Rannsóknarverkefni Veðurstofu Íslands

Fjölbreytt rannsóknar- og þróunarverkefni
Jórunn Harðardóttir er rannsóknarstjóri Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands leiðir og tekur þátt í fjölbreyttum rannsóknar- og þróunarverkefnum í samstarfi við innlenda og erlenda aðila. Verkefnin fela í sér grunnrannsóknir, vísindalega úrvinnslu gagna, líkanagerð og þróun afurða og aðferða sem nýtast við þjónustu stofnunarinnar. Hér má finna yfirlit yfir rannsóknarverkefni, markmið þeirra, tímabil og samstarfsaðila, ásamt tenglum á verkefnavefi þar sem þeir eru til staðar.