Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði

13.11.2026

Athugið

Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði

Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði ofan Svínafellsjökuls. Þegar litið er yfir síðustu vikur hafa hreyfingarnar verið fremur jafnar, þótt inn á milli hafi komið stutt hlé og tímabil með auknum hreyfingum sem gætu tengst úrkomu.

Í vettvangsferð í vikunni voru fastpunktar mældir og drónamælingar gerðar, auk þess sem mælibúnaður var yfirfarinn. Markmiðið var að afla frekari gagna og tryggja að mælikerfið skili áfram gögnum.

Starfsmaður við mælitæki á þrífæti í snævi þakinni hlíð á Svínafellsheiði. Svínafellsjökull sést í baksýn.

Jón Gauti Jónsson, starfsmaður ofanflóðavaktar Veðurstofunnar, við mælingar á Svínafellsheiði 12. nóvember. Í vettvangsferðinni voru fastpunktar mældir, gerðar drónamælingar og mælibúnaður yfirfarinn. Ljósmynd: Daniel Ben-Yehoshua.

Þær hreyfingar sem mælst hafa í haust eru fyrstu marktæku hreyfingarnar á svæðinu frá því að vöktunarkerfi var sett upp árið 2018.

Daniel Ben-Yehoshua gengur um snævi þakta hlíð. Neðar sést blár jökulís og dökkt belti af skriðuefni á jöklinum.

Daniel Ben-Yehoshua, starfsmaður ofanflóðavaktar Veðurstofunnar, á göngu um sprungusvæðið á Svínafellsheiði 12. nóvember. Fyrir neðan sést Svínafellsjökull og dökkt skriðuefni frá skriðunni sem féll á jökulinn árið 2013. Ljósmynd: Jón Gauti Jónsson.

Óvissa um framhaldið

Ekki er vitað hvernig hreyfingarnar munu þróast á næstunni. Þær gætu fjarað út, líkt og gerðist eftir að sprungurnar opnuðust á sínum tíma. Einnig er mögulegt að þær haldi áfram og leiði til skriðufalla.

Bæði er möguleiki á stóru berghlaupi og að minni hlutar hlíðarinnar falli niður á jökulinn. Slík skriðuföll gætu þó verið umfangsmikil, þótt þau næðu aðeins til hluta óstöðuga svæðisins.

Gert er ráð fyrir að hreyfingar myndu aukast áður en skriða félli, en ekki er vitað hvernig aðdragandi skriðufalla yrði.

Loftmynd af Svínafellsheiði með rauðri línu sem sýnir legu meginsprungunnar. Tákn sýna staðsetningu GPS-stöðva, togmæla, fastpunkta og jarðfalla.

Yfirlitskort af Svínafellsheiði. Rauða línan sýnir legu meginsprungunnar í hlíðinni. Merktar eru staðsetningar GPS-stöðva, togmæla og fastpunkta sem notaðir eru til að fylgjast með hreyfingum á svæðinu.

Mikil hætta á jöklinum ef skriður falla

Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu. Í hættumati Veðurstofunnar frá 2025 eru þó skoðaðar fleiri sviðsmyndir. Líklegast er talið að berghlaup úr Svínafellsheiði stöðvist á jöklinum án þess að ógna byggðinni neðan hans.

Ekki er þó hægt að útiloka að berghlaup nái í lónið við jökulsporðinn og valdi flóði sem geti ógnað svæðum neðan jökulsins. Á jöklinum yrði mikil hætta ef skriður féllu úr hlíðinni.

Veðurstofan fylgist áfram náið með svæðinu í samvinnu við Háskóla Íslands. Mæligögn og niðurstöður vettvangsathugana eru nýttar til að endurmeta stöðuna eftir því sem nýjar upplýsingar berast.

Nýjustu upplýsingar um þróunina á Svínafellsheiði eru birtar á atburðasíðu Veðurstofunnar. Þar má einnig lesa fyrri stöðuuppfærslur.