16.10.2026
Snjóflóðavakt tekin til starfa
Snjóflóðavakt Veðurstofunnar hefur tekið til starfa þennan veturinn en reglubundin snjóflóðavöktun nær yfir tímabilið 15. október til 31. maí. Fram að áramótum verða birtar svæðisbundnar snjóflóðaspár þrisvar í viku; á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Eftir áramót verða þær birtar daglega.
Um þessar mundir er snjólétt um allt land en vísbendingar í kortunum um að vetur láti á sér kræla fyrr aðra helgi.