Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu

27.10.2026

Athugið

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu

Skilin sem spáð var fyrir um í gær ganga nú yfir landið og mikil úrkomuákefð hefur mælst á nokkrum stöðum, meðal annars á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Úrkoma hefur víða mælst meiri en spár gerðu ráð fyrir og skilin virðast ganga hraðar yfir en reiknað var með, einkum á norðanverðu landinu.

Óyfirfarnar úrkomutölur frá klukkan 02 til klukkan 14 í dag sýna 95.4 mm á Dalatanga, 93 mm á Bakkagerði, 66.9 mm á Neskaupstað, 68.7 mm á Seyðisfirði - Innri Botnum, 64 mm á Siglufirði, 59.5 mm á Eskifirði og 54 mm á Seyðisfirði.

Vegagerðin hefur tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg í Njarðvíkurskriðum. Það bendir til þess að hlíðar séu orðnar óstöðugar vegna úrkomunnar. Á meðan úrkoma heldur áfram er ekki hægt að útiloka frekari skriður eða grjóthrun. Af þessum sökum hafa verið gefnar út gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi.

Tröllaskagi hefur nú einnig bæst við svæði með gulri viðvörun vegna skriðuhættu, í kjölfar langvarandi úrkomu sem mælst hefur á Siglufirði frá því í nótt. Þegar við bætist bráðnun til fjalla flýtir það enn frekar fyrir mettun jarðvegsins sem getur aukið hættu á skriðum.

Þar sem vegir liggja víða undir bröttum hlíðum er fólk hvatt til að sýna aðgát, sérstaklega á samgönguleiðum þar sem hætta getur verið á skriðum og grjóthruni.

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.