02.06.2026
El Niño í uppsiglingu
Miklar líkur eru á að El Niño myndist í Kyrrahafi sumarið 2026, samkvæmt Alþjóðaveðurfræðistofnuninni. Fyrirbærið getur haft áhrif á hitafar, úrkomu og veðuröfgar víða um heim, en tengsl þess við veður á Íslandi eru óbein og óljósari.
El Niño-skilyrði eru að þróast í Kyrrahafi, samkvæmt nýrri greiningu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). El Niño er náttúrulegt fyrirbæri sem tengist óvenju hlýjum yfirborðssjó í mið- og austanverðu hitabelti Kyrrahafs.
WMO metur líkurnar á El Niño um 80 prósent á tímabilinu júní til ágúst 2026. Fyrir tímabilin júlí til september, ágúst til október og september til nóvember eru þær metnar um eða yfir 90 prósent. Árstíðaspár fyrir júní til ágúst benda jafnframt til hita yfir meðallagi á stórum hluta jarðar.
Áhrif El Niño eru mjög misjöfn eftir heimshlutum og ekki er hægt að draga beinar ályktanir um veður á einstökum stöðum út frá fyrirbærinu einu saman.
Hvað er El Niño?
El Niño verður þegar yfirborð sjávar á víðfeðmu svæði í mið- og austanverðu hitabelti Kyrrahafs verður óvenju hlýtt í nokkra mánuði eða lengur.
Fyrirbærið er hluti af náttúrulegri sveiflu í haf- og lofthjúpi sem nefnist ENSO, eða El Niño–Southern Oscillation. Sveiflan getur birst sem El Niño, La Niña eða hlutlaust ástand. Í El Niño er yfirborðssjór á þessu svæði hlýrri en venjulega, en í La Niña er hann kaldari.
Heitið El Niño kemur úr spænsku og merkir bókstaflega „drengurinn“, en í þessu tilfelli er átt við „Jesúbarnið“. Nafnið á rætur að rekja til fiskimanna við strendur Suður-Ameríku sem tóku eftir því að hlýr sjór birtist stundum við strendur Ekvador og Perú um jólaleytið. Síðar var farið að nota heitið um víðtækari hlýnun sjávar í hitabelti Kyrrahafs.
Hvernig myndast El Niño?
Við venjulegar aðstæður blása staðvindar yfir hitabelti Kyrrahafs frá austri til vesturs og ýta hlýjum yfirborðssjó í átt að Indónesíu og Ástralíu. Við strendur Suður-Ameríku streymir þá kaldari og næringarríkur sjór upp frá neðri lögum sjávar. Yfirborðssjórinn þar er því að jafnaði kaldari en vestar í hafinu.
Þegar dregur úr staðvindunum getur hlýr yfirborðssjór færst austar og uppstreymi kalds sjávar við Suður-Ameríku minnkað. Hlýnun sjávar og breytingar á vindum geta síðan styrkt hvor aðra og El Niño þróast.
Við þetta breytist samspil hafs og lofthjúps á stóru svæði. Breytingarnar geta haft áhrif á loftstrauma, skýjamyndun og úrkomumynstur víða um heim.
-768x432.webp)
Samanburður á El Niño og La Niña í hitabelti Kyrrahafs. Í El Niño (til vinstri) nær hlýr yfirborðssjór lengra austur og úrkomumynstur breytist. Í La Niña (til hægri) er uppstreymi kalds sjávar í austanverðu hafinu öflugra og hlýjasti yfirborðssjórinn safnast í vesturhlutanum. Mynd: WMO.
Áhrif á veðurfar víða um heim
El Niño tengist oft hærra hitastigi á heimsvísu. Hann getur aukið líkur á hitabylgjum, mikilli úrkomu og flóðum á sumum svæðum, en þurrkum á öðrum.
Áhrifin eru þó mismunandi frá einum El Niño-atburði til annars. Þau ráðast meðal annars af styrk atburðarins, árstíma og samspili við aðrar sveiflur í loftslagskerfinu.
El Niño tengist gjarnan aukinni úrkomu á sumum svæðum í sunnanverðri Suður-Ameríku, suðurríkjum Bandaríkjanna, á Horni Afríku og í Mið-Asíu. Þurrkar verða oft líklegri í Ástralíu, Indónesíu og hluta Suður-Asíu.
El Niño getur einnig haft áhrif á fellibyljavirkni. Algengt er að hann dragi úr virkni á Atlantshafi, en auki hana í mið- og austanverðu Kyrrahafi.
Hefur El Niño áhrif á Ísland?
Áhrif El Niño á Ísland eru óbein og óljósari en á mörgum svæðum nær Kyrrahafi. Veðurfar hér á landi ræðst fyrst og fremst af veðurkerfum yfir Norður-Atlantshafi, stöðu lægða og hæðasvæða, sjávarhita og öðrum þáttum.
Breytingar á loftstraumum og veðurkerfum vegna El Niño geta þó náð út fyrir Kyrrahafssvæðið. Því er fylgst með þróuninni sem hluta af stærra veðurfars- og loftslagskerfi.
Ekki er hægt að segja til um veður á Íslandi á næstu mánuðum út frá El Niño einum saman. Jafnframt þarf að varast að tengja einstök veðurtilvik hér á landi beint við fyrirbærið.
El Niño og loftslagsbreytingar
El Niño er náttúrulegt fyrirbæri og hefur lengi verið hluti af loftslagskerfi jarðar. Ekki hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að loftslagsbreytingar fjölgi El Niño-atburðum eða geri þá sterkari.
Hlýrra loftslag getur hins vegar magnað áhrif þeirra. Hlýrra andrúmsloft getur haldið meiri raka og hlýrri sjór getur aukið orkuna sem er tiltæk fyrir veðurkerfi. Hitabylgjur og úrhelli geta því orðið alvarlegri þegar áhrif El Niño leggjast við hlýnun jarðar.
Hvers vegna er fylgst með El Niño?
Veðurstofur og alþjóðastofnanir fylgjast náið með El Niño vegna þess að fyrirbærið getur haft áhrif á samfélög, landbúnað, vatnsbúskap, orkuöflun og náttúruvá víða um heim.
Árstíðaspár og regluleg vöktun geta gefið stjórnvöldum, atvinnugreinum og almenningi mikilvægan fyrirvara. Þótt ekki sé hægt að spá fyrir um öll áhrif með nákvæmni geta upplýsingarnar stutt undirbúning og viðbrögð á svæðum þar sem líkur á öfgaveðri aukast.
Myndbandið hér að neðan var birt árið 2023 og fjallar almennt um fyrirbærið.
Skýringarmyndband WMO um El Niño
Hvað er El Niño?
Hvernig myndast El Niño?
Áhrif á veðurfar víða um heim
Hefur El Niño áhrif á Ísland?
El Niño og loftslagsbreytingar
Hvers vegna er fylgst með El Niño?
Nánari upplýsingar