Nýjustu mælingar sýna áfram litlar hreyfingar á Svínafellsheiði

10.11.2026

Nýjustu mælingar sýna áfram litlar hreyfingar á Svínafellsheiði

Mælingar á Svínafellsheiði sýna áfram litlar hreyfingar og ekki hafa komið fram merki um verulegar breytingar á þróuninni undanfarna daga. Fylgst er náið með svæðinu með togmælum og GNSS/GPS-mælum og benda nýjustu gögn til þess að þar mælist áfram lítil hreyfing.

Óljóst er hvaða þættir hafa mest áhrif á hreyfingarnar. Eins og áður hefur verið greint frá mældist óvenju mikil úrkoma til fjalla í haust og ýmislegt bendir til þess að vatnsbúskapur svæðisins geti haft áhrif á þær breytingar sem mælst hafa. Frekari mælingar og greining gagna munu varpa skýrara ljósi á hvort slík tengsl séu fyrir hendi.

Stefnt er að vettvangsferð síðar í vikunni þar sem fastpunktar verða mældir og ástand mælibúnaðar yfirfarið fyrir veturinn. Vegna snjóalaga er hins vegar ekki unnt að framkvæma drónamælingar að svo stöddu.

Vöktun á Svínafellsheiði heldur áfram allan sólarhringinn. Fylgst verður áfram náið með þróun mála og staðan endurmetin eftir því sem ný gögn berast.