Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Vinda- og vætusamt næstu daga

24.11.2026

Vinda- og vætusamt næstu daga

Lægð á Grænlandshafi og hæð yfir Noregi beina til okkar suðaustlægri átt, allhvass vindur eða strekkingur nú í morgunsárið og víða skúrir en samfelld rigning austantil á landinu. Hiti 4 til 9 stig. Í dag dregur smám saman úr vindi og eftir hádegi kólnar vestanlands með dálitlum slydduéljum.

Á morgun nálgast skil utan af Grænlandshafi og það fer aftur að blása suðvestan- og vestantil með einhverri vætu. Á Austurlandi má einnig búast við strekkingi og súld eða rigningu, en í öðrum landshlutum verður vindur hægari og yfirleitt þurrt. Hiti víða 0 til 7 stig. Annað kvöld ganga skilin inn á land með allhvassri eða hvassri suðaustanátt og rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Á þeim slóðum geta því skapast varasamar aðstæður til ferðalaga fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, en vestantil á landinu fer veðrið að ganga niður undir miðnætti.

Á fimmtudag nálgast svo djúp lægð úr suðri með vaxandi suðaustanátt og vætusömu veðri. Samkvæmt nýjustu spám verður úrhellisrigning á Suðausturlandi og Austfjörðum og auk þess má búast við hvassviðri eða stormi víða um land þegar líður á seinnipartinn. Þeir sem hyggja á ferðalög ættu því að kynna sér veðurspár og hugsanlegar viðvaranir þegar nær dregur.