26.06.2026
Jöklar á Íslandi halda áfram að rýrna
Mælingar benda til þess að tímabili hægari rýrnunar íslenskra jökla sé lokið. Jöklarnir tapi nú aftur massa jafn ört og á árunum 1995–2011. Flestir jökulsporðar sem mældir voru hörfuðu einnig á tímabilinu 2024–2025.

Hrútárjökull og Fjallsjökull árið 1982 (til vinstri) og 2025 (til hægri). Samanburðurinn sýnir hörfun jöklanna og lækkun yfirborðs þeirra á 43 árum. Myndirnar eru unnar úr loftmyndum Náttúrufræðistofnunar og landlíkani. Myndvinnsla: Kieran Baxter.
Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi verkefnisins Hörfandi jöklar: Lifandi kennslustofa í loftslagsbreytingum, þar sem teknar eru saman niðurstöður mælinga og rannsókna á íslenskum jöklum árið 2025.
Miklar breytingar á jökulsporðum
Mælingar sjálfboðaliða Jöklarannsóknafélags Íslands sýna að hörfun sporða var einna mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls.
Heinabergsjökull brotnaði mikið upp sumarið 2025 og hefur sporður hans styst um þrjá kílómetra á tveimur árum. Mikið hop mældist einnig á Leirufjarðarjökli og Lambatungnajökli. Þróunin var þó ekki alls staðar sú sama; örlítill framgangur mældist í Gígjökli.
Lítill vetrarsnjór og mikil sumarleysing
Jökulárið 2024–2025 var afkoma mæld á um 130 stöðum á jöklum landsins. Afkoma lýsir því hversu mikill snjór og ís bætist við jökul og hversu mikið tapast. Þegar meira tapast en bætist við er afkoman neikvæð.
Lítil snjósöfnun yfir veturinn og mikil sumarleysing leiddu til mun neikvæðari ársafkomu en í meðalári. Óvenjuleg hlýindi að hausti og vetri ollu því að úrkoma féll sem regn fremur en snjór. Þá jók eitt hlýjasta sumar frá upphafi mælinga leysingu jöklanna.
Gögnin benda til þess að tímabili hægari rýrnunar á árunum 2012–2020 sé lokið og hraði massataps sé aftur orðinn sambærilegur við tímabilið 1995–2011.
Ný kort og yfirlit yfir jökulhlaup
Í fréttabréfinu má einnig sjá kort af skriðhraða jökla, unnin úr gervitunglagögnum, samanburðarmyndir sem sýna breytingar jökla og yfirlit yfir jökulhlaup ársins 2025.
Fréttabréfið er hluti af samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands og Vatnajökulsþjóðgarðs, unnið í samvinnu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands.