Hreyfingar mælast á ný á Svínafellsheiði

01.11.2026

Athugið

Hreyfingar mælast á ný á Svínafellsheiði

Skriðuvöktunarkerfið á Svínafellsheiði, ofan við austanverðan Svínafellsjökul, hefur greint hreyfingar frá 23. september. Þetta eru fyrstu hreyfingarnar sem greinast með svo skýrum hætti frá því að vöktun hófst haustið 2018. Mæld aflögun frá 23. september nemur um einum til þremur sentímetrum og hefur hún verið staðfest með mismunandi mælitækjum, bæði GPS og togmælum. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands telja allt benda til þess að hlíðin sé komin aftur á hreyfingu og hefur Veðurstofan aukið vöktun. Á næstu dögum stendur til að fara á vettvang til að kanna aðstæður og staðfesta niðurstöður mælinganna.

Ekki hefur mælst færsla á öðrum GPS-stöðvum á og í nágrenni Öræfajökuls sem bendir eindregið til þess að hreyfingarnar séu staðbundnar í Svínafellsheiði og engin merki hafa komið fram um tengsl við breytingar á eldstöðinni.

Hvað þýða mælingarnar?

Hreyfingarnar eru hægar og benda ekki einar og sér til bráðrar hættu á berghlaupi. Slíkar breytingar á hreyfihraða stórra skriðusvæða eru ekki óþekktar og á þessu stigi er ekki hægt að segja með vissu hvernig þróunin verður. Enn er því of snemmt að leggja mat á hvort hreyfingarnar muni aukast, haldast svipaðar eða ganga til baka. Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki talin vera bráð hætta á berghlaupi, en það mat getur breyst ef frekari breytingar verða á mældum hreyfingum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á stöðugleika svæðisins.

Að mati sérfræðinga kalla þær hreyfingar sem nú hafa mælst ekki á sérstakan viðbúnað að svo stöddu, umfram aukna vöktun, greiningu og eftirfylgni af hálfu Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Sú niðurstaða var tekin í samráði við Almannavarnir og Lögregluna á Suðurlandi.

Gróin og sprungin hlíð í forgrunni og jökullinn fyrir aftan. Dökkt skriðuefni þekur stóran hluta yfirborðs jökulsins.

Loftmynd af Svínafellsjökli og Svínafellsheiði. Óstöðuga hlíðin, sem nú er vöktuð vegna nýlegra hreyfinga, sést fyrir ofan jökulinn. Árið 2013 féll umfangsmikil skriða úr hlíðinni niður á jökulinn og má enn sjá skriðuefnið sem dökkt belti á yfirborði hans.

Af hverju er svæðið vaktað?

Þvert yfir fjallshlíðina liggur um 1,7 kílómetra langt sprungukerfi sem myndaðist líklega fyrir 15 til 20 árum. Gervitunglagögn og beinar mælingar sýndu aflögun í hlíðinni á árunum frá 2015 til 2017 en eftir það hægði mjög á henni. Umfang sprungukerfisins varð hins vegar ekki að fullu ljóst fyrr en árið 2018, sem varð tilefni þess að vöktunarkerfi var sett upp á svæðinu. Frá þeim tíma hafa hreyfingar verið mjög litlar og heildarfærsla á síritandi mælitækjum hefur verið innan við einn sentímetri, þar til nú í haust.

Samkvæmt hættumati Veðurstofunnar frá 2025 er líklegast að berghlaup sem félli úr hlíðinni og á jökulinn myndi stöðvast á jöklinum og ekki ná í lónið fyrir framan sporð hans og því ekki ógna byggð. Ekki er þó hægt að útiloka að mjög stórt hlaup nái niður að jökuljaðrinum og hugsanlega í lónið og geti valdið flóði. Hættumatið byggir á líkanreikningum frá 2018 til 2020 og verið er að skoða hvort endurmeta þurfi það í ljósi nýrra gagna.

Hvað gæti skýrt hreyfingarnar?

Ekki liggur fyrir hvað olli því að hreyfingar hófust að nýju. Ein möguleg skýring er aukinn vatnsþrýstingur innan fjallsins. Úrkoma í Skaftafelli hefur verið yfir meðallagi frá því í ágúst en þó ekki óvenjuleg miðað við fyrri ár. Í byrjun október mældust þó um 100 millimetrar á einum sólarhring og síðar aftur um 95 millimetrar, og togmælarnir fóru af stað á svipuðum tíma. Úrkomumælarnir eru allir á láglendi svo óvíst er hve mikil úrkoma féll í fjallinu.

Á undanförnum áratugum hafa jöklar á Íslandi verið að hopa og þynnast sem hefur áhrif á stöðugleika hlíða fyrir ofan þá.

Jökulhörfun á Svínafellsjökli hefur að mestu fylgt sama mynstri og annars staðar á jöklinum, að undanskildu svæðinu beint neðan við óstöðugu hlíðina. Þar féll umfangsmikil skriða á jökulinn árið 2013 sem huldi stóran hluta yfirborðs hans undir hlíðinni. Skriðuefnið hefur einangrandi áhrif á jökulísinn og dregur verulega úr bráðnun hans. Af þeim sökum hefur ísinn undir skriðunni varðveist betur en ís á nærliggjandi svæðum og safnast þar upp þykkari ísmassi. Þessi ísmassi kann að hafa veitt hlíðinni aukinn stuðning og þannig stuðlað að meiri stöðugleika hennar. Nú er þessi ísmassi hins vegar að færast niður með jöklinum og smám saman undan hlíðinni. Eftir því sem ísinn hopar minnkar stuðningurinn við hlíðina, sem gæti skýrt þær hreyfingar sem nú mælast á svæðinu.

Mögulegt er að samspil allra þessara þátta hafi leitt til þess að aflögun á svæðinu hófst á ný.

Næstu skref

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands og HÍ fylgjast náið með þróuninni og vinna að frekari greiningu gagna. Gögn eru nú skoðuð oftar, meðal annars að næturlagi. Rannsóknir á Svínafellsheiði eru samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands.

Fyrirhugað er að fara á vettvang þegar aðstæður leyfa, mæla fasta mælipunkta, taka myndir með dróna og yfirfara mælibúnað. Einnig er til skoðunar að bæta við GPS-mælistöð til að fá betri yfirsýn yfir hreyfingarnar. Veðurstofan hefur upplýst almannavarnir um stöðuna og er í samráði við þær um næstu skref og upplýsingagjöf til íbúa.

Nánari upplýsingar