Fara á forsíðu
Viðvaranir

Hættumat fyrir Reykjanesskaga

Hættumat fyrir Reykjanesskaga

Efnisyfirlit

Nýjasta matið gildir til 5. janúar 2027

Hættumatskortið gildir frá 30. september 2026 og verður uppfært næst 5. janúar 2027, nema breytingar á virkni kalli á nýja útgáfu.

Hættumatskort frá Veðurstofu Íslands sem sýnir mat á hættu vegna áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi. Kortið nær yfir vestanverðan Reykjanesskaga frá Reykjanesi að Vogum. Mesta hættan er á afmörkuðu belti sem liggur frá Grindavík í gegnum Svartsengi og áfram norðaustur eftir Sundhnúksgígaröð

Líklegasta sviðsmyndin

  • Áframhaldandi hæg kvikusöfnun undir Svartsengi, sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni, er líklegasta sviðsmyndin.
  • Áhrif atburða í þessari sviðsmynd ráðast af því hvar á kvikuganginum ein eða fleiri gossprungur opnast og hversu mikil kvika nær yfirborði.
  • Svæðið þar sem gossprungur gætu opnast er um 20 km langt og nær frá Grindavík í suðri að svæði norðvestan við Keili.
  • Aðdragandi eldgoss getur verið stuttur, mögulega innan við klukkustund frá því að fyrstu merki greinast þar til kvika nær yfirborði. Ekki er hægt að reikna með skýrum merkjum dagana fyrir gos.

Fyrirvari um eldgos

  • Fyrirvari um eldgos ræðst af því hversu skýr merki sjást á mælitækjum og hvar á Sundhnúksgígaröðinni gossprungur opnast.
  • Gosið 18. desember 2023 hófst um einni og hálfri klukkustund eftir að fyrstu merki sáust á mælitækjum. Frá fyrstu merkjum um kvikuhlaup þar til gossprunga opnaðist liðu um 4 klukkustundir og 40 mínútur í atburðinum 14. janúar 2024 og um 3 klukkustundir og 12 mínútur í atburðinum 1. apríl 2025. Í báðum þeim atburðum kom kvika upp innan varnargarða.
  • Mikill vindur hamlar vöktun jarðskjálfta og slæmt skyggni gerir erfiðara að greina nákvæmlega hvar gossprunga opnast. Vöktun þrýstingsbreytinga í borholum og skjálftavirkni með ljósleiðara er ekki háð veðri. Vöktun með ljósleiðara er enn í þróun.
  • Langur tími frá síðasta atburði og mikið magn kviku undir Svartsengi auka óvissu um þróun og eðli næsta mögulega atburðar. Eldgos getur orðið stærra en þau sem orðið hafa hingað til og áhrif kvikuhlaups sem ekki nær til yfirborðs geta orðið meiri.

Vægi hættuþáttanna sjö í heildar hættumati

Hættumat Veðurstofunnar byggir á samanlögðu mati á sjö hættuþáttum: jarðskjálftum, jarðfalli ofan í sprungu, sprunguhreyfingum, gosopnun, hraunflæði, gjóskufalli og gasmengun. 

Hér fyrir neðan er hægt að skoða hvert vægi hvers hættuþáttar er á mismunandi stöðum á svæðinu. Kortin veita þannig nánari innsýn í þær forsendur sem liggja að baki útreikningi á heildarhættu.

Hættuvægi - Jarðskjálftar

Kort frá Veðurstofu Íslands en einnig byggt á gögnum frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands sem sýnir vægi mats á jarðskjálftahættu á Reykjanesskaga fyrir tímabilið 30. september 2026 til 5. janúar 2027. Mesta vægið fyrir jarðskjálftahættu er á og við Sundhnúksgígaröð milli Grindavíkur og Svartsengis og nær einnig yfir svæði við Reykjanesvirkjun og hluta af eldstöðvakerfinu austar.

Hættuvægi - Jarðfall ofan í sprungu

Kort af Reykjanesskaga sem sýnir hættuvægi jarðfalls ofan í sprungur á tímabilinu 30. september 2026 til 5. janúar 2027. Hættusvæði eru merkt með lituðum línum á sprungusvæðum, einkum við Grindavík, Svartsengi, Sundhnúksgígaröð, Fagradalsfjall og Reykjanes.

Hættuvægi - Sprunguhreyfingar

alt=""

Hættuvægi - Gosopnun

alt=""

Hættuvægi - Hraun

alt=""

Hættuvægi - Gjóskufall

alt=""

Hættuvægi - Gasmengun

alt=""

Nánar um hættumatið

Hættumatið er byggt á samtúlkun gagna sem lágu fyrir á útgáfudegi kortsins, s.s. þekktri jarðfræði, beinum athugunum á landi og úr gervitunglum, niðurstöðum líkanreikninga og veðurspám.

Tekið er tillit til áhrifa varnargarða í hættu vegna „hraunflæðis“ og við mat á hættu vegna „jarðfalls ofan í sprungu“ innan Grindavíkur er tekið tillit til áhrifa sprunguviðgerða.

Hættumatskortið tekur ekki tillit til þeirrar áhættu sem felst í því að fara inn á svæðin sem eru tilgreind og bendir Veðurstofan á áhættumat almannavarna fyrir Grindavík og tilmæli lögreglustjórans á Suðurnesjum.



— Nýjasta matið gildir til 5. janúar 2027

— Líklegasta sviðsmyndin

— Fyrirvari um eldgos

Vægi hættuþáttanna sjö í heildar hættumati

Nánar um hættumatið