18.11.2026
Litlar hreyfingar mælst á Svínafellsheiði síðustu daga
Litlar hreyfingar hafa mælst á Svínafellsheiði síðustu daga. Nýjustu gögn frá togmælum og GPS-mælum sýna ekki merki um að hreyfingar hafi aukist á svæðinu.
Hægar hreyfingar hafa mælst á Svínafellsheiði frá því í lok september. Þetta eru fyrstu skýru hreyfingarnar sem greinast frá því að vöktunarkerfi var sett upp á svæðinu árið 2018.
Veðurstofa Íslands heldur áfram að vakta svæðið allan sólarhringinn og fylgist sérstaklega með breytingum á hraða hreyfinganna.
Nýjustu upplýsingar um þróunina á Svínafellsheiði eru birtar á atburðasíðu Veðurstofunnar. Þar má einnig lesa fyrri stöðuuppfærslur.
Hér má svo lesa hættumat Veðurstofunnar frá 2025.

Staðsetning mælitækja á Svínafellsheiði. Á kortinu eru sýndar GPS-stöðvar, togmælar og fastpunktar, ásamt legu sprungna og jarðföllum.