Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Lægðagangur í kortunum næstu daga

23.11.2026

Lægðagangur í kortunum næstu daga

Hæð yfir Skandinavíu og þrálátur lágþrýstingur (lægðagangur) vestan við Ísland ræður veðrinu hjá okkur þessa vikuna sem mun valda suðaustan hvassviðri með köflum. Þessu mun fylgja talsverð úrkoma, einkum sunnan- og suðaustanlands, en eins og svo oft áður mun lítið af úrkomunni ná yfir á norðanvert landið í sunnanáttinni.


Í dag hafa ákveðnar suðaustlægar áttir verið ríkjandi, allhvasst austanlands, en annars yfirleitt kaldi eða strekkingur og rigning. Þurrt hefur verið að mestu norðan- og norðaustanlands. Fremur hlýtt hefur verið á landinu í dag, eða á bilinu 5 til 10 stig. Nú síðdegis fer síðan að draga úr vindi og létta til um vestanvert landið en áfram verður hvasst austanlands.


Á morgun fer að draga úr vindi og úrkomu sunnanlands, en vindasamt verður um norðan- og austanvert landið fram eftir morgundeginum og mun rigna austanlands fram á kvöld. Hitastig fer lækkandi um tíma, einkum vestanlands, og þar má jafnvel búast við stöku éljum síðdegis á morgun. Annað kvöld lægir víða og léttir til, en strekkingur verður vestast á landinu vegna lægðar sem hefur þá hreiðrað um sig á Grænlandshafi og gera spár ráð fyrir vaxandi vindi og úrkomu á miðvikudeginum og hlýnandi veðri.