16.10.2026
Athugið
Úrkoma samfara leysingum á vestanverðu landinu
- Leysingar á norðan- og vestanverðu landinu
- Gul skriðuviðvörun gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði
Tvær lægðir nálgast nú landið úr suðvestri. Sú fyrri gengur upp með austurströnd Grænlands og mun áhrifa hennar gæta síðdegis laugardaginn 17. október, en sú síðari mun fara meðfram vesturströnd landsins að morgni sunnudagsins 18. október. Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum.
Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Einkum má búast við mikilli úrkomu á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og með suðurströndinni í grennd við jökla. Á sumum svæðum getur uppsöfnuð úrkoma orðið mjög mikil á tímabilinu, þó einkum í grennd við jökla.
Á miðvikudag kom djúp lægð upp að austanverðu landinu sem bar með sér mikla rigningu í fyrstu, en síðar snjókomu á láglendi á vestan- og norðanverðu landinu. Víða hefur snjó leyst á láglendi og upp í miðjar hlíðar, en enn er snjór til fjalla, þó mismikill eftir landshlutum. Búast má við að leysingar verði áberandi á vestan- og norðanverðu landinu fram á mánudag.
Á Vestfjörðum, Ströndum og Snæfellsnesi mun rigna ofan í snjóinn sem féll til fjalla. Við slíkar aðstæður getur jarðvegur orðið mettaður sem getur valdið skriðum eða grjóthruni. Því má búast við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum. Skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum með litlum sem engum fyrirvara og valdið röskun á umferð. Að svo stöddu er ekki talin vera hætta í byggð.
Ákveðið hefur verið að gefa út skriðuviðvörun vegna leysinga og úrkomu fyrir Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði. Ekki er hægt að útiloka grjóthrun eða minni skriður í bröttum hlíðum utan svæðana sem búið er að gefa út viðvörun ef staðbundin úrkoma gæti orðið mikil og leysingar kröftugar.
Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist vel með þróun mála yfir helgina.

Spáin gerir ráð fyrir þónokkurri uppsafnaðri úrkomu og leysingum á næstu sólarhringum. Mest í kringum jöklana en einnig á Sunnan- og Norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.