Frá vaktinni

Frá vaktinni

Mat á snjóflóðahættu

Snjóflóðaaðstæður á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga

12.03.2026 | 16:53

Ratsjá Veðurstofunnar hefur greint þrjú snjóflóð ofan Flateyrar í dag, eitt í Innra‑Bæjargili og tvö í Skollahvilft. Stærstu tvö snjóflóðin hafa náð u.þ.b. niður að vörnum, sjá meðfylgjandi myndir. Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi og veginum verður lokað kl. 20 í kvöld. Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður síðan fyrir hádegi. Þá féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir á föstudag.

Snjóflóðavakt

Flateyri

Mat á snjóflóðahættu

Norðanverðir Vestfirðir

Snjóflóð

Tröllaskagi

Utanverður Tröllaskagi

Varasamar aðstæður til fjalla í Eyjafirði

19.12.2025 | 13:35

Viðvarandi veikt lag hefur verið í snjóþekjunni frá því í síðustu viku. Snjóflóð féllu við sprengingu í Hlíðarfjalli í síðustu viku og nokkur flóð í Öxnadal. Á miðvikudag féllu snjóflóð ofan við Ólafsfjarðarveg. Í dag, föstudag, hafa fallið tvö náttúruleg snjóflóð í Hlíðarfjalli við lítið álag á snjóþekjuna. Ástæða er fyrir fólk að fara varlega

Snjóflóðavakt

Eyjafjörður og Flateyjarskagi

Mat á snjóflóðahættu

Öxnadalur–Hörgárdalur

Snjóflóð

Snjókoma á SV-horninu

28.10.2025 | 12:38

Talsverð snjókoma hefur verið á SV-horni landsins og áfram er spáð mikilli úrkomu í dag. Snjóflóðaspá til fjalla á SV-horninu hefur verið uppfærð í appelsínugulan vegna töluverðrar snjóflóðahættu. Óvissa er um hvernig nýr snjór bindst eldri snjó og hvöss NA-átt gæti myndað vindfleka og aukið hættu enn frekar.

Snjóflóðavakt

Mat á snjóflóðahættu

SV-hornið

Síur

Vakt

Tög