Frá alsól til almyrkva: Orð sem vakti forvitni um veðursöguna

16.11.2026

Nýtt

Frá alsól til almyrkva: Orð sem vakti forvitni um veðursöguna

Efnisyfirlit

Tveimur dögum áður en tunglið huldi sólina í almyrkva blöstu heil sólartákn við á öllum yfirlitsstöðvum á veðurkorti Veðurstofu Íslands. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason kallaði þetta „alsól“ í færslu á Facebook. Orðið vakti forvitni og varð tilefni til að skoða nær 80 ára sögu skýjahuluathugana Veðurstofunnar. Niðurstaðan var athyglisverð: Á öllu tímabilinu fundust aðeins 81 dagur þegar ský huldu að meðaltali minna en fjórðung himins yfir landinu.

Veðurspákort Veðurstofu Íslands fyrir klukkan 12 mánudaginn 10. ágúst 2026. Sólartákn eru við allar yfirlitsstöðvar landsins og sýna heiðskírt veður um allt land. Spáð er 11 til 16 stiga hita og hægum vindi víðast hvar.

Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir 10. ágúst 2026 klukkan 12. Sólartákn voru við allar yfirlitsstöðvar landsins. Kortið hefur verið endurgert í nýju útliti Veðurstofunnar og sýnir sömu spá og birtist á upprunalega kortinu.

Íslenskan, veðrið og ný orð

Í tilefni dags íslenskrar tungu, 16. nóvember, beinum við sjónum að orðunum sem við notum um veðrið. Í fyrra rifjuðum við upp þann ótrúlega fjölda orða sem íslenskan á yfir vindinn, allt frá mildum andvara til mannskaðaveðurs.

Vindurinn á íslensku: 391 orð um vindinn

Í íslensku eigum við ótrúlegan fjölda orða um vindinn, allt frá mildum andvara til mannskaðaveðurs. Við tölum um þey, nepju, næðing og rok. Og vindurinn lætur ekki aðeins á sér kræla utandyra. Inni í húsum finnum við fyrir dragsúg, trekk og gegnumtrekk.

Á degi íslenskrar tungu árið 2025 birti Veðurstofa Íslands orðasafn um vindinn á Facebook. Síðan hefur safnið stækkað og telur nú 391 orð og orðasamband sem lýsa vindinum í öllum sínum myndum, en einnig logni, loftstreymi innandyra og ýmsum veðurfyrirbærum.

Orðin eru lauslega flokkuð eftir merkingu og notkun. Sum eru hversdagsleg, önnur sjaldgæf, gömul eða staðbundin. Listinn er að sjálfsögðu ekki tæmandi.

Hvert er eftirlætisorðið þitt um vindinn? Vantar eitthvað orð í safnið?

Nokkur orð í samhengi

Þurrkur og blíðir vindar

„Þurravindur og blíðavindur leika um túnin, goluvindur strýkur yfir engjarnar og ekkert útlit er fyrir úrkomu og sudda.“

Leiðindaveður með smá kulda

„Nepjugjóstur og hryssingskaldi skiptast á um að lemja á glugga, kuldagjóla og stinningsgola gera daginn gráan og kaldan.“

Sjóveður með krafti

„Útsynningsrok og norðanstrekkingur berast yfir fjörðinn, vindstrengur og súgvindur hrinda hvítfyssandi öldum á land.“

Vindáttir og fjallablær

„Norðangustur og austanstrekkingur mætast í dalnum, fjallþeyr og landnyrðingskaldi bera með sér kulda úr fjallahringnum.“

Ofsafengið og hættulegt veður

„Ofsarok og mannskaðaveður skella á með brunanæðingi og gjörningaveðri sem koma öllu úr skorðum.“


📚 Orðasafnið

🌪️ 1. Rok, stormar og ofsaveður

afspyrnurok · afspyrnuveður · aftakarok · aftakaveður · amrandi · amringur · belgingsvindur · belgingur · brunanæðingur · byljaveður · bylstroka · bálhvasst

bálrok · bálviðri · básaveður · drifarok · feiknastormur · fellibylur · fok · foráttuveður · fárviðri · gjörningaveður · gufurok · hundaveður

hvínandi rok · hvítarok · háarok · hárok · hávaðarok · hávaðastormur · hífandi rok · hörkurok · kuldastormur · kuldastroka · landnyrðingsrok · landsunnanrok

landsynningsrok · manndrápsveður · mannskaðaveður · norðanbelgingur · norðanbál · norðanbálviðri · norðanhvassviðri · ofsarok · ofsastormur · ofsaveður · ofviðri · rauðarok

rok · roka · rokbelgingur · rokbylur · rokhrina · rokhviða · roksperringur · rokstormur · rokstrengur · rokuveður · rokveður · rokviðri

rosakafli · stinningsrok · stinningsstormur · stormakast · stormar · stormatíð · stormbelgingur · stormhraglandi · stormhryssingur · stormsteyta · stormur · stormveður

stormviðri · strekkingsstormur · stálballarsteytingur · stálballarstinningur · stólparok · stórastormur · stórballarsteytingur · stórrok · stórveður · stórviðri · tíkargjóla · uppgangsrok

vetrarnæðingur · vindbelgingur · vindfrassi · vindhviða · vindkast · vindnæðingur · vindsperringur · vindsteyta · vindsteytingur · vindstrekkingur · vindstrengur · vindstroka

vindsúgur · vindþoka · vindþota · vonskuveður · óveður · öskrandi rok · öskurok · útnyrðingsrok · útræna · útsynningshraglandi · útsynningsrok

🍃 2. Gola, blær og hægir vindar

andblær · andi · andkul · andvari · blástur · blær · blíðavindur · blíðvindur · blökur · byr · dalagola · dalgola

gjóla · gjóluvindur · gjóna · gol · gola · goluvindur · gustur · gára · hafgola · hægviðri · kvöldgola · ljúfvindi

ljúfvindur · morgunkul · sagandi · stinningsgola · sumarblær · svalvindur · vindblær · vindgjóla · vindgola · vindgára · vindgári · vindkul

vindsvali · vorblær · þeyr · þurravindur

❄️ 3. Kuldi, nístingur og frostvindar

frostgola · frostkul · frostnæðingur · frostvindur · hryssingskaldi · hráslagavindur · kaldaskítur · kaldi · kali · kalsavindur · kul · kuldablástur

kuldabál · kuldagarri · kuldagjóla · kuldagola · kuldagusa · kuldagustur · kuldanæðingur · kuldasteyta · kuldasteytingur · kuldastrekkingur · kuldastrengur · kuldasúgur

kuldaþræsingur · kvöldkul · nepja · nepjublástur · nepjugjóstur · nepjugustur · nepjukaldi · norðangarri · norðangjóstur · norðangustur · norðankaldi · norðannæðingur

norðansteytingur · norðaustansvali · náttkul · náttkæla · næturkul · næturkylja · næturkæla · nætursvali · nístingskaldi · stinningskaldi · svalrok · vetrarrosi

🌤️ 4. Þeyr, hláka og hlýir vindar

bráðaþeyr · fjallaþeyr · fjallþeyr · fönvindur · hláka · hlákuþeyr · hlývindur · hnjúkaþeyr · landþeyr · sunnanþeyr · sunnanþræsingur · vorþeyr

þerrivindur · þeyvindi · þeyvindur · þíðvindi · þíðvindur

🏔️ 5. Fjallavindar og fallvindar

fallvindur · fjallasperra · fjallasperringur · fjallastormur · fjallasvali · fjallavindur · fjallkast · fjallræna · fjallvindur

🌀 6. Hvirflar, sveipir og vindstrengir

hvirfilbylur · hvirfilstrókur · hvirfilsveipur · hvirfilvindur · kastvindur · snarvindur · snerra · snerta · sveipvindur · sviptibylur · sviptivindur · svipvindur

vindsveipur · æsivindur · þyrilvindur

🌊 7. Sjávarvindar og vindar við strönd

brimleysa · bræla · hafkaldi · hafkul · hafnyrðingur · hafnæðingur · innlögn · súgvindur · útlögn

🧭 8. Vindáttir og staðbundnir vindar

engjahjallarok · hafvindur · hliðarvindur · landkul · landsynningsvindur · landsynningur · meðvindur · monsúnvindur · mótvindur · norðanvindur · sunnankaldi · sunnanátt

suðræna · undanvindur · vestanblær · vestangúlpur · álandsvindur · útnyrðingskaldi · útnyrðingur · útsynningur

💨 9. Önnur vind- og veðurorð

barveður · bosvindur · brok · derringur · drif · fjúk · galdraveður · gambur · gani · garri · gerringur · gjóstur

gráð · gussungur · gúlpur · hrakviðri · hregg · hríð · hvass vindur · hvassveður · hvassviður · hviða · háloftavindur · illviðri

kjargrandi · kuðrunta · Kári · lægð · misserisvindur · misvindi · misvindur · músarbylur · njóður · næpingur · næðingur · ofsi

remba · rembingur · rumba · runta · rysja · ræna · skakviðri · skaraveður · skerpingsgjóla · slafurgola · slagveður · slaukvindi

snarpur · snarpur vindur · sperra · sperringur · steglingur · steyta · steytingur · stormsagandi · strekkingur · strengur · streyta · streytingur

strykur · stífur vindur · sunnanrunta · svali · sveljandi · svipur · súgur · túða · veðrahamur · veðurofsi · vindblástur · vindflapur

vindgarður · vindgnauð · vindgnýr · vindgráð · vindgustur · vindröst · vindsveljandi · áhlaup · ókjör · þota · þræsingsvindur · þræsingur

þurrakaldi · þurranæðingur · þurrastormur · þurrvindur · þyrrkingsvindur · þéttingsgola · þéttingskaldi · þéttingsstormur · þéttingsvindur

🌨️ 10. Vindur, snjófok, sandfok og moldrok

lágarenningur · moldrok · sandbylur · sandfok · skafrenningur · snjófok

🌙 11. Logn og kyrrð

dúnalogn · kopparlogn · kyrrviðri · logn · lágdeyða · lægi · rjómalogn · stafalogn · stilla · ördeyða

🏠 12. Vindur og loftstreymi innandyra

drag · dragsúgur · gegnumtrekkur · kuldadrag · loftdrag · loftræstisúgur · loftstreymi · loftsúgur · niðurstreymi · strompsúgur · trekkur · uppstreymi

Orðasambönd: dragsúgur undir hurð · trekkur úr glugga · gegnumtrekkur í húsinu · súgur upp um stromp · loftið leikur um herbergið

📌 Frekari fróðleikur

Veðurstofa Íslands – helstu orð sem notuð eru í umfjöllun um veður
https://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/936

184 orð yfir vind á Þjóðtrúarvefnum
https://thjodtru.is/184-ord-yfir-vind/

Orð sem voru tvítekin í eldri listanum hafa verið sameinuð. Safnið er ætlað til fróðleiks, en er ekki staðfest orðfræðileg skrá yfir vindheiti.

Orðaský með fjölmörgum íslenskum orðum um vind og veður í mismunandi stærðum og bláum, rauðum og gráum litbrigðum á hvítum grunni. Mest áberandi eru orðin „rok“, „afspyrnurok“, „hávaðarok“, „brunanæðingur“, „hvasst“ og „hráslagavindur“. Minni orð eru meðal annars „andblær“, „dalagola“, „byljaveður“, „fjallasperra“ og „belgingur“.

Orðaský með Facebook-færslunni 2025

En orðaforðinn yfir heiðan himin er einnig fjölbreyttur. Himinninn getur verið heiðskír, heiðbjartur, skafheiðríkur, sólheiður eða skýjalaus.

Í sumar bættist orðið alsól við umræðuna þegar landsmenn biðu almyrkvans 12. ágúst. Orðið lýsti spánni sem birtist á veðurkortinu tveimur dögum fyrir almyrkvann: heiðskírt um allt land, en vakti jafnframt áhugaverða spurningu: Hversu oft er svo heiðskírt um nær allt Ísland á sama degi?

Dagur íslenskrar tungu er haldinn á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, sem var ekki aðeins skáld heldur líka náttúrufræðingur og ötull orðasmiður. Hann lagði sitt af mörkum til að skapa íslenskan orðaforða um náttúru og vísindi.

Jónas Hallgrímsson og orðin um himininn


Jónas Hallgrímsson var skáld og náttúrufræðingur. Hann fæddist 16. nóvember 1807 á Hrauni í Öxnadal. Hann lærði náttúrufræði í Kaupmannahöfn, lauk lokaprófi 1838 og rannsakaði náttúru Íslands á ferðum um landið 1839 til 1842. Ríkisstjórnin ákvað árið 1995 að helga fæðingardag hans íslenskri tungu.

Árið 1842 kom út bókin Stjörnufræði, létt og handa alþýðu, þýðing Jónasar á riti danska stjörnu- og stærðfræðingsins Georgs Frederiks Ursins, Populært Foredrag over Astronomien. Þar smíðaði Jónas mörg orð um himin og eðlisfræði sem við notum enn. Meðal orða sem eru eignuð honum eru:

  • aðdráttarafl
  • hitabelti
  • ljósvaki
  • sjónarhorn
  • sjónauki
  • sporbaugur
  • sólmyrkvi
  • og almyrkvi

Áður höfðu orðin dráttarkraftur og aðdráttarkraftur verið lögð til, en hvorugt festist. Aðdráttarafl gerði það.

Sum orðin höfðu aðra merkingu en nú. Ljósvaki er hjá honum orð yfir það sem á dönsku var kallað „æther“, sporbaugur yfir „ellipse“ og fjaðurmagnaður yfir „elastisk“. Sjónauki var hjá Jónasi sjálfum orð yfir það sem nú heitir smásjá.

Orðið alsól er myndað á sama hátt og almyrkvi, með forliðnum al-.

Heimildir

Orðið alsól er skemmtilegt dæmi um hvernig íslenskan heldur áfram að þróast. Í þetta sinn varð nýtt orð í umræðu um veðurkort tilefni til að skoða nær 80 ára veðursögu.

Aðeins 81 dagur á tæpum 80 árum

Til að svara spurningunni tóku Trausti Jónsson veðurfræðingur og Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna, saman skýjahuluathuganir frá mönnuðum veðurstöðvum Veðurstofu Íslands allt aftur til ársins 1949.

alt=""

Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á veðurkort í sjónvarpssal RÚV í október 1991. Á kortinu má sjá hvernig skýjahula var sýnd með hringjum sem voru fylltir mismikið eftir því hversu skýjað var. Bogi Ágústsson er í bakgrunni. Myndin var tekin þegar veðurfréttir voru rifjaðar upp í anda þess sem tíðkaðist 25 árum fyrr. Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson / Borgarsögusafn Reykjavíkur.

Þau reiknuðu meðalskýjahulu fyrir hvern dag og könnuðu hversu oft hún hefði verið minni en tveir áttunduhlutar, sem þýðir að innan við fjórðungur himins var hulinn skýjum að meðaltali. Frá 1949 til 10. ágúst 2026 fundust aðeins 81 dagur sem uppfyllti þetta skilyrði, eða rétt rúmlega einn dagur á ári að meðaltali.

Dagurinn 10. ágúst var einn þeirra. Meðalskýjahulan var 1,94 áttunduhlutar og reyndist hann sjöundi heiðasti ágústdagurinn í samantektinni.

Þótt sólartáknin á veðurspákortinu hafi vakið spurninguna byggist samantektin á skýjahuluathugunum en ekki veðurspám. Því er ekki um nákvæmlega sama mælikvarða að ræða.

Hvað eru áttunduhlutar?

Skýjahula er metin í áttunduhlutum eftir því hversu stór hluti himinsins er hulinn skýjum. Kvarðinn nær frá núlli upp í átta. Núll merkir heiðskírt, fjórir að helmingur himinsins sé hulinn skýjum og átta að alskýjað sé.

Á hefðbundnum veðurkortum er skýjahula sýnd með hringjum sem eru skyggðir eftir því hversu stór hluti himinsins er hulinn skýjum. Óskyggður hringur táknar heiðskírt veður, hálfskyggður hringur að helmingur himinsins sé hulinn skýjum og alskyggður hringur alskýjað veður.

Skýjahula er metin í áttunduhlutum, frá 0/8 þegar himinninn er alveg heiðskír til 8/8 þegar hann er alskýjaður. Því stærri hluti hringsins sem er skyggður, þeim mun meiri er skýjahulan. Hver áttunduhluti samsvarar 12,5% af himinhvolfinu.

Heiðasti dagurinn var í maí 2025

Heiðasti dagurinn í samantekt Trausta og Kristínar Bjargar var 18. maí 2025. Þá var meðalskýjahulan aðeins 0,68 áttunduhlutar, sem jafngildir því að um 8,5% himinsins hafi að meðaltali verið hulin skýjum. Dagurinn féll í miðja óvenjulega hitabylgju sem gekk yfir Ísland í maí það ár.

Aðeins fjórir dagar í samantektinni voru með meðalskýjahulu undir einum áttunduhluta.

Heiðustu dagarnir

Dagsetning

Meðalskýjahula (af 8)

18. maí 2025

0,68

2. apríl 1999

0,73

14. september 1994

0,83

13. júlí 1992

0,96

1. júní 2012

1,07

Árið 2012 sker sig einnig úr. Þá voru sjö dagar með meðalskýjahulu undir tveimur áttunduhlutum, fleiri en nokkurt annað ár í samantektinni. Fjórir þeirra komu í röð, frá 31. maí til 3. júní, og mynda lengsta samfellda heiðviðriskastið samkvæmt þessari skilgreiningu.

Þegar dagarnir 81 eru skoðaðir eftir mánuðum kemur í ljós að maí og september eiga flesta, 13 hvor. Október á hins vegar aðeins einn slíkan dag, 23. október 1966.

Súlurit sem sýnir fjölda daga með meðalskýjahulu undir tveimur áttunduhlutum eftir mánuðum frá 1949 til 10. ágúst 2026. Flestir dagar voru í maí og september, 13 í hvorum mánuði, en fæstir í október, aðeins einn.

Fjöldi daga eftir mánuðum þegar meðalskýjahula á Íslandi var undir tveimur áttunduhlutum á tímabilinu 1949 til 10. ágúst 2026. Heimild: Veðurstofa Íslands.

Veðursagan varðveitt í athugunum

Samantekt Trausta og Kristínar Bjargar byggist á skýjahuluathugunum frá mönnuðum veðurstöðvum. Fjöldi og dreifing stöðvanna hefur breyst mikið á tímabilinu, einkum eftir að sjálfvirkar veðurstöðvar tóku við stórum hluta veðurmælinga.

Því þarf að hafa fyrirvara á samanburði milli ára og áratuga. Gögnin gefa þó góða vísbendingu um hvaða dagar hafa verið óvenju heiðir á landsvísu.

Frá alsól til almyrkva á tveimur dögum

Gervihnattamyndir frá 10. og 12. ágúst sýna glögglega hversu breytilegt skýjafarið getur verið á Íslandi.

Á MODIS-mynd frá 10. ágúst klukkan 11:15 sést stór hluti landsins vel og víða er lítið um ský. Tveimur dögum síðar, 12. ágúst klukkan 10:55, er mun meiri skýjahula yfir landinu og stór hluti þess hulinn skýjum.

Myndirnar eru teknar að morgni beggja daga og sýna því ekki skýjahuluna þegar almyrkvinn varð síðar 12. ágúst. Þær sýna hins vegar vel hversu mikið veðrið getur breyst á skömmum tíma.

Tvær MODIS-gervihnattamyndir af Íslandi, teknar 10. og 12. ágúst 2026. Á myndinni til vinstri sést stór hluti landsins vel og víða er lítið um ský. Á myndinni til hægri, tveimur dögum síðar, er mun meiri skýjahula og stærstur hluti landsins hulinn skýjum.

Gervihnattamyndir frá 10. og 12. ágúst 2026 sýna mikinn mun á skýjafari. Á myndinni til vinstri sést stór hluti Íslands vel og víða er lítið um ský. Á myndinni til hægri, sem tekin var tveimur dögum síðar, er mun meiri skýjahula yfir landinu. Myndirnar voru teknar um klukkan 11 að morgni beggja daga, áður en almyrkvinn varð 12. ágúst. Myndir: MODIS / Veðurstofa Íslands.

Þannig varð eitt orð í færslu á samfélagsmiðlum tilefni til að skoða nær 80 ára sögu veðurathugana en sagan nær þó mun lengra aftur. Orðið alsól lýsir sjaldgæfu fyrirbæri en minnir um leið á hvernig tungumálið getur vakið nýjar spurningar um náttúruna og það sem við teljum okkur þekkja.

Hugum vel að íslenskunni og öllum fallegu orðunum sem hafa orðið til í aldalöngum samskiptum okkar við landið, veðrið og náttúruna. Tungumálið er þó lifandi og gefur okkur sífellt tækifæri til að finna ný orð yfir það sem fyrir augu ber.

Gleðilegan dag íslenskrar tungu!

Íslenskan, veðrið og ný orð

Aðeins 81 dagur á tæpum 80 árum

Hvað eru áttunduhlutar?

Heiðasti dagurinn var í maí 2025

Veðursagan varðveitt í athugunum

Frá alsól til almyrkva á tveimur dögum

Gleðilegan dag íslenskrar tungu!