Hættumat vegna jökulhlaupa frá Bárðarbungu til vesturs og suðurs

03.11.2026

Hættumat vegna jökulhlaupa frá Bárðarbungu til vesturs og suðurs

Jökulhlaup vegna eldgosa undir jökli í Bárðarbungukerfinu gætu ógnað byggð og mikilvægum innviðum á Suðurlandi. Þetta kemur fram í skýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Líkur á slíkum hlaupum eru litlar en afleiðingarnar gætu orðið víðtækar. Niðurstöðurnar veita grunn að viðbragðsáætlunum og undirbúningi vegna mögulegra hlaupa.
Kort af vatnasviðum Þjórsár, Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum. Örvar sýna mögulegar leiðir jökulhlaupa frá Bárðarbungukerfinu.

Kort af vatnasviðum Þjórsár, Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum. Örvar sýna mögulegar leiðir jökulhlaupa frá Bárðarbungukerfinu.

Bárðarbungukerfið er eitt stærsta og virkasta eldstöðvakerfi landsins. Stór hluti þess er hulinn Vatnajökli og eldgos undir jöklinum geta brætt mikinn ís og valdið jökulhlaupum. Í skýrslunni er metið hvert hlaupvatn gæti leitað til vesturs og suðurs, hversu djúpt það gæti orðið og hve langan tíma tæki fyrir það að ná til byggðar.

Fimm sviðsmyndir reiknaðar

Rannsóknin byggir á eldgosasögu, landlíkönum og hermun á framrás hlaupvatns. Reiknaðar eru fimm sviðsmyndir vegna eldgosa undir Köldukvíslarjökli, Sylgjujökli, innan Bárðarbunguöskjunnar og í vesturhlíðum hennar.

Hámarksrennsli við jökuljaðar er á bilinu 6.650 til 100.000 rúmmetrar á sekúndu. Gróflega metinn endurkomutími atburðanna er á bilinu 500 til 10.000 ár eftir sviðsmyndum. Endurkomutími lýsir tíðni atburða til lengri tíma en segir ekki til um hvenær næsti atburður verður.

Í hermununum eru meðal annars kannaðar mismunandi forsendur um hvort stíflur og flóðvör haldi eða rofni. Sviðsmyndirnar lýsa mögulegum atburðum og afleiðingum þeirra en eru ekki spá um tiltekið eldgos eða jökulhlaup.

Byggð og mikilvægir innviðir á mögulegum hlaupleiðum

Niðurstöðurnar sýna að hlaup gætu náð til hluta byggðar á Hellu, í Árnesi, í Þykkvabæ, á Skeiðum og víðar á Suðurlandi. Umfangið er mismunandi eftir sviðsmyndum.

Hlaupin gætu einnig valdið skemmdum á virkjanamannvirkjum, raforkuflutningskerfi, vegum og brúm og flætt yfir ræktar- og beitarland. Röskun á raforkuframleiðslu, samgöngum og atvinnulífi gæti því orðið mikil og varað lengur en hlaupin sjálf.

Kort af reiknaðri útbreiðslu stærstu hlaupsviðsmyndarinnar frá Bárðarbungu. Hlaupvatn berst um hálendið vestan Vatnajökuls og yfir hluta Suðurlandsundirlendis til sjávar. Bláir litir sýna útbreiðslu við mismunandi forsendur um stíflurof.

Reiknuð útbreiðsla stærstu hlaupsviðsmyndarinnar, Ham01. Ljósblátt sýnir niðurstöður þar sem stíflur og flóðvör halda en dökkblátt niðurstöður með mögulegu rofi þeirra.

Viðvaranir og rýmingar skipta máli

Samkvæmt líkanreikningunum líða margar klukkustundir frá því að hlaup koma fram við jökuljaðar þar til þau ná til byggðar. Í stærstu sviðsmyndinni reiknast framrásartíminn um 11 klukkustundir niður í Þjórsárdal og um 14 klukkustundir að Hellu.

Þessi tími gæti nýst til viðvarana og rýmingar. Raunverulegur viðbragðstími fer þó meðal annars eftir því hvenær hlaupsins verður vart. Tryggja þarf að viðvaranir nái til íbúa, ferðafólks og annarra sem dvelja á svæðinu og að fólk viti hvernig bregðast skuli við.

Kort sem sýnir reiknaða hættu fyrir fólk og framrásartíma í stærstu hlaupsviðsmyndinni frá Bárðarbungu. Litir tákna hættustig eftir vatnsdýpi og straumhraða. Svartar línur sýna klukkustundir frá því að hlaupið kemur fram við jökuljaðar

Reiknað tjónmætti og framrásartími í stærstu hlaupsviðsmyndinni, Ham01, við forsendur um mögulegt rof stíflna og flóðvara. Svartar línur sýna tíma frá því að hlaup kemur fram við jökuljaðar.

Lítil árleg dánaráhætta en tilefni til undirbúnings

Árleg dánaráhætta einstaklinga var metin á völdum stöðum innan mögulegra flóðasvæða. Þótt afleiðingar stórra hlaupa gætu orðið alvarlegar er reiknuð dánaráhætta lítil, enda eru slíkir atburðir sjaldgæfir.

Niðurstöðurnar undirstrika engu að síður mikilvægi viðbragðsáætlana, öruggrar upplýsingamiðlunar og undirbúnings til að draga úr mögulegu tjóni.

Verkefnið er hluti af GOSVÁ, heildarhættumati vegna eldgosa á Íslandi, og var unnið með stuðningi Ofanflóðasjóðs, Landsvirkjunar, Vegagerðarinnar, Landsnets og HS Veitna.