Veðurstofan fylgist náið með þróuninni og uppfærir matið ef breytingar verða á virkninni.

Veðurskilyrði næstu daga geta haft áhrif á næmni mælitækja
Veðurspá á svæðinu næstu daga gerir ráð fyrir austan 15–23 m/s í fyrramálið, fimmtudag, með rigningu, en suðaustan 10–18 m/s og skúrum seinnipartinn á morgun. Á föstudag og um helgina verður áfram vindasamt og líkur á skúraveðri. Þessi veðurskilyrði geta haft áhrif á mælingar, sérstaklega hvað varðar skyggni og næmni ljósleiðara, jarðskjálfta- og rauntíma GPS-mælinga. Veðurstofan mun áfram fylgjast náið með þróuninni en fólk er hvatt til að fylgjast með veðurviðvörunum.
26. nóvember 2025 kl. 17:54
Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast
Helstu atriði
- Hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu tvær vikur
- Áfram auknar líkur á kvikuhlaupi og eldgosi næstu vikurnar
- Óvissan um tímasetningu á næsta eldgosi hleypur á nokkrum mánuðum
- Hættumat helst óbreytt til 9. desember, nema breytingar verði á virkninni.
Mat á líkum á nýju kvikuhlaupi og eldgosi út frá líkanreikningum
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Hraði kvikusöfnunar hefur haldist nokkuð stöðugur undanfarnar tvær vikur. Líkanreikningar gera ráð fyrir að á milli 16 og 17 milljón rúmmetrar af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí.
Magn kviku sem hljóp úr Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina í eldgosinu sem hófst 16. júlí var áætlað um 11 – 13 milljón m3. Miðað við reynslu af eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni er gert ráð fyrir að líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi aukist þegar um það bil jafn mikið magn af kviku hefur safnast aftur undir Svartsengi og hljóp þaðan í atburðinum á undan.
Í byrjun október sýndu líkanreikningar um 11 milljón m3 af kviku höfðu aftur bæst við söfnunarsvæðið undir Svartsengi. Þá hófst tímabil, sem stendur enn, þar sem gera þarf ráð fyrir auknum líkum á nýju kvikuhlaupi og eldgosi.
Hægari hraði kvikusöfnunar eykur óvissu í tímasetningu næsta atburðar
Í aðdraganda þeirra eldgosa sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni hefur hraði kvikusöfnunar verið breytilegur. Kvikuinnflæði í söfnunarsvæðið undir Svartsengi er nú áætlað um 1 m3/s, en sé litið til síðustu eldgosa sýna líkanreikningar að smám saman hefur dregið úr hraða innflæðis með hverju eldgosi. Því hægari sem kvikusöfnunin er því erfiðara er að áætla tímasetningu næsta eldgoss. Miðað við þekkingu á atburðunum á Sundhnúksgígaröðinni í dag er ekki hægt að meta með nákvæmni hvenær næsta eldgos verður, nema með óvissu sem nemur nokkrum mánuðum
Reynslan af síðustu atburðum hefur einnig sýnt að hraði söfnunarinnar þarf ekki að breytast mikið svo að tímasetning á næsta mögulega eldgosi breytist um nokkrar vikur. Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því töluverð og núverandi kvikusöfnunartímabil gæti dregist á langinn.
Ef horft er til eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni síðan í mars 2024 má sjá að það magn kviku sem þarf að safnast aftur undir Svartsengi til að koma af stað nýju kvikuhlaupi hefur verið mest um 23 milljónir m3. Ef reiknað er með að því magni þurfi að ná til að koma af stað nýju kvikuhlaupi verður því rúmmáli náð í byrjun febrúar 2026, ef hraði kvikusöfnunar helst óbreyttur, eins og sést á eftirfarandi grafi sem sýnir þróun kvikusöfnunar undir Svartsengi frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni.

Graf sem sýnir líkanútreikninga á kvikusöfnun á 4 km dýpi undir Svartsengi frá 17. júlí. Svörtu punktarnir sýna daglega líkanútreikninga á rúmmáli kviku frá júlí 2025 til dagsins í dag. Skyggða svæðið í framhaldi af punktunum táknar spá um kvikusöfnun miðað við að hraði kvikusöfnunar haldist óbreyttur. Gula svæði grafsins ræðst af „neðri“ og „efri“ mörkum rúmmáls í líkanútreikningunum og út frá því er það tímabil metið þar sem auknar líkur eru taldar á kvikuhlaupi og eldgosi „Mogi“ táknar heiti þess líkans sem stuðst er við í útreikningum.
Jarðskjálftavirkni við Svartsengi og Krýsuvík
Áfram mælist lítil skjálftavirkni við Svartsengi og Grindavík. Jarðskjálftavirkni við Krýsuvík heldur áfram að minnka og aflögunarmælingar sýna að landsig við Krýsuvík hefur nokkurn veginn stöðvast.
Hættumat
Hættumatskort hefur verið uppfært og helst óbreytt til 9. desember, þegar nýr samráðsfundur vísindamanna verður haldinn. Veðurstofan fylgist náið með þróuninni og uppfærir matið ef breytingar verða á virkninni.

Tvær breytingar hafa verið gerðar á framsetningu fyrir „Valin athugunarsvæði“ á kortinu. Nú eru notuð staðarheiti til að merkja svæðin, í stað númera og svæðin eru afmörkuð með brotalínum en ekki heilum línum.
11. nóvember 2025 kl. 16:24
Óbreytt hættumat á Reykjanesskaga
Helstu atriði
- Aflögun undir Svartsengi heldur áfram, þó hægar en áður
- Enn ríkir óvissa um tímasetningu næsta atburðar
- Hættumat er óbreytt og gildir til 25. nóvember, nema breytingar verði á virkninni
- Verulega hefur dregið úr jarðskjálftavirkni í Krýsuvík undanfarnar vikur
Aflögunarmælingar
Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi, þótt smám saman dragi úr hraða kvikuinnstreymis.
Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar sambærilegt magn kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta gosi. Magn kviku sem runnið hefur úr Svartsengi í eldsumbrotunum frá því í mars 2024 hefur verið breytilegt, á bilinu 12–31 milljón rúmmetra. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 15 milljónir rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Því er enn talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður.
Þar sem innflæðið fer minnkandi hefur tímaramminn á mögulegri tímasetningu næsta atburðar lengst. Meðfylgjandi graf sýnir að neðri mörkum rúmmálsins var náð í upphafi október. Efri mörkunum verður náð í fyrri hluta febrúar, miðað við að innflæði haldist óbreytt. Efri mörkin eru miðuð við 23 milljónir rúmmetra af kviku, sem er meðaltal af magni kviku sem hefur farið úr Svartsengi í síðustu fimm eldgosum.

Líkan af kvikusöfnun á 4 km dýpi undir Svartsengi frá 17. júlí. Svörtu punktarnir sýna daglega líkanreikninga á uppsöfnuðu rúmmáli kviku frá júlí 2025. Skyggða svæðið táknar spá um kvikusöfnun við stöðugan innflæðishraða, en rauða strikalínan sýnir mögulega þróun ef innflæðishraðinn heldur áfram að minnka. Rúmmálsmörkin 11 og 23 milljónir rúmmetra eru áætluð viðmið fyrir mögulegt kvikuhlaup eða eldgos.
Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálftar við Grindavík og á Sundhnúksgígaröðinni eru fáir og litlir. Flesta daga mælast aðeins fáeinir smáskjálftar sem eru um eða rétt yfir M1 að stærð.
Virkni nærri Krýsuvík
Aflögunarmælingar sýna að mjög hefur hægt á landsiginu sem hófst í Krýsuvík í sumar og aflögun er nú lítil sem engin á svæðinu.
Jarðskjálftar í Krýsuvík mælast enn nokkrir á dag, en virkni hefur dregist verulega saman. Heildarfjöldi skjálfta hefur farið úr 250 niður í 100–150 á viku. Þetta er í fyrsta sinn frá því í sumar sem skjálftamynstrið sýnir samfellda minnkun.
Hættumat
Hættumatskort hefur verið uppfært og gildir til 25. nóvember, nema breytingar verði á virkninni. Veðurstofan fylgist áfram grannt með þróuninni og uppfærir upplýsingar ef breytingar verða.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, útgefið 11. nóvember 2025 og gilt til 25. nóvember, nema breytingar verði á virkninni.
28. október 2025 kl. 16:20
Um 14 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi
Helstu atriði
- Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram.
- Magn kviku sem hefur farið úr Svartsengi í hverju kvikuhlaupi hefur verið á bilinu 12 til 31 milljón rúmmetrar
- Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því enn nokkur.
- Hættumat er óbreytt og gildir til 11. nóvember.
- Landsig heldur áfram nærri Krýsuvík en hægt hefur á því síðustu vikur.
Aflögunarmælingar
Um 14 milljónir rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi. Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta atburði. Ef horft er til eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni frá því í mars 2024 má sjá að það magn kviku sem hlaupið hefur úr Svartsengi í hvert skipti er nokkuð breytilegt eða frá 12 milljónum upp í 31 milljón rúmmetra. Því er óvissan um nákvæma tímasetningu á næsta atburði enn þó nokkur.
Jarðskjálftavirkni
Áfram er frekar lítil jarðskjálftavirkni við Grindavík og Sundhnúksgígaröðina og mælast þar stöku smáskjálftar um eða rétt yfir M1.0 að stærð. Flestir þeirra eru staðsettir milli Hagafells og Grindavíkur.
Skammvinn smáskjálftahrina varð á Sundhnúksgígaröðinni þann 11. október þegar rúmlega 20 jarðskjálftar mældust, en síðan þá hafa mest mælst fimm skjálftar á dag.
Virkni nærri Krýsuvík
Skjálftavirkni nærri Krýsuvík heldur áfram og mælist þar fjöldi smáskjálfta á hverjum degi. Þann 22. október urðu tveir skjálftar yfir M3 að stærð vestur af Kleifarvatni en þeir voru M3,1 og M3,6 að stærð. Þann dag mældust yfir 120 jarðskjálftar á svæðinu. Landsig heldur einnig áfram á svæðinu sem mælst hefur frá því í sumar og nemur nú um 55 mm á GPS stöðinni í Móhálsadal, vestan Kleifarvatns, síðan í byrjun júní. Þó hefur dregið úr hraða landsigsins síðustu vikur.
Hættumat
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og verður óbreytt til 11. nóvember nema ef virkni breytist.

14. október 2025 kl. 16:17
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
- Skammvinn smáskjálftahrina austan við Sýlingarfell á laugardagskvöld
- Aflögunarmælingar síðustu vikna sýna að landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi.
- Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því enn nokkur.
- Hættumat er óbreytt og gildir í tvær vikur að öllu óbreyttu.
Staðan núna
Skammvinn smáskjálftahrina mældist austan við Sýlingarfell á laugardagskvöld og stóð yfir í um klukkustund áður en hún fjaraði út. Ekki mældust markverðar breytingar á GPS-mælum, ljósleiðaragögnum eða þrýstingi í borholum í Svartsengi samhliða skjálftavirkninni.
Sambærilegar smáskjálftahrinur hafa áður mælst nokkrum vikum fyrir eldgos á Sundhnúksgígaröðinni, til dæmis fyrir eldgosin í maí og nóvember 2024. Aukin skjálftavirkni eins og þessi smáhrina er vísbending um að þrýstingur á kvikusöfnunarsvæðinu sé að aukast, þó er áfram óvissa um nákvæma tímasetningu á næsta atburð.
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Aflögunarmælingar síðustu vikna sýna að landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Sé horft á hraða landrissins yfir nokkurra vikna tímabil má sjá vísbendingar um að lítillega hafi dregið úr hraða þess. Frá síðasta eldgosi, sem hófst 16. júlí, hafa á milli 12 og 13 milljónir rúmmetra af kviku bæst aftur við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi.
Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta atburði. Magnið sem hljóp úr kvikusöfnunarsvæðinu í því gosi er áætlað um 11-13 milljónir rúmmetra. Neðri mörkum þess rúmmáls var náð um síðustu mánaðamót.
Greining fyrri atburða hefur gert Veðurstofunni kleift að áætla á hvað bili rúmmál kvikusöfnunar liggur til að koma af stað næsta kvikuhlaupi eða eldgosi. Efri mörk þess bils eru áætluð um 23 milljónir rúmmetra og samkvæmt líkanreikningum verður því rúmmáli náð í lok desember, að því gefnu að hraði kvikusöfnunar haldist óbreyttur. Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því enn talsverð.
Jarðskjálftavirkni og landsig nærri Krýsuvík
Skjálftavirkni nærri Krýsuvík heldur áfram og mælist þar fjöldi smáskjálfta á hverjum degi. Landsig heldur einnig áfram á svæðinu sem mælst hefur frá því í sumar og nemur nú um 50 mm á GPS-stöðinni í Móhálsadal síðan í byrjun júní.

Færslur á GNSS-stöðinni MOHA í Móhálsadal undanfarið ár í norður, austur og lóðrétt (efst, miðja, neðst). Neðsti ferillinn sýnir landsig í millimetrum, og mælingin í gær (13. október) er sýnd með grænum punkti.
Hættumat
Hættumatskort hefur verið uppfært og helst óbreytt til 28. október nema virkni breytist.
Frekari upplýsingar og útskýringar á hættumatskortinu eru aðgengilegar á vef Veðurstofunnar um hættumatskort.

Veðurstofan er með sólarhringsvöktun á allri náttúruvá á Íslandi.
- Rauntímaeftirlit
- Viðvaranir gefnar út ef ástæða er til
- Upplýsingar um virkni birtar í fréttum á vedur.is
- Upplýsingum er miðlað á daglegum stöðufundum til hag- og viðbragðsaðila.
- Vikulegar skýrslur: staða eldfjalla tekin saman og send til hagaðila.
Ítarlegar upplýsingar um eldstöðvarkerfi má finna í Eldfjallavefsjánni.

Sólarhringsvakt Veðurstofunnar
25. september 2025 kl. 16:13
Komin inn í tímabil þar sem auknar líkur eru á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
- Auknar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi frá 27. september
- Viðvörunarstig hækkað
- Nýtt hættumatskort gefið út
Þegar atburðir sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023 eru skoðaðir kemur í ljós að magn kviku sem þarf að safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi áður en kvikuhlaup eða gos hefst getur verið mismikið.
Greining fyrri atburða hefur gert Veðurstofunni kleift að áætla á hvað bili rúmmál kvikusöfnunar liggur til að koma af stað næsta kvikuhlaupi eða eldgosi.
Staðan núna og mat næstu vikna
Með líkanreikningum, sem byggja á aflögunarmælingum, er hægt að áætla hvenær þessu kvikumagni verður náð, ásamt óvissu í útreikningunum, að því gefnu að hraði kvikusöfnunar haldist óbreyttur.
- Neðri mörk: 11 milljón rúmmetrar verður náð 27. september
- Efri mörk: 23 milljónir rúmmetra verður náð í kringum 18. desember
Þegar neðri mörkum hefur verið náð telst svæðið komið inn í tímabil þar sem auknar líkur eru á kvikuhlaupi eða gosi á Sundhnúksgígaröðinni. Tímabilið spannar hátt í þrjá mánuði og gos getur hafist hvenær sem er á tímabilinu.
Matið verður endurskoðað ef breyting verður á kvikuinnstreymi eða ef rauntímamælingar Veðurstofunnar sýna skýr merki um kvikuhlaup.

Línuritið sýnir þróun kvikusöfnunar á 4 km dýpi undir Svartsengi frá júlí til 18. desember 2025. Svörtu punktarnir sýna útreiknað kvikumagn eftir síðasta gos en rauðu punktarnir kvikusöfnun meðan gos var í gangi.
Líklegasti upptakastaður eldgoss áfram sá sami
Líkt og í fyrri atburðum verður gefin út sérstök viðvörun um leið og mælingar benda skýrt til kvikuhlaups. Ef til eldgoss kæmi er líklegasti upptakastaðurinn áfram talinn vera á milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells. Merki um að eldgos sé yfirvofandi er smáskjálftavirkni og merki um skarpa breytingu í aflögun sem sést á ljósleiðara og GPS mælum sem og breyting á þrýstingi í borholum. Reikna þarf með að fyrirvari á eldgosi verði stuttur líkt og í fyrri atburðum, en þá hefur fyrirvarinn verið frá 20 mínútum upp í rúma 4 tíma.
Viðvörunarstig hækkað og uppfært hættumatskort
Af þessum ástæðum hefur Veðurstofan ákveðið að hækka viðvörunarstig fyrir Reykjanes–Svartsengi úr VALS=1 í VALS=2 (Volcanic Alert Level System). Í kjölfarið hefur hættumat fyrir svæðið verið endurmetið og hækkað, og nýtt hættumatskort gefið út.

Nýtt hættumatskort hefur verið gefið út og gildir frá 25. september til 14. október, nema breytingar á virkni kalli á annað
Hvað er VALS?
Veðurstofan heldur utan um viðvörunarstig eldfjalla á Íslandi sem kallast VALS – Volcanic Alert Level System. Það hefur fjögur stig:

Viðvörunarstig eldfjalla samkvæmt VALS, Volcanic Alert Level System, sem Veðurstofa Íslands notar til að lýsa ástandi eldstöðva.
Frekari upplýsingar um VALS eru hér: https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/haettumatskort/
23. september 2025 kl. 16:09
Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
Rúmmálið nálgast það magn sem hljóp þaðan í síðasta atburði
- Um 10 milljónir rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi
- Magnið sem hljóp úr Svartsengi í síðasta eldgosi var áætlað um 11-13 milljónir rúmmetra. Neðri mörkum þessa rúmmáls náð um helgina
- Hættumat óbreytt en verður endurmetið á fimmtudag
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og hefur verið á stöðugum hraða undanfarnar vikur. Frá síðasta eldgosi sem hófst 16. júlí hafa um 10 milljónir rúmmetra af kviku bæst aftur við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi.
Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta atburði. Magnið sem hljóp úr kvikusöfnunarsvæðinu í því gosi er áætlað um 11-13 milljónir rúmmetra. Ef söfnunarhraðinn helst óbreyttur, verður neðri mörkum þess rúmmáls náð um helgina.
Vegna þess, verður hættumat óbreytt þar til þessum neðri mörkum verður náð og verður það næst uppfært á fimmtudaginn 25. september.
Reynslan sýnir þó að mörkin á því hvenær atburður hefst eru breytileg á milli gosa. Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því töluverð og núverandi kvikusöfnunartímabil getur dregist á langinn.
Áfram jarðskjálftavirkni og landsig vestan við Kleifarvatn
Jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina er áfram mjög lítil og mælast þar stöku smáskjálftar undir M1.0 að stærð.
Jarðskjálftavirkni við Kleifarvatn og vestan þess heldur áfram og mælast nokkrir tugir skjálfta þar flesta daga. Meirihluti skjálftanna er smáskjálftar undir M2.0 að stærð. Landsig sem mælist vestan Kleifarvatns mælist áfram á stöðugum hraða.

16. september 2025 kl. 16:07
Hættumat óbreytt en verður endurmetið að viku liðinni
- Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
- Um 9 milljónir rúmmetra kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi
- Líkurnar á nýjum atburði aukast þegar um 11 milljónir rúmmetra hafa safnast saman sem næst í lok september. Þó er áfram töluverð óvissa.
- Hættumatskortið helst óbreytt en verður endurskoðað í næstu viku
Landris og kvikusöfnun
Mælingar sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og undanfarið. Niðurstöður líkanreikninga áætla að um 9 milljónir rúmmetra kviku hafi safnast frá síðasta eldgosi sem hófst 16. júlí og endaði 5. ágúst. Magnið sem hljóp úr kvikusöfnunarsvæðinu í því gosi var áætlað um 11-13 milljónir rúmmetra.
Líkur á nýju gosi
Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta atburði. Ef söfnunarhraðinn helst óbreyttur verður þessu magni náð í seinni hluta þessa mánaðar, líkt og kom fram við síðustu uppfærslu hættumatskorts. Reynslan sýnir þó að mörkin á því hvenær atburður hefst eru breytileg á milli gosa. Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því töluverð og núverandi kvikusöfnunartímabil getur dregist á langinn.
Hættumat
Hættumatskort verður að þessu sinni óbreytt í eina viku. Í ljósi þess að sama magn af kviku og fór út í síðasta gosi verði náð í lok september mun hættumatskortið vera endurskoðað í næstu viku.

4. september 2025 kl. 16:02
Talsverð óvissa um tímasetningu á næsta mögulega gosi á Sundhnúksgígaröðinni
- Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
- Um 6 til 7 milljónir rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi
- Gert er ráð fyrir að þegar um 12 milljónir rúmmetrar hafi safnast saman aukist líkurnar á nýjum atburði
- Ef hraði kvikusöfnunar helst áfram stöðugur fara líkur á nýjum atburði að aukast í seinni hluta september
- Nýtt hættumat gildir til 16. september
- Áfram talin nokkur hætta á og við nýju hraunbreiðuna
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram og hefur hraði söfnunarinnar verið stöðugur undanfarið. Niðurstöður líkanreikninga áætla að nú hafi safnast um 6 til 7 milljón rúmmetrar af kviku undir Svartsengi frá síðasta gosi sem hófst 16. júlí. Það magn kviku sem hljóp úr kvikusöfnunarsvæðinu undir Svartsengi í því eldgosi er áætlað um 12 milljón rúmmetrar.
Miðað við reynslu af eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni er gert ráð fyrir að líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi aukist þegar um það bil jafn mikið magn af kviku hefur safnast aftur undir Svartsengi og hljóp þaðan í atburðinum á undan. Ef horft er til síðasta atburðar þýðir þetta að þegar 12 milljón rúmmetrar hafi bæst við undir Svartsengi ættu líkur á nýjum atburði að aukast. Þessu rúmmáli verður náð í seinni hluta september ef hraði kvikusöfnunar helst áfram stöðugur.
Reikna þarf með nýju eldgosi en óvissa um mögulega tímasetningu á því er töluverð
Það sem er samt mikilvægt að hafa í huga er að ef horft er til eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni frá því í mars 2024 má sjá að það magn kviku sem hlaupið hefur úr Svartsengi í hvert skipti er nokkuð breytilegt eða frá 12 milljónum upp í 31 milljón rúmmetra. Óvarlegt er því að gera ráð fyrir að næsti atburður hagi sér eins og sá síðasti. Gera þarf ráð fyrir því að síðasti atburður gæti hafa verið óvenjulegur í þessari röð eldgosa sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni hvað varðar það magn kviku sem þurfti að safnast saman undir Svartsengi til að koma að stað eldgosi. Reynslan af síðustu atburðum hefur einnig sýnt að hraði söfnunarinnar þarf ekki að breytast mikið svo að tímasetning á næsta mögulega eldgosi breytist um nokkrar vikur. Óvissan í tímasetningu á næsta atburði er því töluverð og núverandi kvikusöfnunartímabil getur dregist á langinn.

Myndin sýnir kvikusöfnunartímabil á Sundhnúksgígaröðinni frá því í október 2023. Frá því í mars 2024 fram að eldgosinu í júlí 2025 höfðu kvikusöfnunartímabilin verið að lengjast.
Vöktun og viðbragð miðast við að eldgos gæti hafist hvenær sem er
Líkanreikningar Veðurstofunnar gefa ákveðna vísbendingu um hvenær líkur aukast á næsta atburði, en vöktun og viðbragðsáætlanir miða við það að eldgos gæti hafist hvenær sem er.
Ef til eldgoss kæmi er líklegasti upptakastaðurinn á milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells. Merki um að eldgos sé yfirvofandi er smáskjálftavirkni og merki um skarpa breytingu í aflögun sem sést á ljósleiðara og GPS mælum sem og breyting á þrýstingi í borholum. Reikna þarf með að fyrirvari á eldgosi verði stuttur líkt og í fyrri atburðum, en þá hefur fyrirvarinn verið frá 20 mínútum upp í rúma 4 tíma.
Áfram talin nokkur hætta á og við nýju hraunbreiðuna
Hættumat hefur verið uppfært og gildir til 16. september nema ef breyting verður á virkninni.
Breytingin frá fyrra hættumati er sú að stærð svæðis C, Vogar hefur verið breytt. Þar af leiðandi er hætta af jarðfalli ofan í sprungur ekki lengur tilgreind fyrir þetta svæði. Nýja hraunbreiðan er áfram í flokknum nokkur hætta (gulur litur).

Áfram unnið að greiningu og túlkun virkni í Krýsuvík
Skjálftavirkni heldur áfram vestur af Kleifarvatni en Krýsuvík og nærliggjandi svæði eru sögulega þekkt fyrir jarðskjálftavirkni en virknin síðustu misseri tengist einkum gikkskjálftum vegna kvikuinnskotanna undir Fagradalsfjalli og Sundhnúk. Í Krýsuvík mælist nú landsig. Svæðið hefur áður sýnt sveiflur þar sem land rís eða sígur, sem tengjast jarðhitakerfinu og mögulega kvikuhreyfingum neðanjarðar, en eftir að eldgos hófust við Svartsengi 2023 hefur sigið orðið hraðara en áður hefur mælst. Unnið er að frekari greiningu á virkninni, en engin gögn benda til þess að kvika sé að færast nær yfirborði í Krýsuvík.
19. ágúst 2025 kl. 15:57
Skjálfti í Brennisteinsfjöllum – hraðara sig í Krýsuvík og áframhaldandi kvikusöfnun í Svartsengi
- Innistæða fyrir stærri skjálfta í Brennisteinsfjöllum
- Aflögun mælist á Krýsuvíkursvæðinu
- Áframhaldandi landris við Svartsengi
- Hættumatskort uppfært
Jarðskjálfti varð í Brennisteinsfjöllum laust eftir klukkan 18 í gær. Hann mældist um 3,8 að stærð og fannst á höfuðborgarsvæðinu. Brennisteinsfjöll eru virkt jarðskjálftasvæði. Frá því umbrotin hófust á Reykjanesskaga árið 2020 hefur orðið vart við aukna skjálftavirkni þar, sem bendir til aukinnar spennusöfnunar í jarðskorpunni.
Sterkir jarðskjálftar hafa orðið á svæðinu með löngu millibili, en óvíst er hvenær þeir verða næst. Síðustu skjálftar af þeirri stærðargráðu voru M6,4 árið 1929 og M6,1 árið 1968. Síðan þá hafa kröfur um jarðskjálftaþol bygginga aukist.
Skjálftar af þessari stærð geta meðal annars valdið grjóthruni úr bröttum hlíðum og því að innanstokksmunir hreyfast eða falla. Þótt sjaldgæft sé að fólk slasist í jarðskjálftum hér á landi geta lausamunir valdið slysum.
Mikilvægt er að huga reglulega að forvörnum á jarðskjálftasvæðum. Festa ætti lausamuni sem geta fallið og gæta þess að þungir hlutir séu ekki yfir rúmum. Einnig er gott að rifja upp leiðbeiningar um viðbrögð í jarðskjálftum.

Upptök skjálfta í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi. Hann mældist 3,8 að stærð og fannst víða á höfuðborgarsvæðinu.
Talsverð skjálftavirkni hefur verið vestur af Kleifarvatni. Krýsuvík og nærliggjandi svæði eru þekkt fyrir jarðskjálftavirkni, en virknin síðustu misseri tengist einkum gikkskjálftum vegna kvikuinnskota undir Fagradalsfjalli og Sundhnúk.
Í Krýsuvík hafa mælst breytingar á landrisi og sigi. Svæðið hefur áður sýnt slíkar sveiflur, en nú virðist aflögunin hraðari en áður. Enn er ekki komin fram einhlít skýring og frekari greiningar standa yfir.
Sérfræðingar fylgjast grannt með ástandinu. Gögn eru metin daglega og niðurstöðum miðlað eftir þörfum.
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og hefur náð svipuðum hraða og fyrir síðasta gos. Engin skjálftavirkni hefur mælst á svæðinu síðan gosið hófst.

Myndin sýnir mælingar á lóðréttri hreyfingu jarðskorpunnar við GPS-mælistöðina KRIV í Krýsuvík frá árinu 2020. Fyrstu árin reis landið jafnt og þétt, en frá haustinu 2023 hefur það sigið. Sighraðinn hefur aukist.
Á ferlinum sjást sveiflur sem geta tengst kvikuhreyfingum neðanjarðar. Frá síðasta sumri hefur aukin skjálftavirkni fylgt siginu á svæðinu. Kvikuhreyfingar geta valdið spennubreytingum í jarðskorpunni og komið af stað jarðskjálftum.
Til samanburðar eru notaðar InSAR-gervihnattamyndir. Með því að bera saman ratsjármyndir teknar á mismunandi tímum má greina smávægilegar breytingar á yfirborði lands. Þær sýna sömu þróun og GPS-mælingarnar.
Hættumat
Hættumatskort fyrir svæðið hefur verið uppfært og gildir til 2. september 2025, nema breytingar verði á virkninni. Helsta breytingin er sú að nýja hraunbreiðan hefur verið færð í flokkinn nokkur hætta (gulur litur), líkt og eldri hraun.


