Fara á forsíðu
Viðvaranir

Hæglætisveður næstu daga

18.11.2026

Hæglætisveður næstu daga

Lægð vestur af Írlandi og hæð yfir Grænlandi beina til okkar norðaustlægri átt, yfirleitt hægur vindur og bjart með köflum, en stöku él við norður- og austurströndina. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins, en frostlaust allra syðst.

Á morgun má búast við hæglætis veðri á landinu, skúrir eða él á víð og dreif en þurrt á Vesturlandi fram eftir degi. Áfram svalt, en hlýnar smám saman sunnanlands.

Á föstudag bætir svo heldur í vind suðvestan- og vestantil á landinu með dálitlum skúrum eða slydduéljum, en á Norður- og Austurlandi má búast við svölu og úrkomulitlu veðri.