04.11.2026
Hægt hefur á hreyfingum í Svínafellsheiði
Nýjustu mælingar benda til þess að hægt hafi á hreyfingum í Svínafellsheiði síðustu daga. Smávægilegar hreyfingar mælast þó enn og að mati sérfræðinga er of snemmt að draga ályktanir um framhaldið.
Hreyfingarnar eru meðal annars vaktaðar með GNSS-staðsetningarmælum, sem nema hreyfingar lands. Þeir sýna heildarfærslur upp á um 2–4 cm á undanförnum vikum. Síðustu daga hafa færslur milli daga hins vegar verið of litlar til að greina þær með vissu í þessum mælingum. Hægari hreyfingar geta þó komið í ljós þegar gögn yfir lengra tímabil eru skoðuð.
Smávægilegar hreyfingar mælast enn á togmælum, sem mæla breytingar á breidd sprungna í hlíðinni. Uppsafnaðar færslur á þeim eru um 4–7 mm á efri hluta svæðisins og um 14 mm á neðri hlutanum.
Þær færslur sem mælst hafa á undanförnum vikum eru enn fremur litlar að mati sérfræðinga. Nauðsynlegt er að fylgjast áfram náið með þróuninni og afla frekari gagna áður en hægt verður að meta framhaldið með meiri vissu.
Vöktun heldur áfram allan sólarhringinn og staðan verður endurmetin eftir því sem ný gögn berast.