14.01.2026
Samstarf Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands í rannsóknum og vöktun náttúruvár
Í myndbandinu „Saman erum við sterkari“ segja þrír starfsmenn Veðurstofu Íslands frá doktorsverkefnum sínum við Háskóla Íslands og hvernig rannsóknir þeirra nýtast í starfi Veðurstofunnar og í þágu samfélagsins.
Myndbandið var gert fyrir kynningarfund um samstarf stofnananna sem haldinn var í Hátíðasal Háskóla Íslands 20. janúar 2026.
Samstarfið nær meðal annars til rannsókna á jarðhræringum, jöklum og jökulhlaupum, uppbyggingar rannsóknainnviða og menntunar sérfræðinga. Það eflir þekkingu á náttúruvá, styrkir viðbúnað samfélagsins og stuðlar að því að ákvarðanir um öryggi almennings, innviða og mannvirkja byggist á traustum gögnum og rannsóknum.
Saman erum við sterkari
Í myndbandinu koma fram:
- Milad Kowsari, doktor í byggingarverkfræði og sérfræðingur í áhættumati vegna jarðskjálftavár hjá Veðurstofu Íslands.
- Tarek A. M. Zaqout, doktor í umhverfisverkfræði og sérfræðingur á sviði vatnafræði og sjálfbærra ofanvatnslausna.
- Bryndís Ýr Gísladóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands og náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Þau segja frá tengslum rannsókna sinna við starf Veðurstofunnar og þýðingu samstarfs stofnananna fyrir eigin störf og samfélagið.