25.11.2026
Snjólétt á landinu
Almennt er snjólétt eða snjólaust til fjalla og snjóflóðahætta því talin hverfandi. Áfram er gert ráð fyrir hlýindum (sjá mynd) en hvassviðri og talsverðri rigningu fram á föstudag, sérstaklega á sunnan- og austanverðu landinu, þar sem snjó mun taka upp enn frekar. Á föstudag snýst í suðvestanátt og kólnar í veðri með éljum.
