Landris mælist áfram við Svartsengi

10.11.2026

Landris mælist áfram við Svartsengi

  • Landris mælist áfram við Svartsengi og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar. 
  • Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. 
  • Núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að öllu óbreyttu. 

Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Meðfylgjandi mynd sýnir mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi frá nóvember 2025 til 9. nóvember 2026. Á neðsta grafinu sést að land hefur risið jafnt og þétt undanfarna mánuði. Það bendir til þess að kvika safnist enn fyrir á nokkurra kílómetra dýpi undir svæðinu og þrýstingur þar aukist. Skjálftavirkni undanfarið hefur mælst mjög lítil og telst eðlileg bakgrunnsvirkni. 

Tímaraðir GPS-stöðvarinnar í Svartsengi (SENG) frá nóvember 2025 til 9. nóvember 2026 sýna færslur til norðurs, austurs og í hæð. Land hefur risið um 23 sentimetra á tímabilinu og færst um sex sentimetra til norðurs og fjóra til austurs.

Mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi (SENG) síðastliðið ár. Efstu tvö gröfin sýna færslur til norðurs og austurs en neðsta grafið sýnir lóðrétta færslu. Þar sést áframhaldandi landris.