Alþjóðlegur dagur jökla: Uppfærð sprungukort fyrir jökla landsins

21.03.2026

Alþjóðlegur dagur jökla: Uppfærð sprungukort fyrir jökla landsins

Efnisyfirlit

Gefin hafa verið út uppfærð sprungukort fyrir jökla landsins. Kortin sýna sprungusvæði og eru ætluð til hliðsjónar við undirbúning jöklaferða. Í nýju útgáfunni hefur nokkrum minni jöklum verið bætt við og útlínur jöklanna miðast við haustið 2025.

Í tilefni alþjóðlegs dags jökla, 21. mars, er vakin athygli á nýrri útgáfu sprungukorta. Kortin hafa verið gefin út frá árinu 2010 í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg með það að markmiði að auka öryggi ferðafólks á jöklum.

Sprungusvæði í þremur flokkum

Á kortunum er sprungusvæðum skipt í þrjá flokka:

  • Lítið sprunginn jökull.
  • Mjög sprunginn jökull.
  • Breiðar sprungur og mjög hættuleg svæði.

Sprungukortin eru aðeins ætluð til hliðsjónar. Aðstæður á jöklum geta breyst fyrirvaralaust og ábyrgð á ferðinni liggur ætíð hjá þeim sem ferðast á jökli.

Ný gögn og fleiri jöklar

Sprungukortin eru að jafnaði uppfærð á nokkurra ára fresti. Þau eru teiknuð eftir myndum sem teknar eru að hausti, þegar sprungusvæði eru sýnilegri.

Í þessari útgáfu miðast útlínur jöklanna við haustið 2025 og jökulsker eru einnig sýnd. Kortlagning sprungusvæða byggist á fjölbreyttum fjarkönnunargögnum, meðal annars gervitunglamyndum, loftmyndum og hæðarlíkönum. Einnig er tekið mið af þekktum ferðaleiðum ökutækja og leiðarferlum.

Síðastliðnir tveir vetur hafa verið fremur snjóléttir. Lítil snjóþekja og mikil leysing sumarið 2025 hafa gert sum sprungusvæði greinilegri en oft áður.

Í uppfærðri útgáfu hefur verið bætt við nokkrum minni jöklum, þar á meðal Tindfjallajökli, Snæfelli, Hrútfelli og Þórisjökli.

Kort af Eyjafjallajökli. Ljósgult sýnir lítið sprunginn jökul, gult mjög sprunginn jökul og appelsínugult breiðar sprungur og mjög hættuleg svæði. Appelsínugul svæði eru víða um jökulinn.

Uppfært sprungukort af Eyjafjallajökli. Litir sýna þrjá flokka sprungusvæða og útlínur jökulsins miðast við haustið 2025. Kortið er aðeins til hliðsjónar; aðstæður geta breyst fyrirvaralaust.

Kort af Öræfajökli. Ljósgult sýnir lítið sprunginn jökul, gult mjög sprunginn jökul og appelsínugult breiðar sprungur og mjög hættuleg svæði. Víðáttumikil appelsínugul svæði sjást í kringum ljósgult svæði í miðju jökulsins og á mörgum skriðjöklum.

Uppfært sprungukort af Öræfajökli. Litir sýna þrjá flokka sprungusvæða og útlínur jökulsins miðast við haustið 2025. Kortið er aðeins til hliðsjónar; aðstæður geta breyst fyrirvaralaust.

Hvar má nálgast kortin?

Gögnin eru aðgengileg í kortasjá Náttúrufræðistofnunar undir heitinu Jöklasprungukort 2025.

Á vefnum Safetravel.is verða einnig hlekkir á sprungukortin á mismunandi sniði.

Upplýsingar um nýjar sprungur má senda á jokulsprungur@vedur.is.

Samstarf um kortlagninguna

Veðurstofa Íslands hefur umsjón með uppfærslu sprungukortanna í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg, jöklahóp Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofu Suðausturlands og fleiri aðila.

Hrafnhildur Hannesdóttir, fagstjóri jöklarannsókna, og Ragnar Heiðar Þrastarson, fagstjóri landfræðilegra upplýsingakerfa, höfðu umsjón með verkinu hjá Veðurstofu Íslands.

Þrír dagar helgaðir jöklum, vatni og veðurfræði

  • 21. mars – Alþjóðlegur dagur jökla. Vekur athygli á mikilvægi jökla og hraðri rýrnun þeirra.
  • 22. mars – Alþjóðlegur dagur vatnsins. Beinir sjónum að mikilvægi ferskvatns og aðgengi að hreinu vatni.
  • 23. mars – Alþjóðlegur dagur veðurfræðinnar. Dregur fram hlutverk veðurþjónustu í öryggi og velferð samfélaga.

Dagarnir þrír undirstrika tengsl jökla, vatns og veðurfars og mikilvægi þeirra fyrir náttúru og samfélög.


Sprungusvæði í þremur flokkum

Ný gögn og fleiri jöklar

Hvar má nálgast kortin?

Samstarf um kortlagninguna

Þrír dagar helgaðir jöklum, vatni og veðurfræði