20.11.2026
Athugið
Hvassviðri eða stormur annað kvöld og aðfaranótt sunnudags
Annað kvöld og aðfaranótt sunnudags er búist við hvassviðri eða stormi á sunnan- og vestanverðu landinu. Vindhviður gætu farið yfir 35 m/s við fjöll, einkum nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi og við Esju. Varasamt veður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Gefnar hafa verið út gular viðvaranir vegna þessa. Sjá nánar viðvaranir.