Um rannsóknir á vatni og jöklum

Um rannsóknir á vatni og jöklum

Veðurstofa Íslands rannsakar vatnsauðlindir, breytingar á jöklum, flóð og jökulhlaup. Langtímamælingar og líkön hjálpa okkur að skilja þessa ferla og meta áhrif breytinga á umhverfi og samfélag. Niðurstöðurnar nýtast við nýtingu vatnsauðlinda, skipulag og mat á náttúruvá.

Rannsóknirnar tilheyra deild loftslags, veðurs, vatns, jökla og hafs á þjónustu- og rannsóknasviði Veðurstofu Íslands.

Deildarstjóri er Tinna Þórarinsdóttir.

Vatnarannsóknir

Rannsóknir á rennsli áa, grunnvatni og aurburði auka þekkingu á vatnsauðlindinni og breytingum á vatnafari. Rannsóknir á fyrri flóðum og líkanreikningar leggja jafnframt grunn að mati á flóðahættu.

Fagstjóri vatnarannsókna er Bergur Einarsson.

Jöklarannsóknir

Með mælingum á afkomu, útbreiðslu og stöðu jökulsporða er fylgst með breytingum íslenskra jökla. Gögnin eru nýtt til að rannsaka áhrif loftslagsbreytinga og meta framtíðarþróun jökla og afleiðingar fyrir vatnafar.

Fagstjóri jöklarannsókna er Hrafnhildur Hannesdóttir.