Frá vaktinni

Frá vaktinni

Skriðuvakt

Úrkoma samfara leysingum á vestanverðu landinu

16.10.2026 | 10:11

Tvær lægðir nálgast nú landið úr suðvestri. Sú fyrri gengur upp með austurströnd Grænlands og mun áhrifa hennar gæta síðdegis laugardaginn 17. október, en sú síðari mun fara meðfram vesturströnd landsins að morgni sunnudagsins 18. október. Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum.

Skriðuvakt

Gul skriðuviðvörun fyrir Austfirði miðvikudaginn 14. október

12.10.2026 | 13:24

Síðustu vikur hafa verið fremur úrkomusamar víða um land. Talsverð úrkoma féll í byrjun vikunnar þegar skil gengu yfir sunnan- og austanvert landið. Úrkoman var öll í formi rigningar og þótt hún hafi ekki staðið lengi yfir fylgdi henni talsverð ákefð. Jarðvegur í hlíðum er því víða blautur eða vatnsmettaður og þar með viðkvæmur fyrir frekari vætu.

Skriðuvakt

Talsverð skammvinn úrkoma á sunnan- og austanverðu landinu fram á morgun

11.10.2026 | 13:18

Seint í kvöld, 11. október, koma skil inn að landinu sunnanverðu. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri skammvinnri úrkomu. Á hádegi á morgun eiga skilin að vera gengin yfir. Ekki er hægt að útiloka hreyfingar, svo sem grjóthrun og minni skriður, á meðan skilin ganga yfir.

Skriðuvakt

Gul skriðuviðvörun á Austfjörðum og norðanverðum Vestfjörðum

07.10.2026 | 11:30

Auknar líkur á grjóthruni og minni skriðum á Austfjörðum og norðanverðum Vestfjörðum er skil ganga yfir landið á fimmtudag og föstudag. Á föstudag á að draga úr úrkomu og kólna lítillega, dregur þá úr skriðuhættu.

Skriðuvakt

Gul skriðuviðvörun á norðanverðum Vestfjörðum

03.10.2026 | 09:28

Skriður og grjóthrun hafa fallið víða á norðanverðum Vestfjörðum síðustu daga. Stór skriða féll á Hnífsdalsveg og lokaði vegi um stund. Vegna áframhaldandi úrkomu næstu daga er enn hætta á skriðum og grjóthruni á svæðinu.

Skriðuvakt

Skriðuaðstæður síðustu daga og um komandi helgi

02.10.2026 | 14:53

Frá 24. september hefur landið verið undir áhrifum samfelldrar hrinu lægðakerfa. Mikil úrkoma mældist á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðausturlandi, Suðurlandi og á Miðhálendinu. Afleiðingin hefur verið aukið afrennsli og landrof, og aukin skriðuvirkni. Ekki er hægt að útiloka jarðvegshreyfingar og skriðuföll um helgina.

Skriðuvakt

Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi, Austfjörðum og sunnanverðu Miðhálendi fram á föstudagsmorgun

01.10.2026 | 10:42

Í vikunni hefur mikil úrkoma fallið á Suðausturlandi, við Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul, á Miðhálendinu og á Austfjörðum. Frekari úrkoma í dag mun auka líkur á óstöðugleika í hlíðum og þar með grjóthruni, aurskriðum og öðrum skriðuföllum, einkum í bröttu landslagi. Slíkir atburðir geta náð að vegum og raskað samgöngum með litlum eða engum fyrirvara.

Skriðuvakt

Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á Miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags

29.09.2026 | 13:48

Búast má við talsverðri til mikilli úrkomu frá þriðjudegi fram á aðfaranótt föstudags, einkum á Suðausturlandi, við Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli, á sunnanverðu Miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum. Úrkoma fram á fimmtudagsnótt eykur líkur á skriðuvirkni, eins og grjóthruni og aurskriðum, sérstaklega á svæðum þar sem landslag er bratt. Skriður geta fallið á vegi og raskað samgöngum með litlum fyrirvara.

Skriðuvakt

Mikil úrkoma í vikunni

28.09.2026 | 14:07

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag munu nokkrar lægðir fara yfir landið. Þeim fylgir mikil úrkoma á Suðurlandi, Suðausturlandi og á sunnanverðum Austfjörðum. Einnig er búist við umtalsverðri úrkomu á norðanverðum Austfjörðum, á Ströndum, á Miðhálendinu og á Snæfellsnesi. Við slíkar aðstæður má ekki útiloka yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og aukinn framburð í lækjum og ám.

Skriðuvakt

Skriðuviðvaranir í síðustu viku

28.09.2026 | 13:18

Víðáttumikil lægð fór norður yfir landið í liðinni viku og olli mikilli úrkomu á Suður-, Austur- og Norðvesturlandi. Af þeim sökum voru gefnar út gular skriðuviðvaranir á nokkrum skriðuviðvörunarsvæðum. Við útgáfu skriðuviðvarananna var nýtt viðvörunarkerfi fyrir skriðuföll notað í fyrsta sinn. Veðurstofan kynnti jafnframt nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir. Hvort tveggja er ætlað að auðvelda upplýsingagjöf til almennings og gera upplýsingar um skriðuhættu aðgengilegri.

Skriðuvakt

Síur

Vakt

Tög