20.11.2026
Rólegt veður í dag, en hvessir og bætir í úrkomu um helgina
Í dag hefur verið nokkuð hægur vindur víðast hvar en hvassara sunnan- og suðvestanlands. Þegar þetta var skrifað var mildast við Blikdalsá, 6.6 stiga hiti, en kaldast var á Grímsstöðum á Fjöllum, 16.9 stiga frost.
Lægð suðvestur af landinu þokast norðvestur og í kvöld verður orðið allhvasst við suðvesturströndina.
Á morgun nálgast ný lægð úr suðri. Annað kvöld hvessir enn frekar með rigningu eða slyddu og slær jafnvel í storm suðvestantil. Jafnframt hlýnar í veðri. Gefnar hafa verið út gular viðvarnir fyrir hvassviðri eða stormi annað kvöld og aðfaranótt sunnudags. Sjá nánar viðvaranir.
Á sunnudag er spáð suðaustan hvassviðri með rigningu sunnan- og vestantil, en fer að lægja vestanlands seinnipartinn. Hiti víða 5 til 10 stig.