12.05.2026
Michelle Parks leiðir alþjóðlegt samstarf um jarðvá
Michelle Parks, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, hefur verið kjörin formaður alþjóðlega samstarfsnetsins GEO-GSNL. Samstarfið eflir rannsóknir og vöktun á meðal annars eldgosum og jarðskjálftum með miðlun gagna og nýtingu gervitunglamælinga.
Michelle er sérfræðingur í aflögunarmælingum og eldfjallavöktun og hefur starfað á Veðurstofunni frá árinu 2017. Hún tók formlega við formennsku GEO-GSNL, Geohazard Supersites and Natural Laboratories, 7. maí 2026.
Samstarfsnetið tengir saman vísindastofnanir, geimstofnanir, vöktunarstofnanir og almannavarnir. Með opinni miðlun gagna og samvinnu er unnið að því að bæta rannsóknir, vöktun og áhættumat vegna jarðvár. Markmiðið er að ný þekking nýtist betur við ákvarðanatöku og viðbrögð við náttúruvá.
Gervitunglamælingar sýna hreyfingar jarðskorpunnar
Michelle hefur um árabil rannsakað íslensk eldfjöll, meðal annars með svonefndum InSAR-mælingum. Með þeirri aðferð eru bornar saman ratsjármyndir úr gervitunglum til að greina hreyfingar á yfirborði jarðar.
Mælingarnar hjálpa sérfræðingum að greina breytingar í eldstöðvakerfum og meta kvikuhreyfingar og eru mikilvægur þáttur í vöktun virkra eldfjalla.
Michelle hefur meðal annars komið að rannsóknum á Bárðarbungu, Öskju, Heklu, Kötlu, Eyjafjallajökli og Fagradalsfjalli, auk Santorini í Grikklandi.
Kjör Michelle er viðurkenning á framlagi hennar til rannsókna og alþjóðlegs samstarfs um jarðvá. Það undirstrikar jafnframt mikilvægi þeirrar sérþekkingar sem byggst hefur upp á Veðurstofu Íslands og samvinnu stofnunarinnar við vísinda- og vöktunarstofnanir víða um heim.
-768x512.webp)
Michelle Parks, sérfræðingur í aflögunarmælingum og eldfjallavöktun á Veðurstofu Íslands, hefur verið kjörin formaður alþjóðlega samstarfsnetsins GEO-GSNL. Ljósmynd: Elisa Trasatti.
Gervitunglamælingar sýna hreyfingar jarðskorpunnar