Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Stíf suðlæg átt með vætu næstu daga

21.11.2026

Stíf suðlæg átt með vætu næstu daga

Hæð fyrir austan land og lágur þrýstingur suðvestan og vestan við landið munu valda stífri suðlægri átt hjá okkur næstu daga. Búast má við úrkomusömu veðri, en lítil eða engin úrkoma norðan- og norðaustanlands.


Í dag er spáð suðaustan og austan 10-18 m/s sunnan- og vestanlands og sums staðar dálítil rigning eða slydda. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi með þurru veðri og frosti.

Suðaustan 15-23 (hvassviðri eða stormur) í kvöld á Suður- og Vesturlandi með slyddu og síðar rigningu og hlýnandi veðri.


Í nótt og framan af morgundegi verður áfram suðaustan hvassviðri eða stormur með rigningu, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Það hefur hlýnað og hiti 5 til 10 stig á morgun. Spár gera ráð fyrir að seinnipartinn muni draga úr vindi og það lægi svo um munar á vestanverðu landinu. Rigningin mun þó væntanlega halda áfram á svipuðum slóðum og áður.