Jarðvegsfok á Íslandi í alþjóðlegu samhengi

11.07.2026

Jarðvegsfok á Íslandi í alþjóðlegu samhengi

Efnisyfirlit

Jarðvegsfok er verulegt umhverfis- og loftgæðavandamál á Íslandi og getur orðið á öllum árstímum. Alþjóðaveðurfræðistofnunin, WMO, vekur nú athygli á víðtækum áhrifum sand- og rykbylja, sem höfðu mikil áhrif á heilsu, umhverfi, samgöngur og atvinnustarfsemi víða um heim árið 2025.

WMO birtir nýtt yfirlit um jarðvegsfok og ryk í andrúmslofti í tilefni alþjóðadags baráttunnar gegn sand- og rykstormum, sem haldinn er 12. júlí. Í ritinu WMO Airborne Dust Bulletin er fjallað um helstu upptakasvæði jarðvegsfoks í heiminum, áhrif sand- og rykbylja og framfarir í rannsóknum, vöktun, spám og viðvörunum.

Á hverju ári berast um tveir milljarðar tonna af ryki út í lofthjúpinn. Rykið getur borist hundruð eða jafnvel þúsundir kílómetra, yfir landamæri, heimsálfur og úthöf.

Stærstu upptakasvæðin eru á þurrum og hálfþurrum landsvæðum, meðal annars í Sahara, Góbí-eyðimörkinni og Arabíueyðimörkinni. Jarðvegsfok er þó ekki bundið við heitar eyðimerkur heldur verður það einnig á köldum svæðum þar sem fínkorna set og ógróið land liggja óvarin fyrir vindi.

Umfangsmikið jarðvegsfok á Íslandi

Á Íslandi eru víðáttumikil og virk uppblásturs- og foksvæði, meðal annars á jökulsöndum, áreyrum, eldfjallaauðnum og svæðum þar sem jarðvegur og gróður hafa eyðst. Í hvössum vindi getur fíngert set fokið upp, skert loftgæði og skyggni og borist langar leiðir.

Rannsókn Pövlu Dagsson-Waldhauserovu, Ólafs Arnalds og Haraldar Ólafssonar á jarðvegsfoki á Íslandi á árunum 1949–2011 sýnir að jarðvegsfok er bæði algengt og umfangsmikið hér á landi og getur orðið á öllum árstímum.

Í alþjóðlegum gagnasöfnum, þar sem sömu viðmið eru notuð fyrir öll lönd, voru að meðaltali skráðir rúmlega 34 dagar á ári með jarðvegsfoki eða ryki í lofti á Íslandi. Íslenskar athuganir ná hins vegar yfir fjölbreyttari rykatburði, meðal annars endurfok eldfjallaryks og rykmóðu í kjölfar eldgosa. Þegar þeir atburðir eru einnig taldir með er áætlað að ryk greinist í lofti hér um 135 daga á ári. Munurinn á tölunum skýrist því af því hvaða atburðir eru taldir með.

Á rannsóknartímabilinu voru alls skráðir 32 mjög öflugir rykbylir þar sem skyggni fór niður fyrir 500 metra. Jarðvegsfok og ryk í lofti eru því bæði tíð og fjölbreytt fyrirbæri á Íslandi og tíðnin sambærileg við það sem þekkist á virkum foksvæðum í Kína, Mongólíu og Íran.

Jarðvegsfok hér á landi er ekki bundið við sumar og haust. Um helmingur skráðra rykatburða á Suðurlandi varð að vetri eða þegar hiti var við frostmark og getur fokefnið þá blandast snjó.

Dyngjusandur er eitt helsta upptakasvæði jarðvegsfoks á norðaustanverðu landinu og getur fokefni þaðan borist norður á bóginn, allt til norðurslóða. Á Suðurlandi eru Mýrdalssandur, Landeyjasandur, Skeiðarársandur og Mælifellssandur meðal helstu upptakasvæða. Eftir vindátt getur ryk frá þessum svæðum borist yfir höfuðborgarsvæðið, til Evrópu eða jafnvel vestur yfir Atlantshaf til Norður-Ameríku.

Ljósbrúnn rykmökkur þyrlast yfir víðáttumikinn, grýttan Dyngjusand og byrgir sýn til fjalla undir skýjuðum himni.

Rykbylur á Dyngjusandi, einu helsta upptakasvæði jarðvegsfoks á norðaustanverðu Íslandi. Drónamynd: Darius Brummer.

Áhrif á loftgæði, samgöngur, jökla og loftslag

Jarðvegsfok getur skert loftgæði og skyggni, haft neikvæð áhrif á heilsu fólks og truflað umferð og flug. Sand- og rykbylir geta einnig dregið úr framleiðni í landbúnaði, aukið álag á vatns- og orkukerfi og haft áhrif á vistkerfi og loftslag.

Mikið sandfok getur skapað verulega hættu í umferð. Í skýrslu Vegagerðarinnar um sandfok og umferðaröryggi kemur fram að banaslys hafi verið skráð á Suðurlandi í tengslum við sandbyli og mjög skert skyggni.

Pavla Dagsson-Waldhauserova, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands og formaður Rykrannsóknafélags Íslands, segir Ísland gegna mikilvægu hlutverki í rannsóknum á jarðvegsfoki á köldum svæðum heims. Rykrannsóknafélag Íslands er aðildarfélag að European Aerosol Assembly og Pavla á jafnframt sæti í stýrihópi svæðisnets WMO um sand- og rykstorma í Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum og Evrópu.

Waldhauserova	Pavla Dagsson-Waldhauserova brosir að myndavélinni, klædd gráum mynstruðum jakka og svörtum trefli, með sólarlag í bakgrunni.

„Ísland er stærsta eyðimerkursvæði Evrópu utan Kaspíahafssvæðisins og eitt best rannsakaða svæði heims þegar kemur að ryki frá köldum svæðum. Hér er rekið sérstakt spálíkan fyrir jarðvegsfok sem er meðal þeirra líkana sem svæðismiðstöð Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar í Barcelona notar við vöktun og spár um sand- og rykstorma,“ segir Pavla Dagsson-Waldhauserova, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands og formaður Rykrannsóknafélags Íslands.

Rannsóknir Pövlu og samstarfsfólks hennar sýna að íslenskir rykbylir geta haft áhrif á loftgæði bæði nærri jörðu og í hærri loftlögum. Styrkur svifryks í íslenskum rykmekkjum getur orðið sambærilegur við það sem mælist í rykmekkjum frá Sahara. Hún bendir jafnframt á áhrif ryks á snjó og jökla.

„Íslenskt fokryk getur haft veruleg áhrif á loftgæði, jafnvel á svæðum langt frá þéttbýli, og þar geta loftgæði stundum orðið verri en í borgum og iðnaðarsvæðum. Rannsóknir hafa einnig sýnt að dökkt eldfjallaryk sem sest á snjó og jökla dregur úr endurkasti yfirborðsins, eykur upptöku sólarorku og getur þannig hraðað bráðnun. Áhrif íslensks eldfjallaryks á snjó og ís geta verið meiri en áhrif svarts kolefnis, sem er meðal þeirra agna í andrúmsloftinu sem gleypa mest sólarljós.“

Að sögn Pövlu er nú unnið að nýjum upplýsingavef um loftgæði á Íslandi, Air Quality Iceland Hub, í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og Náttúrufræðistofnun innan CAMS NCP Iceland. Markmiðið er að gera heildstæðar upplýsingar um loftgæði aðgengilegar öllum landsmönnum.

Hop jökla getur skapað ný foksvæði

Á alþjóðavísu er hugtakið high-latitude dust notað um ryk frá köldum svæðum á háum breiddargráðum, bæði á norður- og suðurhveli. Slíkir rykatburðir verða meðal annars á Íslandi, Suðurskautslandinu, í Patagóníu og á Nýja-Sjálandi.

Rannsóknir á slíku ryki hafa aukist á undanförnum árum, meðal annars vegna þess að hop jökla getur afhjúpað ný svæði með lausu og fínkorna seti sem geta orðið virk upptakasvæði jarðvegsfoks. Breytingar á gróðurþekju, úrkomu, vindafari og snjóhulu geta einnig haft áhrif á stærð og virkni upptakasvæða.

Óvenju miklir sand- og rykbylir árið 2025

Í yfirliti WMO kemur fram að meðalstyrkur ryks við yfirborð jarðar á heimsvísu árið 2025 hafi verið svipaður og árið 2024. Mikill svæðisbundinn munur var þó á styrk ryks og á sumum svæðum voru sand- og rykbylir óvenju tíðir og öflugir.

Á Íslandi var árið 2025 ekki jafn erfitt hvað jarðvegsfok varðar og árið 2024. Slæmar aðstæður urðu hins vegar í janúar og febrúar 2026, þegar óvenju langvarandi snjóleysi á Suður- og Suðvesturlandi skapaði hagstæð skilyrði fyrir jarðvegsfok og rykmengun.

Norður-Afríka og Mið-Austurlönd urðu fyrir röð umfangsmikilla rykatburða sem skertu loftgæði og skyggni.

Í apríl 2025 barst mikið ryk frá Mongólíu yfir Kína. Að sögn WMO var þetta versti sand- og rykbylur sem orðið hafði í Kína í um áratug þegar litið var til styrks, útbreiðslu og tímalengdar. Styrkur svifryks af stærðinni PM10 fór yfir 1.000 míkrógrömm í rúmmetra í norðurhluta Kína og mældist á sumum svæðum á bilinu 3.000 til 4.000 míkrógrömm í rúmmetra.

Við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó voru sand- og rykbylir einnig óvenju tíðir, öflugir og langvinnir. Í El Paso í Texas voru skráðir 50 dagar með rykveðri árið 2025, meira en tvöfalt ársmeðaltal. Fjöldi rykbylja þar var sá mesti frá árinu 1935.

Þegar ástandið náði hámarki 18. mars stóðu sand- og rykbylir samfellt yfir í meira en sex klukkustundir. Skólum, þjóðvegum og flugvöllum var lokað tímabundið, opinberum viðburðum var aflýst og nokkur banaslys urðu á vegum.

Þétt appelsínubrún rykmóða skerðir skyggni á gönguleið á háskólasvæði. Fólk, tré og ljósastaurar hverfa smám saman í móðuna.

Rykmóða á háskólasvæði University of Texas at El Paso í Bandaríkjunum 6. mars 2025. Mynd: Katalina Salas.

Alþjóðlegt samstarf um vöktun og viðvaranir

Celeste Saulo, framkvæmdastjóri WMO, segir ekkert ríki ónæmt fyrir áhrifum sand- og rykbylja. Hún leggur áherslu á að sand- og rykbylir og þurrkar virði engin landamæri. Alþjóðlegt samstarf um mælingar, gagnaskipti, rannsóknir og snemmbærar viðvaranir sé því nauðsynlegt.

Í yfirliti WMO er einnig fjallað um möguleika gervigreindar og gervitunglatækni til að bæta vöktun og spár um jarðvegsfok og dreifingu ryks.

Erfitt getur verið að spá nákvæmlega fyrir um rykfok vegna flókins samspils vinds, raka, ástands yfirborðs og annarra þátta í lofthjúpnum. Gervigreindarlíkön geta hins vegar nýtt mikið magn gagna, þar á meðal áratuga raðir gervitunglamælinga, til að greina virk upptakasvæði ryks og meta hvert rykið muni berast.

WMO bendir þó á að engin ein aðferð skili bestum árangri við allar aðstæður. Sum kerfi henta betur fyrir skammvinna og staðbundna rykbyli en önnur fyrir umfangsmikla atburði sem þróast og fara yfir stór landsvæði á nokkrum dögum.

Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur frá árinu 2007 samræmt samstarf ríkja og vísindastofnana um mælingar, spár og viðvaranir vegna sand- og rykstorma.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur helgað 12. júlí baráttunni gegn sand- og rykstormum og útnefnt árin 2025–2034 sem áratug baráttunnar gegn slíkum atburðum. Yfirskrift dagsins í ár er: Frá upptökum til afleiðinga: Verndum land og líf gegn sand- og rykbyljum.

Nánari upplýsingar

Umfangsmikið jarðvegsfok á Íslandi

Áhrif á loftgæði, samgöngur, jökla og loftslag

Hop jökla getur skapað ný foksvæði

Óvenju miklir sand- og rykbylir árið 2025

Alþjóðlegt samstarf um vöktun og viðvaranir

Nánari upplýsingar