Um rannsóknir á Veðurstofu Íslands

Um rannsóknir á Veðurstofu Íslands

Rannsóknir og þróun eru hluti af starfsemi þjónustu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands. Þar fer fram þekkingaröflun, rannsóknir, veðurþjónusta, náttúruvárvöktun og miðlun upplýsinga. Tilgangurinn er að mæta þjónustuþörf samfélagsins í samræmi við hlutverk stofnunarinnar.

Grunnrannsóknir og þróun

Veðurstofan skilgreinir, mótar, leiðir og tekur þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum sem varða alla helstu eðlisþætti jarðar. Starfið felur í sér almennar grunnrannsóknir, vísindalega úrvinnslu gagna og líkanagerð, ásamt þróun afurða og aðferðafræði til að bæta þjónustu stofnunarinnar.

Þekking sem nýtist samfélaginu

Rannsóknastarfið styður við veðurþjónustu og náttúruvárvöktun og stuðlar að upplýstri og vandaðri ákvarðanatöku á sviði náttúruvár, náttúruverndar og nýtingar auðlinda.

Rannsóknarsvið og verkefni

Rannsóknirnar ná yfir fjölbreytt viðfangsefni og mörg verkefni tengja saman ólík fagsvið. Á síðum rannsóknarsviðanna er fjallað nánar um viðfangsefni þeirra. Í yfirliti rannsóknarverkefna má finna upplýsingar um einstök verkefni og samstarf.

Ljósmynd af starfsmanni Veðurstofu Íslands.

Þjónustu- og rannsóknasvið

Matthew James Roberts er framkvæmdastjóri þjónustu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands. Tilgangur sviðsins er að mæta þjónustuþörf samfélagsins í samræmi við hlutverk stofnunarinnar.