Veðurþjónusta og náttúruvárvakt starfa með eðlilegum hætti

13.11.2026

Athugið

Veðurþjónusta og náttúruvárvakt starfa með eðlilegum hætti

Veðurspár og viðvaranir Veðurstofu Íslands eru gefnar út með eðlilegum hætti þrátt fyrir bilun í þjónustu Microsoft.

Bilunin hefur ekki áhrif á kerfi Veðurstofunnar sem notuð eru til að vakta veður og náttúruvá og miðla upplýsingum til almennings. Veðurmælingar og aðrar vöktunarupplýsingar uppfærast eins og venjulega á vefnum.