Fara á forsíðu
Viðvaranir

Landris mælist áfram við Svartsengi 

27.10.2026

Landris mælist áfram við Svartsengi 

  • Landris mælist áfram við Svartsengi með nokkuð stöðugum hraða 
  • Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil 
  • Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin 
  • Núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu 

Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Líkön sem byggja á mælingunum benda til þess að rúmmálsbreyting undir svæðinu haldi áfram með nokkuð stöðugum hraða. 

Landrisið sýnir að þrýstingur heldur áfram að byggjast upp á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi. 

Tvö InSAR-kort af Reykjanesskaga sýna áframhaldandi aflögun við Svartsengi frá 11. ágúst til 16. október 2026. Vinstra kortið sýnir bylgjuvíxlmynstur en hægra kortið færslu lands í sjónlínu gervitunglsins í millimetrum. Litamynstrið við Svartsengi bendir til áframhaldandi landriss.

InSAR-mælingar á tímabilinu 11. ágúst til 16. október 2026 sýna áframhaldandi aflögun við Svartsengi. Vinstra megin er bylgjuvíxlmynd og hægra megin er sama mæling umreiknuð í færslu lands í sjónlínu gervitunglsins (LOS).

Jarðskjálftavirkni áfram lítil 

Jarðskjálftavirkni er áfram lítil í kvikuganginum. Nokkur virkni hefur þó verið við Víkur vestan Grindavíkur. Þar mældist skjálfti af stærð 2,5 þann 14. október og er hann stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í júní.  

Skjálftavirkni á svæðinu við Víkur er talin tengjast aukinni spennu í jarðskorpunni í nágrenni Grindavíkur vegna landriss við Svartsengi. Þessi aukna spenna veldur aukinni spennulosun og þar með jarðskjálftum. 

Kvikuhlaup áfram líklegasta sviðsmyndin 

Á meðan landris heldur áfram undir Svartsengi er líklegasta sviðsmyndin áfram sú að kvika hlaupi frá kvikusöfnunarsvæðinu yfir í Sundhnúksgígaröðina. Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss. 

Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður. Eftir því sem lengra líður frá síðasta kvikuhlaupi eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Áfram þarf að gera ráð fyrir að fyrirvari geti orðið stuttur, líkt og fyrir fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. 

Hættumatskort gildir til 5. janúar 

Núgildandi hættumatskort Veðurstofu Íslands fyrir svæðið gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu. 

Hættumatið byggir á fjölbreyttum mæligögnum sem eru stöðugt uppfærð. Ef breytingar verða á virkni eða ný gögn gefa tilefni til verður hættumatið endurskoðað áður en gildistímanum lýkur. 

Hættumatskort af Reykjanesskaga sem gildir frá 30. september 2026 til 5. janúar 2027. Hætta er mest við Sundhnúksgígaröðina. Töluverð hætta er metin í Grindavík, nokkur í Svartsengi og við Reykjanesvirkjun, lítil í Vogum og mjög lítil í Keflavík, Njarðvík og á Keflavíkurflugvelli.

Landris getur haldið áfram lengi 

Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2, „Töluvert aukin virkni“ (appelsínugult). 

Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um minnkandi virkni yfir lengri tíma. 

Þótt tímabil líði án kvikuhlaupa eða eldgosa getur kvikusöfnun haldið áfram eða hafist á ný eftir hlé. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í langan tíma með mislöngum hléum milli atburða. Langt hlé eitt og sér er því ekki vísbending um að virkni sé lokið.