17.04.2026
Gervihnattamælingar veita nýja innsýn í eðli jökulhlaupa
Ný rannsókn bendir til þess að jökulhlaup frá Grímsvötnum þróist með öðrum hætti en hingað til hefur verið talið. Niðurstöðurnar birtust í apríl í grein í vísindatímaritinu Nature Communications.
Jökulhlaup í Skeiðará og öðrum vatnsföllum á Skeiðarársandi frá Grímsvötnum í Vatnajökli hafa verið rannsökuð af vísindamönnum í hartnær öld og fyrsta vísindakenningin um eðli jökulhlaupa, sem birtist árið 1976, var byggð á mælingum og athugunum Íslendinga á Skeiðarárhlaupum. Þar komu meðal annarra við sögu Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, og Helgi Björnsson, jöklafræðingur. Þessi fyrsta kenning um eðli jökulhlaupa gerði ráð fyrir því að farvegur hlaupsins undir jökli væri líkastur garðslöngu sem skrúfað væri frá þannig að hlaupvatn færi að renna niður endilangan farveginn. Farvegurinn stækkaði síðan við það að hlaupvatnið bræddi jökulísinn í veggjum sívalningslaga ísganga undir jöklinum. Sívalningslaga útföll við jökuljaðarinn og vöxtur rennslisins samræmdust þessari hugmynd um þróun hlaupfarvegarins og formúla sem kenningin fól í sér um vöxt rennslisins féll vel að mælingum Sigurjóns Rist í Skeiðarárhlaupinu í mars 1972.

Hreyfing GPS-stöðvar um 17 km sunnan við Grímsvötn í jökulhlaupinu 2021. Rauði ferillinn sýnir hæðarbreytingu og sá blái láréttan hraða. Fyrstu merki um leka úr Grímsvötnum greindust 15. nóvember. Flóðbylgjan náði að stöðinni 24. nóvember og að jökulsporðinum 27. nóvember. Hámarksrennsli úr Grímsvötnum var nærri 3.600 m³/s og náðist að kvöldi 4. desember. Ljósblái borðinn sýnir láréttan hraða fyrir hlaupið.
Nýjar gervihnattamælingar, rennslismælingar í Gígjukvísl við jökuljaðarinn og mælingar á yfirborði jökulsins, bæði í Grímsvötnum og yfir farvegi hlaupsins neðar á jöklinum, sýna að þróun jökulhlaupa frá Grímsvötnum er talsvert frábrugðin þessum upprunalegu hugmyndum um eðli hlaupanna. Mælingarnar sýna að hlaupvatnið berst í upphafi niður eftir jökulbotninum sem nokkurra kílómetra breiður flóðfaldur sem lyftir jöklinum u.þ.b. 1 m á stóru svæði. Þegar jökullinn lyftist frá botninum, og missir því að hluta til „fótfestuna“, herðir hann á sér og skrið jökulíssins vex u.þ.b. fimmfalt á stað 17 km neðan Grímsvatna þar sem GPS mælitæki á yfirborði nam þessar breytingar árið 2021, sjá bláan feril á meðfylgjandi mynd. Í jökulhlaupum haustin 2021 og 2022 voru hlaupin tæplega viku að berast niður eftir jöklinum með þessum hætti og unnt var að meta rúmmál hlaupvatns sem safnaðist í víðáttumikil lón undir jöklinum sem svo tæmdust undir lok hlaupsins, sjá meðfylgjandi myndaröð. Þessi þróun hlaupanna er að sumu leyti sambærileg við svokölluð hraðvaxandi jökulhlaup úr Skaftárkötlum í vestanverðum Vatnajökli sem einnig hafa verið rannsökuð með gervihnattamælingum og sýna svipaða þróun flóðbylgju í upphafi hlaupanna, en þau vaxa mun hraðar en flest Grímsvatnahlaup.
Að rannsókninni unnu vísindamenn við Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnun, ENVEO IT GmbH í Austurríki, ICEYE Oy í Finnlandi og Háskólann í Toulouse í Frakklandi.

Þróun jökulhlaups frá Grímsvötnum, byggð á mælingum á hlaupunum 2021 og 2022. Myndir a–f sýna hvernig vatn breiðist út og safnast í lón undir Skeiðarárjökli áður en þau tæmast. Innfellda línuritið sýnir vatnssöfnunina og tímasetningu hvers skeiðs á um þriggja vikna tímabili. Nánari lýsing á skeiðunum er hér fyrir neðan.
Lykilgögn í þessum rannsóknum eru radarmyndir frá gervihnöttum (ICEYE) sem eru á braut um jörðu í um 500–600 km hæð. Svokölluð bylgjuvíxlgreining gerir kleift að meta lárétta og lóðrétta hreyfingu á yfirborði jarðar eða jökla upp á einungis nokkra mm. Þessar mælingar eru notaðar við vöktun á eldfjöllum, mat á jarðskorpuhreyfingum, vöktun á skriðusvæðum og margvíslegar aðrar rannsóknir í jarðvísindum.