26.11.2026
Nýtt
Frá mælitæki á skjá

Hvað þarf til að koma mælingum, spám og viðvörunum til hundraða þúsunda notenda og halda upplýsingunum aðgengilegum þegar náttúruöflin á Íslandi láta finna fyrir sér?
Í tengslum við opnun nýs vedur.is hafa vaknað spurningar um umfang verkefnisins, framkvæmd þess og kostnað. Eðlilegt er að endurnýjun eins fjölsóttasta upplýsingavefs landsins veki athygli.
Hér er farið yfir hvað fólst í vinnunni og hvers vegna hún snýst um heildstæða umbreytingu á tæknilegum innviðum sem nær langt út fyrir útlit nýrrar heimasíðu.
Í stuttu máli
- Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða. Vefurinn sem fólk sér er aðeins efsta lagið. Undir honum liggja gagnagrunnar, gagnaflæði, kortavinnsla, vefþjónustur og rekstrarumhverfi sem byggð voru upp eða endurnýjuð í verkefninu.
- Frá mælitæki að skjá. Veðurstofan fær gögn frá yfir 900 mælitækjum víðs vegar um landið og rekur yfir 100 vefþjónustur sem flytja gögn milli kerfa. Þar af eru yfir 50 fyrir veðurathuganir einar.
- 65 þúsund notendur á sama tíma. Eftir stóran jarðskjálfta reyndu svo margir að nálgast upplýsingar á sama tíma að gamli vefurinn lét undan álaginu. Nýi vefurinn hefur verið álagsprófaður og afkastageta hans eykst sjálfkrafa þegar aðsókn vex.
- Stærsti hluti kostnaðarins fór í kerfin að baki vefnum. Frá því að undirbúningur hófst árið 2021 nemur útlagður kostnaður um 446 milljónum króna. Þar vegur þyngst vinna við gögn, tengingar milli kerfa, netöryggi og búnað sem tekur við ef bilun verður. Verkefnið er því fjárfesting í stafrænum innviðum sem nýtast áfram, ekki einskiptiskostnaður við heimasíðu.
- Með opnun nýs vedur.is er fyrsta áfanganum náð. Við byrjuðum á því sem flestir sækja á vefinn, meðal annars veðurspám, viðvörunum og upplýsingum um jarðskjálfta. Nú byggjum við á sama grunni og vinnum að nýjum vefsvæðum fyrir sjóveður, flugveður, eldstöðvar og vatnafar. Þar til þau opna má nálgast upplýsingarnar á eldri vefnum.
Mikilvægur hluti af öryggisþjónustu
Veðurstofa Íslands er ein af fáum stofnunum í heiminum þar sem vöktun á allri helstu náttúruvá landsins og miðlun upplýsinga um hana fer fram á einum stað.
Uppbygging vefsins tekur mið af þessu víðtæka hlutverki. Þar þarf ekki einungis að miðla almennum veðurspám, sjóveðri og flugveðri, heldur einnig upplýsingum og viðvörunum vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, snjóflóða, skriðna og vatnsflóða.
Upplýsingatækniinnviðir Veðurstofunnar eru hluti af öryggisinnviðum landsins. Ef þeir bregðast gætu náttúruváreftirlit og flugveðurþjónusta orðið óvirk. Spár og viðvaranir myndu þá ekki berast viðbragðsaðilum, almannavörnum, sveitarfélögum og rekstraraðilum mikilvægra innviða. Gögn myndu heldur ekki berast þeim sem byggja eigin lausnir á opnum gögnum Veðurstofunnar.
Vedur.is er sá hluti þessara innviða sem snýr að almenningi. Miðlun í gegnum vefinn snýst um að réttar upplýsingar berist í tæka tíð til þeirra sem þurfa á þeim að halda og að skilaboðin séu skiljanleg svo hægt sé að bregðast við þeim.
Á vedur.is sækja almenningur, sjómenn, flugmenn, bændur, sveitarfélög, fjölmiðlar, viðbragðsaðilar og rekstraraðilar mikilvægra innviða upplýsingar sem þurfa að nýtast við ólíkar aðstæður. Tækniumhverfið að baki vefnum þarf að styðja við þessa fjölbreyttu miðlun og halda upplýsingunum aðgengilegum þótt aðsókn margfaldist á skömmum tíma.
Aðsóknin getur margfaldast á örskömmum tíma
Í óveðri er nauðsynlegt að skilja hvernig veðrið mun þróast, við hverju má búast næstu klukkustundir og hvar viðvaranir eru í gildi. Þegar stór jarðskjálfti finnst í byggð eða óveður gengur yfir leita margir á vedur.is á sama tíma. Eftir skjálfta vill fólk vita hvar hann varð og hversu stór hann var.
Vefurinn þarf því að ráða við skyndilega aukna aðsókn og koma nýjustu mælingum, spám og viðvörunum skýrt til skila.
- 600 þúsund notendur og sex milljónir flettinga á dæmigerðu 30 daga tímabili.
- 320 þúsund notendur á einum degi í óveðrinu í mars 2026.
- 65 þúsund notendur reyndu á sama tíma að nálgast upplýsingar um stóran jarðskjálfta. Þá lét gamli vefurinn undan álaginu.
Langur vegur frá mælitæki að skjá
Að baki upplýsingunum eru mælingar, niðurstöður reiknilíkana og mat sérfræðinga. Til Veðurstofunnar streyma gögn frá yfir 900 mælitækjum víðs vegar um landið, meðal annars veðurstöðvum, úrkomumælum, vatnamælum, skjálftamælum, GPS-mælum, gasmælum við eldfjöll, sjávarborðsmælum og veðursjám.
Gögnunum þarf að safna, þau þarf að sannreyna og vinna úr þeim áður en þau verða að spám, viðvörunum og kortum. Vefurinn er fremsti hlekkurinn í þessari löngu keðju frá mælitæki að skjá notenda. Endurnýjun vedur.is, sem opnaði 17. nóvember, nær því ekki aðeins til kortanna og upplýsinganna á skjánum heldur líka til gagnaflæðis, vinnslu og rekstrarkerfa að baki þeim.

Mörg mælitæki Veðurstofunnar eru hátt til fjalla og á afskekktum stöðum þar sem aðgengi getur verið erfitt. Viðhald og gagnaflutningar eru hluti af vinnunni við að koma mælingum alla leið á skjá notenda.
Um mælingar á afskekktum stöðum
Hlutverk Veðurstofunnar við miðlun upplýsinga um náttúruvá
Hlutverk Veðurstofu Íslands er að vakta veður, jarðskjálfta, eldgos, jökulhlaup, vatnsflóð og ofanflóð og gefa út spár og viðvaranir eftir því sem við á. Veðurstofan safnar, varðveitir og greinir gögn, stundar rannsóknir og miðlar upplýsingum sem nýtast samfélaginu í viðbrögðum við náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga.
Í stefnu Veðurstofunnar fyrir árin 2025–2030 er framtíðarsýnin orðuð svo: „Við eflum öryggi og áfallaþol samfélagsins í ört breytilegum heimi.“ Eitt af leiðarljósum stefnunnar er að þjónustan taki mið af þörfum notenda og bjóði þeim hagnýtar lausnir.
Áreiðanleiki er eitt af gildum Veðurstofunnar. Upplýsingarnar á vedur.is geta ráðið því hvort fólk leggur af stað, hvernig það skipuleggur vinnu sína eða hvernig það bregst við hættu. Því þarf að vanda hvert skref, frá varðveislu og úrvinnslu gagna til rekstrar og öryggis vefsins.

Á sólarhringsvakt Veðurstofunnar er fylgst með veðri og náttúruvá allan sólarhringinn. Vedur.is er ein helsta leiðin til að koma spám, mælingum og viðvörunum til almennings.
Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða
Endurnýjun vedur.is nær frá viðmótinu sem notendur sjá til kerfanna sem taka við gögnum, vinna úr þeim og miðla þeim á vefinn. Um er að ræða uppbyggingu stafrænna innviða sem eiga að þjóna samfélaginu til langs tíma og miðla upplýsingum um veður, náttúruvá og umhverfi til almennings, fjölmiðla, atvinnulífs og viðbragðsaðila.
Vefur Veðurstofunnar er ólíkur flestum vefum. Hann er hluti af öryggisþjónustu og þarf alltaf að vera aðgengilegur, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Það sem notendur sjá á vedur.is er aðeins fremsti hlekkurinn í langri og flókinni virðiskeðju gagna. Undir honum liggja nokkur lög sem hvert um sig þurfti að byggja upp eða endurnýja:
- Gagnagrunnar og gagnaflæði. Gögn úr eldri kerfum voru hreinsuð og flutt í nýja gagnagrunna og sérstakt gagnaflæði sett upp fyrir vefinn.
- Úrvinnsla. Kortakerfi sem er hýst hjá Veðurstofunni vinnur beint úr veðurlíkangögnum og útbýr þau fyrir gagnvirk kort.
- Vefþjónustur. Veðurstofan rekur yfir 100 vefþjónustur sem flytja gögn á milli kerfa, þar af fleiri en 50 fyrir veðurathuganir einar. Þær leggja jafnframt grunn að því að aðrir geti nýtt gögnin.
- Rekstrarumhverfi. Vefurinn er rekinn í skýjaumhverfi sem eykur afköst sjálfkrafa, með marglaga vörnum, vöktun og sjálfvirku útgáfuferli.
- Vefsvæði og hönnunarkerfi. Sjálfstæð vefsvæði fyrir veður, viðvaranir, jarðskjálfta, snjóflóð, skriður og loftslagsatlas deila einu hönnunarkerfi.
Þessir innviðir nýtast víðar en á vedur.is. Á þeim verða byggð ný vefsvæði fyrir sjóveður, flugveður, eldstöðvar, vatnafar, rannsóknir, náttúruvárþjónustu og loftslagsþjónustu. Þeir leggja grunn að því að miðla viðvörunum í fleiri tæki og að gögnin sem Veðurstofan aflar nýtist í öðrum vefjum og öppum. Ný heimasíða ein og sér hefði ekki dugað til þess. Fjárfestingin í vefnum hefur jafnframt styrkt upplýsingatækniumhverfi Veðurstofunnar í heild, meðal annars rekstrarsamfellu og tvöföldun kerfisinnviða.

Einfölduð mynd af stafrænum innviðum Veðurstofunnar. Vefurinn sem fólk sér er efsta lagið. Undir honum liggja innviðir sem taka við gögnum, vinna úr þeim og miðla þeim.
Hvers vegna þurfti að endurnýja grunnkerfin?
Endurnýjunin var nauðsynleg til að bregðast við veikleikum í eldri kerfum og breyttum þörfum notenda.
Gamli vefurinn var kominn til ára sinna en hann hafði þjónað landsmönnum í nær tvo áratugi. Vefurinn byggði á vefumsjónarkerfinu Eplica en í desember 2023 var tilkynnt að nýsmíði og þróun kerfisins hefði verið hætt og viðskiptavinum ráðlagt að færa vefi sína í nýtt tækniumhverfi. Þeim var jafnframt ráðlagt að ráðast ekki í umfangsmiklar breytingar á vefjum sínum þar sem sú fjárfesting yrði skammlíf.
Á þessum tíma hafði notkunin líka breyst. Fólk sækir upplýsingar í símann, vill skoða gagnvirk kort og finna spár og viðvaranir fyrir tiltekna staði.
Þróun nýja vefsins hefur staðið yfir í nokkur ár. Á þeim tíma hafa snjallsímanotkun, kröfur um stafrænt aðgengi og umfang upplýsinganna sem Veðurstofan miðlar aukist. Verkefnið hefur því þróast samhliða breyttum þörfum notenda og nýjum tæknilegum kröfum.
Veikleikar komu fram þegar mest reyndi á
Endurteknar truflanir við náttúruváratburði höfðu sýnt að styrkja þyrfti tæknilega innviði miðlunarinnar. Þegar eldgos hófust og uppfærslur voru settar inn bilaði vefurinn ítrekað, á sama tíma og starfsfólk vann að viðbrögðum við gosinu.
„Við miðlun upplýsinga um eldsumbrot á Reykjanesi komu fram verulegir veikleikar í upplýsingakerfum Veðurstofunnar. Það reyndi bæði á aðgengi að fjölbreyttum gögnum og getu kerfanna til að vinna með stór gagnasöfn og miðla upplýsingum með áreiðanlegum hætti. Endurteknar truflanir ollu töfum í miðlun og juku álag sem erfitt var að mæta.“
— Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athugana- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofunnar

Eldgos við Grindavík. Þegar eldgos hefst getur aðsókn að vedur.is margfaldast á örfáum mínútum. Þá þarf vefurinn að ráða við álagið svo fólk geti fylgst með framvindu gossins og nálgast nýjasta hættumat Veðurstofunnar. Ljósmynd: Ragnar Axelsson/RAX.
Þörfin hafði líka verið staðfest utan Veðurstofunnar. Eftir fárviðrið í desember 2019 réðust stjórnvöld í átak til að styrkja mikilvæga innviði. Veðurstofan fékk þá meðal annars fjármagn til að þróa vefumhverfi sem mætti kröfum um nútímalega framsetningu og tryggði uppitíma. Í skýrslu stýrihóps þjóðaröryggisráðs frá desember 2022 er jafnframt bent á að tryggja þurfi að mæli- og upplýsingatækni vegna vöktunar á náttúruvá standist tækniþróun og kröfur hvers tíma. Í skýrslu stjórnvalda um stöðumat og áskoranir vegna náttúruvár er einnig fjallað um nauðsyn öflugra tækniinnviða og mikilvægi þess að auka aðgengi að hættumatskortum og öðrum upplýsingum, til dæmis í snjalltækjum í gegnum kortasjár og vefsvæði.
Sérfræðingar voru fengnir til að greina stöðuna og leggja til úrbætur. Niðurstaðan var að styrkja þyrfti grunnkerfin, meðal annars gagnageymslur, gagnahögun, vélbúnað og netkerfi. Samhliða þyrfti að þróa vefþjónustur, gagnagáttir og vefsjár til að bæta miðlun gagna.
Frá upphafi lá fyrir að umfangið væri óljóst. Gamli vefurinn hafði að geyma um 3.000 undirsíður með birtingu gagna frá hundruðum ólíkra gagnastrauma, síður sem púslað hafði verið saman í tvo áratugi. Því var boðið út þróunarsamstarf, í samráði við Ríkiskaup, með það fyrir augum að fá samstarfsaðila með þekkingu og getu til að greina og vinna svo viðamikið verkefni. Í byrjun árs 2023 var ljóst að endurnýja þyrfti meira af innviðunum að baki vefnum en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir.

Gamli vefurinn þjónaði landsmönnum í nær tvo áratugi og er enn aðgengilegur á eldri.vedur.is. Til hægri er forsíða nýs vedur.is 25. nóvember 2026, þegar skriðuviðvörun og viðvaranir vegna hvassviðris voru í gildi.
Kröfur sem ganga lengra en á hefðbundnum vef
Vefurinn gegnir mikilvægu samfélagshlutverki þegar mest á reynir. Þegar eldgos hefst, stór jarðskjálfti finnst í byggð eða óveður er yfirvofandi getur aðsókn margfaldast á örfáum mínútum. Þá þarf vefurinn að halda áfram að miðla spám, mælingum og viðvörunum.
Við þróunina var því lögð sérstök áhersla á rekstraröryggi, álagsþol og öryggi upplýsinga og rekstrarumhverfis. Jafnframt þurfti að uppfylla kröfur um stafrænt aðgengi og leggja grunn að áframhaldandi þróun. Þessar kröfur hafa veruleg áhrif á umfang verkefnisins og ganga lengra en almennt tíðkast við gerð hefðbundinna upplýsingavefa.
Gagnagrunnar og tengingar að baki upplýsingunum
Að baki spám, mælingum og viðvörunum eru stöðugir gagnastraumar frá mælitækjum, reiknilíkönum og sérfræðingum. Gögnin koma úr ólíkum kerfum, ná yfir mismunandi svæði og tímabil og uppfærast mishratt. Hver hluti vefsins kallar á sína gagnastrauma og sína framsetningu. Í verkefninu voru gögn úr eldri kerfum hreinsuð og flutt í nýja gagnagrunna, sett upp sérstakt gagnaflæði fyrir vefinn og kerfi Veðurstofunnar tengd nýja vefumhverfinu.
Nánar um gögnin og tengingarnar í bakendanum
Kortavinnsla hjá Veðurstofunni
Kortin eru einn sýnilegasti hluti nýja vefsins og jafnframt einn umfangsmesti hluti innviðanna að baki honum. Spágögn úr veðurlíkönum eru unnin í úrvinnslukerfi sem Veðurstofan hýsir sjálf og send í tæki notenda svo kortin bregðist hratt við, líka þegar álagið er mikið.

Veðurþáttakortið 25. nóvember 2026 kl. 19. Vindur, hiti og úrkoma eru sýnd á sama korti. Fáninn sýnir spágildi fyrir valinn stað og tímastikan neðst nær viku fram í tímann.
Hvernig virkar kortakerfið?
Rekstur sem þarf að standast álagstoppa
Vefurinn fær milljónir heimsókna á ári og álagið er ójafnt. Álagsþol, rekstraröryggi og vernd upplýsinga eru því lykilþættir í uppbyggingunni. Forgangsröðunin er skýr: betra er að nýr jarðskjálfti birtist örlítið síðar en að vefurinn svari ekki.
- Prófaður fyrir mikið álag. Álagsprófin líktu eftir daglegri notkun og skyndilegum álagstoppum. Niðurstöðurnar voru nýttar til að finna flöskuhálsa, stilla kerfin og bæta kóðann.
- Varaleið fyrir gögnin. Öll kerfi sem streyma gögnum inn á vefinn hafa verið tvöfölduð svo varaleið sé alltaf til staðar. Rofni samband milli Veðurstofunnar og skýjaumhverfisins getur vefurinn áfram birt síðustu gögn sem borist hafa, þótt þau uppfærist ekki á meðan. Jarðskjálftavefurinn sýnir þá til dæmis síðustu réttu gögn í stað tómrar síðu.
- Óháð öryggisúttekt. Fyrir opnun fór vefurinn í óháða öryggisúttekt og árásarprófanir.
Nánar um rekstur og öryggi
Endurskipulagning efnis og bætt aðgengi
Samhliða tæknivinnunni er unnið að því að yfirfara og endurskipuleggja um 3.000 síður af gamla vefnum svo auðveldara verði að finna efnið og halda því við. Efnið er þróað áfram og birt á nýja vefnum í áföngum.
Einnig hefur verið unnið að aðgengi fyrir fólk með ólíkar þarfir. Vefurinn styður skjálesara og lyklaborð og með hnappnum „Hlusta“ má fá texta lesinn upp. Reglulegar aðgengisprófanir hjálpa til við að finna og lagfæra atriði sem geta torveldað notkun.
- Íhlutir byggðir fyrir aðgengi. Íhlutir vefsins eru meðal annars með sýnilegan fókus og falinn texta fyrir skjálesara.
- Sjálfvirkar aðgengisreglur í kóðanum. Reglurnar grípa algeng mistök áður en þau fara í loftið.
- Upplestur þar sem hann nýtist. Hægt er að láta lesa upp forsíðu, fréttir, efnissíður, spár og athuganir. Hver síða skilgreinir hvaða hluti hennar er lesinn svo valmyndir og annað aukaefni sé ekki lesið með.
Hvað felst í kostnaðinum?
Frá því að undirbúningur verkefnisins hófst árið 2021 hefur útlagður kostnaður við það numið um 446 milljónum króna. Stærsti hluti kostnaðarins fór í bakenda kerfisins, það er gögn, vefþjónustur og samþættingar, innviði, netöryggi og rekstrarsamfellu.
Samið var við Origo um þróun vefsins að undangengnu útboði og sá Metall Design Studio um hönnun í samstarfi við Origo.
Umfang verkefnisins nær til þeirrar vinnu við grunnkerfi, gögn, kort, öryggi og rekstur sem hér hefur verið lýst. Verkefni af þessu tagi felur einnig í sér verkefnastýringu, þarfagreiningu, notendarannsóknir, aðgengisúttekt og undirbúning rekstrar. Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa jafnframt lagt verkefninu til þekkingu á veðri, náttúruvá, gögnum og þjónustuferlum sem þarf til að upplýsingarnar skili sér rétt og nýtist við ólíkar aðstæður.
Verkefnið er því fjárfesting í stafrænum innviðum sem nýtast áfram við uppbyggingu nýrrar þjónustu, ekki einskiptiskostnaður við heimasíðu.
Grunnur að áframhaldandi þróun
Þar sem byggðir voru upp innviðir en ekki eingöngu heimasíða er hægt að halda áfram að byggja ofan á þá. Við opnun var þeim hlutum sem flestir nota forgangsraðað, meðal annars veðurspám, viðvörunum, jarðskjálftagögnum, tilkynningum sólarhringsvaktar og fréttum. Nýju innviðirnir nýtast við áframhaldandi uppbyggingu:
- Sjóveður, flugveður, eldstöðvar, vatnafar, rannsóknir, náttúruvárþjónusta og loftslagsþjónusta. Ný vefsvæði eru í vinnslu í samstarfi við fagfólk sem þekkir gögnin og þarfir notenda. Á meðan eru upplýsingarnar áfram aðgengilegar á eldri.vedur.is. Einnig stendur til að birta fleiri veðurþáttaþekjur, upplýsingar úr veðursjám og gervitunglagögn.
- Viðvaranir í fleiri tæki. Viðvaranir Veðurstofunnar berast nú þegar í gegnum evrópska gagnagrunninn Meteoalarm, meðal annars í snjallsíma ferðamanna. Stefnt er að því að miðla þeim eftir alþjóðlegum stöðlum svo þær geti borist víðar, meðal annars í snjalltæki og leiðsögukerfi bíla. Jafnframt er unnið að lausnum fyrir veður- og náttúruvárvakt sem tengja upplýsingar við einstök svæði og staði. Þær auka möguleika á að senda viðvaranir beint til notenda eftir staðsetningu þeirra.
- Betra aðgengi að rannsóknum og hættumati. Nýja tækniumhverfið auðveldar að miðla niðurstöðum rannsókna og hættumati, til dæmis til sveitarfélaga vegna skipulags byggðar, uppbyggingar innviða og aðlögunar að loftslagsbreytingum.
Ábendingar notenda móta næstu skref
Frá opnun hafa borist fjölmargar ábendingar. Sumir notendur sakna yfirlitssýnar og leiða sem þeir þekkja af gamla vefnum, aðrir benda á atriði sem mætti gera skýrari eða aðgengilegri. Vind-, hita- og úrkomukortin sem áður sáust saman á forsíðunni eru til dæmis nú undir Veðurþáttakortum. Þar má skoða gögnin saman á gagnvirku korti, en frá forsíðunni þarf fleiri skref að sumum þeirra.
Ábendingarnar nýtast við að forgangsraða úrbótum og áframhaldandi þróun. Á síðunni „Spurt og svarað“ eru leiðbeiningar í texta, myndum og myndböndum. Ábendingar um vefinn má senda á nyrvefur@vedur.is.
— Í stuttu máli
Mikilvægur hluti af öryggisþjónustu
Aðsóknin getur margfaldast á örskömmum tíma
Langur vegur frá mælitæki að skjá
Hlutverk Veðurstofunnar við miðlun upplýsinga um náttúruvá
Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða
Hvers vegna þurfti að endurnýja grunnkerfin?
Veikleikar komu fram þegar mest reyndi á
Kröfur sem ganga lengra en á hefðbundnum vef
Gagnagrunnar og tengingar að baki upplýsingunum
Rekstur sem þarf að standast álagstoppa
Endurskipulagning efnis og bætt aðgengi
Hvað felst í kostnaðinum?
Grunnur að áframhaldandi þróun
Ábendingar notenda móta næstu skref