28.11.2026
Lægð nálgast landið úr suðri
Sunnan átt og éljagangur er búinn að vera í gær og í nótt og mældust nokkrar eldingar í því veðri. Í svona óstöðugu lofti er ekki óalgengt að eldingar myndist.
Lægð nálgast nú landið úr suðri og eftir því sem hún nálgast byrjar að hvessa suðaustanlands með rigningu eða slyddu. Síðdegis er útlit fyrir að lægðarmiðjan verði við suðurströndina og orðið hvasst sunnan og austantil og víða rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Þegar líður á kvöldið færist lægðarmiðjan yfir landið vestanvert og snýst þá í suðlægari átt austantil og í kvöld má búast við sunnanhríð á norðanverðu landinu, hvassast á Tröllaskaga. Gefnar hafa verið úr gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar.
Lægðin fjarlægist svo til norðvesturs í nótt og þá dregur úr vindi og skúrir eða slydduél myndast á eftir henni. Búast má því við fremur hægri suðaustlægri átt á morgun með skúrum eða slydduéljum.