03.02.2026
SeisComP verður nýtt aðalkerfi Veðurstofu Íslands fyrir jarðskjálftavöktun
SeisComP er frá og með deginum í dag aðalkerfi Veðurstofu Íslands fyrir vöktun og úrvinnslu jarðskjálfta. Það tekur við hlutverki SIL-kerfisins, sem hefur verið í notkun frá árinu 1991. SIL verður áfram í rekstri sem stoðkerfi meðan SeisComP er fínstillt og söguleg gögn flutt yfir.
Innleiðing SeisComP markar stórt skref í þróun jarðskjálftavöktunar stofnunarinnar. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkur ár og kerfisskiptin fela í sér bæði tæknilegar breytingar og breytta verkferla. Markmiðið er að auka greiningargetu, bæta gagnamiðlun og skapa nútímalegra vinnuumhverfi fyrir sérfræðinga.
SIL-kerfið hefur verið hornsteinn jarðskjálftavöktunar á Íslandi frá upphafi stafrænna sjálfvirkra mælinga og jarðskjálftaúrvinnslu árið 1991. Það var á sínum tíma brautryðjandi á sviði sjálfvirkni og notkunar tauganets.

„Með SeisComP eflum við getu Veðurstofu Íslands til að greina og meta jarðskjálftavirkni í rauntíma. Slík þróun er mikilvæg fyrir öryggi samfélagsins og trausta upplýsingagjöf um náttúruvá,“ segir Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðvísinda, eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks á þjónustu- og rannsóknarsviði Veðurstofu Íslands.
Hverju geta notendur búist við?
- Yfirfarnir jarðskjálftar kunna að vera færri fyrst um sinn meðan handvirk úrvinnsla nær sama hraða og áður.
- Staðsetningar jarðskjálfta geta breyst eitthvað þar sem úrvinnsluaðferðir kerfanna eru ólíkar.
- SeisComP hefur verið fínstillt til að nema smáskjálfta og kann að vera næmara á sumum svæðum en eldra kerfið.
Ný Skjálftalísa og bætt gagnamiðlun
Í tengslum við kerfisskiptin hefur vefsjáin Skjálftalísa verið uppfærð. Hún býður nú upp á fjölbreyttar þekjur og ný greiningartól.
Unnið er að því að flytja sögulegan jarðskjálftagagnagrunn SIL inn í SeisComP. Gögnin verða jafnframt aðgengileg í Skjálftalísu.
Ný gagnagátt, Quakes API, verður einnig tekin í notkun. Hún gerir notendum kleift að sækja jarðskjálftagögn og vinna með þau á skilvirkari hátt.

Ný Skjálftalísa Veðurstofu Íslands, byggð á gögnum úr SeisComP-kerfinu, sýnir hér jarðskjálftavirkni á korti ásamt greiningu á dýpt, tíðni og þróun skjálfta í tíma.
SeisComP – nýtt kerfi byggt á traustum grunni
SeisComP er notað við jarðskjálftavöktun víða um heim. Samstarfsaðilar Veðurstofu Íslands, meðal annars ÍSOR, sænska jarðskjálftamælanetið SNSN og svissneska jarðskjálftaþjónustan SED, nýta kerfið í starfsemi sinni og hafa stutt Veðurstofuna við innleiðinguna.
SeisComP er kerfi sem byggir á opnum hugbúnaði (AGPL). Þróun og viðhald fer fram í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Gempa, sem jafnframt býður upp á viðbætur og þjónustu gegn leyfi. Einn helsti kostur SeisComP er hversu auðvelt er að bæta við sérsniðnum úrvinnsluaðferðum sem tengjast kerfinu beint. Veðurstofan hefur á undanförnum árum verið að fínstilla sértækar hugbúnaðareiningar til að mæta kröfum um næmni á virkum svæðum Íslands. Kerfið er heildstætt, sér um allt ferlið frá gagnasöfnun og gagnadreifingu til gæðaeftirlits og rauntímagreiningar.
Saga SIL – kerfi sem mótaði jarðskjálftarannsóknir á Íslandi
SIL-jarðskjálftakerfið var tekið í notkun árið 1991, samhliða því að stafrænar og sjálfvirkar jarðskjálftamælingar hófust hér á landi. Kerfið var hannað með það að markmiði að nema sjálfvirkt smáskjálfta, allt niður í stærð M0, til að safna nægjanlega nákvæmum gögnum fyrir rannsóknir á jarðskjálftaspám og spennusöfnun í jarðskorpunni.
Að þróun SIL komu jarðskjálftafræðingar á Norðurlöndum, undir forystu Ragnars Stefánssonar, og þar á meðal Reynir Böðvarsson við Uppsalaháskóla og Ragnar Slunga hjá sænsku rannsóknarstofnuninni um varnarmál (FOI). Kerfið var hannað fyrir Suðurlandsbrotabeltið, einnig nefnt Suðurlandsundirlendið, og dregur kerfið nafn sitt af enska eða sænska heiti svæðisins (South Iceland Lowland / Södra Islands Lågland).
Til að ná tilætluðum markmiðum þurfti að byggja upp þétt net jarðskjálftamæla og þróa úrvinnsluaðferðir sem gátu greint mjög veik merki smáskjálfta þrátt fyrir mikinn umhverfishávaða. Verkefnið tókst afar vel og varð SIL-kerfið um tíma meðal fremstu kerfa heims á sviði smáskjálftamælinga og úrvinnslu.
Fyrstu átta jarðskjálftastöðvunum var komið fyrir á Suðurlandi á árunum 1989–1990 og sjálfvirk úrvinnsla hófst í lok maí árið 1991. Síðan þá hefur mælanetið stækkað verulega og vaktar í dag flekaskil landsins, auk eldstöðva Íslands. Stöðvarnar eru nú orðnar um 100.
Á fyrstu rekstrarárum kerfisins mældust á annað eða þriðja þúsund jarðskjálftar árlega. Með fjölgun stöðva jókst næmni kerfisins til muna og fjöldi skjálfta sem mælist ár hvert hefur aukist, meðal annars í tengslum við jarðskjálftahrinur, kvikuinnskot og eldgos. Heildarfjöldi jarðskjálfta sem SIL-kerfið hefur numið sjálfvirkt er ríflega 1,1 milljón og þar af hafa um 780 þúsund skjálftar verið yfirfarnir af sérfræðingum Veðurstofunnar.

Dæmi um jarðskjálftaskráningu í SIL-kerfinu, þar sem P- og S-bylgjur eru greindar handvirkt. SIL hefur verið hornsteinn jarðskjálftavöktunar á Íslandi frá árinu 1991. SeisComP tekur nú við sem aðalkerfi en SIL verður áfram í rekstri sem stoðkerfi.
Hverju geta notendur búist við?
Ný Skjálftalísa og bætt gagnamiðlun
SeisComP – nýtt kerfi byggt á traustum grunni
Saga SIL – kerfi sem mótaði jarðskjálftarannsóknir á Íslandi