25.11.2026
Athugið
Gul skriðuviðvörun fyrir Austfirði og Suðausturland 26. til 27. nóvember
- Síðustu dagar hafa verið fremur úrkomusamir og jarðvegur víða orðinn blautur eða vatnsmettaður.
- Frekari úrkoma eykur líkur á skriðuföllum vegna rakamettaðs og viðkvæms jarðvegs.
Síðustu dagar hafa verið fremur úrkomusamir víða um land. Suðaustlægar áttir hafa verið ríkjandi mestalla vikuna og hafa þeim fylgt mikil úrkoma í formi rigningar. Jarðvegur í hlíðum er því víða blautur eða vatnsmettaður og þar með viðkvæmur fyrir frekari vætu.
Aðfaranótt fimmtudagsins 26. nóvember kemur lægð upp að landinu sunnanverðu. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri úrkomu í formi rigningar. Búast má við miklum vatnavöxtum í ám og lækjum á svæðinu. Fjölmargar veðurviðvaranir hafa verið gefnar út vegna lægðarinnar, meðal annars vindaviðvaranir um allt land og úrkomuviðvaranir fyrir Suðausturland og Austfirði. Sjá veðurviðvaranir á vef Veðurstofunnar.
Auknar líkur eru á skriðuföllum, svo sem skriðum og grjóthruni þar sem mesta úrkoma verður, á meðan veðrið gengur yfir. Skriðuvakt Veðurstofunnar hvetur fólk sem þarf að vera á ferðinni að sýna aðgát á vegum, sérstaklega undir bröttum hlíðum og á þekktum grjóthrunssvæðum, og fylgjast vel með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Eins og staðan er metin er ekki talin hætta í byggð á spásvæðum, en staðan verður endurmetin eftir því sem mælingar berast.

Uppsöfnuð úrkoma frá miðvikudagsmorgni 25. nóvember fram á laugardagsmorgun 28. nóvember (72 klst).
Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.