30.10.2026
Snjóflóðaaðstæður á landinu
Síðustu vikuna hefur rignt á landinu en skipst á snjókoma, slydda og rigning til fjalla. Víðast er lítill snjór til fjalla en á stöku stað, sérstaklega í mikilli hæð, getur snjór hafa safnast fyrir og myndað vindfleka. Um síðustu helgi grófst yfirborðshrím á Norðurlandi og í byrjun vikunnar féllu nokkur breið flekaflóð í Svarfaðardal. Í gær fimmtudag var frostlaust á öllu landinu talið er að snjóþekjan hafi styrkst í hlýindunum. Enn geta þó verið til staðar veikleikar á stöku stað, sérstaklega í mikilli hæð þar sem snjór hefur safnast í nokkru magni.