22.07.2026
Varasamar aðstæður við sporð Sólheimajökuls
Óstöðugt íshaft og grjóthrunshætta á aðkomuleiðinni
Undanfarnar vikur hafa orðið verulegar breytingar við sporð Sólheimajökuls sem hafa gert aðkomu að jöklinum erfiðari og varasamari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.
- Lítið lón hefur myndast austan við jökulsporðinn.
- Íshaft sem liggur að jöklinum hefur þynnst og er orðið óstöðugt.
- Ferðaþjónustufyrirtæki hafa fellt niður ferðir í forvarnarskyni.
- Hætta er á grjóthruni á aðkomuleiðinni að suðaustanverðum jöklinum.
Breyttar aðstæður við jökulsporðinn
Lítið lón hefur myndast austan við sporð Sólheimajökuls. Á milli þess og aðaljökullónsins framan við Sólheimajökul hefur myndast íshaft sem tengir ströndina við jökulinn. Haftið hefur minnkað hratt undanfarnar vikur vegna bráðnunar og kelfingar, en kelfing verður þegar jakar brotna úr jöklinum og falla í lónið. Nú getur hætta skapast af því að fara um íshaftið. Bæði er hætta á að óstöðugur ís gefi sig og að fólki skriki fótur og það falli í lónin öðru hvoru megin við haftið. Aðkoma að sporði Sólheimajökuls er því mun erfiðari og varasamari en áður.
Miklar breytingar á aðstæðum hafa orðið frá degi til dags og óvissa er um áframhaldandi þróun. Mikilvægt er að fólk sem fer um svæðið á eigin vegum gæti varúðar við jökulsporðinn og fari ekki út á óstöðugan jökulís eða inn á svæði þar sem hætta er á falli ofan í köld og djúp jökullón.
Leiðsögumenn á svæðinu vakta breytingarnar og ferðaþjónustufyrirtæki hafa nú í forvarnarskyni fellt niður ferðir. Jafnframt er hugað að nýjum og öruggari leiðum.
Hætta á grjóthruni á aðkomuleiðinni að Sólheimajökli
Veðurstofan vekur jafnframt athygli á grjóthrunshættu úr Jökulhaus, fjallinu ofan aðkomuleiðarinnar að suðaustanverðum Sólheimajökli. Fólk ætti að lágmarka viðveru undir bröttum hlíðum. Grjót sem fellur á aðkomuleiðina getur verið stórt og skapað verulega hættu fyrir ferðafólk. Meðfram öllum göngustígunum er grjóthrunshætta og því er mikilvægt að sýna aðgát.
Ferðafólk er hvatt til að skoða brattar hlíðar vel og vera vakandi fyrir merkjum um grjóthrun, svo sem nýföllnu grjóti eða hljóðum úr hlíðinni. Grjóthrun verður skyndilega og ekki er hægt að spá nákvæmlega fyrir um hvenær það á sér stað. Líkur á grjóthruni geta þó aukist í mikilli úrkomu og við snöggar hitabreytingar, til dæmis þegar frýs og þiðnar til skiptis.
Breyttar aðstæður vegna hops jökla
Flestir jöklar landsins hörfa nú í hlýnandi loftslagi. Það leiðir til margvíslegra breytinga við jökulsporðana sem geta haft áhrif á öryggi fólks og aðstæður til jöklaferða.
Jaðarlón myndast og stækka og geta hindrað för. Aurbleytur myndast við jökulsporða og landslag er óstöðugt þar sem jöklar studdu áður við fjallshlíðar í dölum. Vert er að hafa í huga að aðgengi að jökulsporðum er óvíða jafn auðvelt og hér á landi. Það er aðeins á örfáum stöðum í heiminum sem finna má malbikaða vegi sem ná langleiðina að jökulsporði. Óvant ferðafólk á því auðvelt með að koma sér í hættulegar aðstæður.
Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir hættunum, fylgi leiðbeiningum, sýni varúð, beri virðingu fyrir því umhverfi sem ferðast er um og hugi að síbreytilegum aðstæðum framan við skriðjökla.
Aðstæður við jökulsporðinn í júlí 2026

Aðstæður við sporð Sólheimajökuls breytast hratt vegna bráðnunar og kelfingar. Aðkoma að jöklinum hefur því orðið erfiðari og varasamari. Mynd: Jón Heiðar Andrésson, yfirleiðsögumaður hjá Asgard Beyond.

Sprunginn jökulís og brattar hlíðar við sporð Sólheimajökuls. Hætta getur skapast af óstöðugum ís og grjóthruni úr hlíðunum. Mynd: Jón Heiðar Andrésson, yfirleiðsögumaður hjá Asgard Beyond.

Lítið lón hefur myndast austan við sporð Sólheimajökuls. Íshaftið milli þess og aðaljökullónsins hefur þynnst og orðið óstöðugt. Mynd: Jón Heiðar Andrésson, yfirleiðsögumaður hjá Asgard Beyond.
Óstöðugt íshaft og grjóthrunshætta á aðkomuleiðinni
Breyttar aðstæður við jökulsporðinn
Hætta á grjóthruni á aðkomuleiðinni að Sólheimajökli
Breyttar aðstæður vegna hops jökla
— Aðstæður við jökulsporðinn í júlí 2026