Frá vaktinni

Frá vaktinni

Tröllaskagi

Snjóflóðaaðstæður á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga

12.03.2026 | 16:53

Ratsjá Veðurstofunnar hefur greint þrjú snjóflóð ofan Flateyrar í dag, eitt í Innra‑Bæjargili og tvö í Skollahvilft. Stærstu tvö snjóflóðin hafa náð u.þ.b. niður að vörnum, sjá meðfylgjandi myndir. Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi og veginum verður lokað kl. 20 í kvöld. Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður síðan fyrir hádegi. Þá féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir á föstudag.

Snjóflóðavakt

Flateyri

Mat á snjóflóðahættu

Norðanverðir Vestfirðir

Snjóflóð

Tröllaskagi

Utanverður Tröllaskagi

Snjógryfja í Skarðsdal 5. mars

05.03.2026 | 14:13

Snjógryfja var tekin í Leyningssúlum, Skarðsdal þann 5. mars. Hún sýndi að veikleiki lifir enn á um 60 cm dýpi og brast við miðlungsálag í samþjöppunarprófi. Sögunarpróf sýndi brot á 30 cm. Lagið er greinilega enn veikt en þó gæti verið erfitt að setja af stað snjóflóð á laginu þar sem ofanáliggjandi snjóþekja er stíf.

Snjóflóðavakt

Snjógryfjur

Tröllaskagi

Snjógryfja í Illviðrishnjúk við Siglufjörð 21. febrúar

21.02.2026 | 15:34

Snjógryfja var tekin í um 877m hæð undir Illviðrishnjúki við Siglufjörð í SA vísandi hlíð. Gryfjan sýnir um 10cm þykka lausamjöll ofan á þunnu íslagi og lagskiptan snjó undir. Stöðugleikapróf gaf brot á 30cm dýpi við miðlungs álag, milli tveggja fleka. Skíðamenn hafa tilkynnt vúmp hljóð í Skarðsdal og veikleikar hafa einnig fundist á Flateyjarskaga.

Snjóflóðavakt

Norðurland

Siglufjörður

Snjógryfjur

Tröllaskagi

Snjógryfja Skarðsdal, Siglufirði 11.feb

12.02.2026 | 09:32

Gryfja var tekin í Skarðsdal í um 460 m hæð og í austlægu viðhorfi. Um 30 cm þykkur, stífur vindfleki var ofan á eldra hjarni þar sem gryfjan var gerð. Grafið yfirborðshrím og kanntaðir kristallar voru á lagmótunum við hjarnið. Stöðugleikapróf gáfu veikar niðurstöður: auðvelt er að framkalla brot sem breiðast út.

Snjóflóðavakt

Siglufjörður

Snjógryfjur

Tröllaskagi

Snjógryfja í Skarðsdal við Siglufjörð 15. janúar

16.01.2026 | 13:31

Snjógryfja í Skarðsdal við Siglufjörð 15. janúar.

Snjóflóðavakt

Siglufjörður

Snjóflóð

Snjógryfjur

Tröllaskagi

Síur

Vakt

Tög