29.10.2026
EPOS býður til vefmálstofu um aðgengi og miðlun vísindagagna
Hvernig geta rannsóknainnviðir unnið saman að því að gera vísindagögn aðgengilegri og auðveldari í samnýtingu? Þessi spurning verður í brennidepli á alþjóðlegri vefmálstofu á vegum European Plate Observing System (EPOS) föstudaginn 6. nóvember 2026.
Vefmálstofan ber yfirskriftina EPOS Data Policy: Principles, Framework, and Implementation og fjallar um stefnu EPOS í gagnamálum, lagalega umgjörð hennar og hvernig meginreglum um opið aðgengi og ábyrga meðferð vísindagagna er fylgt í framkvæmd.
Meðal umfjöllunarefna eru lífsferill vísindagagna, gagnaöryggi og vernd upplýsinga, hugverkaréttindi og FAIR-meginreglurnar, sem miða að því að gögn séu finnanleg, aðgengileg, samhæfð og endurnýtanleg.
Vefmálstofan er haldin í tengslum við alþjóðlegt samstarf EPOS í Evrópu, AuScope í Ástralíu, EarthScope í Bandaríkjunum og Earth Sciences New Zealand. Markmið samstarfsins er meðal annars að efla samhæfni rannsóknainnviða og auðvelda miðlun og nýtingu jarðvísindagagna þvert á landamæri.
Í lok málstofunnar verður opið fyrir spurningar og umræður þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að miðla reynslu sinni og ræða sameiginlegar áskoranir við stjórnun og miðlun vísindagagna.
Tími og þátttaka
Vefmálstofan fer fram föstudaginn 6. nóvember kl. 7:00 að íslenskum tíma (8:00 CET) og verður haldin á Zoom.