Úrkoma og leysingar á þriðjudag, 27. október

26.10.2026

Úrkoma og leysingar á þriðjudag, 27. október

  • Úrkoma og leysingar á þriðjudag.
  • Aukið afrennsli úr hlíðum og vatnsrennsli í ám og lækjum.
  • Ekki er hægt að útiloka grjóthrun og grunnar skriður. Sýnið aðgát undir bröttum hlíðum.

Veðurspáin gerir ráð fyrir úrkomuskilum sem ganga yfir landið frá aðfaranótt þriðjudags, 27. október. Úrkoman byrjar á Suðausturlandi og nær síðan yfir mestallt landið. Mesta úrkomuákefðin verður við og sunnan Vatnajökuls, á Austfjörðum, á Flateyjarskaga og á Ströndum. Skilin ganga fremur hratt yfir landið og á miðvikudag styttir upp. Mesta uppsafnaða úrkomu samkvæmt veðurspánni er að vænta á Ströndum, einkum á jöklum og til fjalla, nyrst á Tröllaskaga, á Flateyjarskaga, á Vesturkinn (fjöllum austan Vopnafjarðar), á norðanverðum Austfjörðum og á Öræfum.

Myndin sýnir uppsafnaða úrkomu á Íslandi næstu 72 klukkustundir, til 29. oktober 2026. Mesta uppsafnaða úrkomu samkvæmt veðurspánni er að vænta á Ströndum, einkum á jöklum og til fjalla, nyrst á Tröllaskaga, á Flateyjarskaga, á Vesturkinn (fjöllum austan Vopnafjarðar), á norðanverðum Austfjörðum og á Öræfum.

Uppsöfnuð úrkoma frá mánudeginum 26. október fram á fimmtudags 29. október (72 klst).

Úrkoman verður í formi rigningar á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Þar sem snjór er þegar til staðar, meðal annars á Norðurlandi, munu leysingar samfara úrkomunni auka vatnsmagn sem þarf að skila sér frá fjallshlíðum. Auk þess hefur verið úrkomusamt undanfarna daga.

Búast má því við auknu vatnsrennsli í ám og lækjum og auknu afrennsli úr hlíðum. Ekki er hægt að útiloka hreyfingar í hlíðum, svo sem grjóthrun og grunnar skriður. Eins og staðan er nú er ekki talin hætta á ofanflóðum í byggð. Þó er mikilvægt að sýna aðgát á ferðalögum, sérstaklega þar sem farið er undir bröttum hlíðum.

Skriðuvakt Veðurstofunnar hvetur fólk sem þarf að vera á ferðinni að sýna aðgát á vegum, sérstaklega undir bröttum hlíðum og á þekktum grjóthrunssvæðum, og fylgjast vel með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.