Vatnarannsóknir
Vatnarannsóknir
Veðurstofa Íslands rannsakar vatnafar landsins og breytingar á því. Rannsóknirnar byggjast á mælingum, langtímagögnum og vatnafræðilegum líkönum og veita mikilvæga þekkingu á vatnsauðlindum Íslands.
Niðurstöðurnar nýtast meðal annars við nýtingu og vernd vatnsauðlinda, skipulag, mat á náttúruvá og aðlögun að loftslagsbreytingum.
Vatnamælingar og langtímarannsóknir
Reglulegar mælingar og langtímarannsóknir eru undirstaða þekkingar á vatnafari Íslands. Veðurstofan safnar og greinir meðal annars gögn um rennsli vatnsfalla, vatnsborð og aurburð.
Langar mælingaraðir gera kleift að fylgjast með breytingum á vatnafari milli árstíða og ára og greina þróun yfir lengri tíma. Þær veita einnig mikilvægan grunn fyrir vatnafræðilega líkanreikninga og rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga.
Vatnafræðileg líkön og loftslagsbreytingar
Vatnafræðileg líkön eru notuð til að rannsaka vatnsbúskap landsins og hvernig vatn berst um náttúruleg vatnakerfi.
Með líkönunum er meðal annars hægt að rannsaka afrennsli ferskvatns til sjávar, vinna vatnafarskort og meta hvernig breytingar á loftslagi kunna að hafa áhrif á vatnafar.
Loftslagsbreytingar geta haft áhrif á úrkomu, snjóalög, bráðnun jökla og rennsli vatnsfalla. Rannsóknir á þessum breytingum auka skilning á þróun vatnsauðlindarinnar og leggja grunn að mati á mögulegum framtíðaráhrifum og nauðsynlegri aðlögun.
Grunnvatn og vatnsauðlindir
Grunnvatn er mikilvægur hluti vatnsauðlinda Íslands. Magn þess, gæði og hreyfingar ráðast meðal annars af jarðfræðilegum aðstæðum, einkum lekt og sprungum í bergi.
Ung hraun og sprungin jarðlög geta leitt vatn langar leiðir neðanjarðar. Víða kemur grunnvatnið síðan fram í vatnsmiklum lindum.
Rannsóknir á grunnvatni og mat á magnstöðu þess eru mikilvægur þáttur í þekkingu á vatnsauðlindum landsins og sjálfbærri nýtingu þeirra.
Rannsóknir og mat á flóðahættu
Þekking á vatnafari er jafnframt mikilvæg forsenda mats á hættu vegna vatnsflóða og jökulhlaupa.
Við gerð hættumatskorta eru meðal annars notaðir straumfræðilegir líkanreikningar til að meta mögulega útbreiðslu og tjónmætti flóða. Niðurstöður mælinga og rannsókna, ásamt sérfræðiþekkingu starfsfólks, nýtast einnig við mat á yfirvofandi hættu og gerð flóðaspáa.
Nánar er fjallað um þetta rannsóknarsvið á síðunni Flóð og jökulhlaup.
Vatnsgæði og stjórn vatnamála
Veðurstofa Íslands gegnir mikilvægu hlutverki við framkvæmd laga um stjórn vatnamála sem byggjast á vatnatilskipun Evrópusambandsins.
Stofnunin leggur til gögn og sérfræðiþekkingu, meðal annars um magnstöðu grunnvatnshlota og vatnsformfræðilega og eðlisefnafræðilega þætti ferskvatnshlota.
Veðurstofan hefur jafnframt hlutverk við miðlægt upplýsingakerfi um vatnshlot og vinnur með öðrum stofnunum að rannsóknum og mati á ástandi vatns.
Í Vatnavefsjá er hægt að nálgast upplýsingar um vatnshlutfall og ástand vatns og strandsjávar víðs vegar um landið.
Samstarf og miðlun rannsóknagagna
Vatnarannsóknir Veðurstofunnar eru unnar bæði á grundvelli lögbundins hlutverks stofnunarinnar og í samstarfi við aðrar rannsóknastofnanir og hagaðila. Ýmis verkefni hafa jafnframt hlotið styrki úr innlendum rannsóknarsjóðum.
Veðurstofan miðlar vatnafarsgögnum til alþjóðlegra gagnakerfa og samstarfsvettvanga, meðal annars Global Runoff Data Centre (GRDC), European Flood Awareness System (EFAS) og Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO).
Alþjóðlegt samstarf auðveldar miðlun þekkingar, samanburð rannsóknarniðurstaðna og þróun aðferða við rannsóknir á vatnafari.
Tengt efni
- Vatnavefsjá
- Flóð og jökulhlaup
- Aurburður
- Opin vatnafarsgögn
- Lög um stjórn vatnamála